Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 14
14 6. apríl 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
UNNUR ÖSP
STEFÁNSDÓTTIR
LEIKKONA ER 32
ÁRA.
KÁRI
STEFÁNSSON,
FORSTJÓRI
ÍSLENSKRAR
ERFÐAGREIN-
INGAR, ER 59
ÁRA.
VIGFÚS ÞÓR
ÁRNASON
SÓKNARPREST-
UR ER 62 ÁRA.
SVALA
THORLACIUS
LÖGFRÆÐING-
UR ER 66 ÁRA.
TAMMY WYNETTE KÁNTRÍSÖNG-
KONA LÉST ÞENNAN DAG 1998.
„Stundum er erfitt að vera
kona og gefa alla sína ást
einum manni.“
Frægðarsól Tammy Wynette
reis hæst á árunum 1966 til
1980 en hennar frægasta lag
er „Stand by your man“ sem
kom út árið 1969.
Árið 1991 var argen-
tínska fótboltasnill-
ingnum Diego Marad-
ona gert að víkja úr ít-
ölsku deildinni í fótbolta
í fimmtán mánuði vegna
fíkniefnamisnotkunar.
Ferill Maradona hófst
snemma. Hann var ekki
nema ellefu ára þegar
hæfileikar hans á vell-
inum voru uppgötvað-
ir og hann varð lykilleik-
maður í Argentinos Juniors. Styrkur Maradona
sem leikmanns fólst í hversu lágvaxinn hann var
og snöggur. Fyrsta atvinnumannaleik sinn spil-
aði hann tíu dögum fyrir sextán ára afmælið sitt.
Eftir heimsmeistarakeppnina árið 1982 var Mar-
adona seldur til Barcelona og talið er að hann
hafi ánetjast fíkniefn-
um þar.
Í heimsmeistarakeppn-
inni 1986 sló hann
boltann í mark Eng-
lendinga í stað þess að
sparka honum. Sjálfur
sagði hann að þar hefði
„hönd guðs“ átt hlut
að máli.
Heilsufar Maradona
hefur farið hnignandi
en hann hefur bar-
ist árum saman við eiturlyfjafíkn og offitu. Í apríl
2004 fékk hann alvarlegt hjartaáfall og gekk
undir magahjáveituaðgerð ári síðar. Í maí 2007
kom Maradona fram opinberlega og lýsti því yfir
að hann væri hættur að drekka og hefði ekki
notað fíkniefni í tvö og hálft ár.
ÞETTA GERÐIST: 6. APRÍL 1991
Maradona rekinn vegna neyslu
MERKISATBURÐIR:
1746 Tveir bátar farast úti fyrir
Ingólfshöfða. Eftir þetta
leggjast sjóróðrar þaðan
niður.
1925 Fyrsta kvikmyndasýning í
flugvél hjá bresku flugfé-
lagi.
1944 Bandarísk herflugvél
steypist í sjóinn út af
Vatnsleysuströnd. Átta
mönnum bjargað.
1979 Úthlutað úr kvikmynda-
sjóði í fyrsta sinn. Hæstu
styrki hlutu Land og synir,
Óðal feðranna og Veiði-
ferðin.
1980 „Post it“-minnismiðarnir
koma á markaðinn.
1984 Ellefu manns saman-
komnir úti í geimnum í
fyrsta skipti.
1992 Hersveitir Serba hefja yfir-
töku á Sarajevo.
Bókasafn Kópavogs á 55 ára afmæli
í ár en það var stofnað 15. mars 1953.
Skáldið Jón úr Vör var fyrsti bóka-
vörður safnsins og veitti því forstöðu
til ársins 1976. Þá tók núverandi bæjar-
bókavörður, Hrafn Harðarson, við
starfinu. Safnið flutti töluvert fyrstu
árin en árið 2002 flutti það í Safnahús
Kópavogs í Hamraborg og deilir húsa-
kynnum með Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs. „Í dag erum við með fjölnotasal
fyrir fundi, fræðsluerindi og aðrar
uppákomur,“ útskýrir Inga Kristjáns-
dóttir, deildarstjóri á barnadeild. Hún
segir safnið bjóða upp á reglulega fyr-
irlestra um ákveðið þema hvert ár. „Í
ár ræddum við um ástina í fimm erind-
um vikulega í febrúar og mars. Síðan
hefur rithringur fengið inni á safninu
og heldur þar fundi tvisvar í mánuði.
Einnig er starfandi bókmenntaklúbb-
ur sem heldur úti blómlegu starfi,“
segir Inga og nefnir líka sögustund-
ir fyrir yngstu börnin. „Barnastarfið
hefur verið snar þáttur í starfi bóka-
safnsins í mörg ár. Þar eru sögustund-
ir fyrir litlu börnin fastur liður yfir
vetrarmánuðina. Á sumrin er síðan
lestrarhvetjandi verkefni fyrir stál-
puð börn og safnkynningar fyrir skóla-
börn. Síðan reynum við að fá eina til
tvær brúðuleiksýningar á ári og fleira
mætti tína til,“ segir Inga.
Á aðventunni ár hvert taka bóka-
safnið og Náttúrufræðistofa höndum
saman um barnadagskrá. Á vorin er
dagskráin helguð fuglum og dýrum.
Undanfarið hefur bókasafnið boðið
fjögurra ára leikskólabörnum á nám-
skeið í meðferð bóka. Að námskeiði
loknu fá börnin skírteini sem staðfesta
að þau kunni að umgangast bækur.
Bókasafn Kópavogs er nú deilda-
skipt. Á fyrstu hæð er fræðsluefn-
ið geymt og á þeirri annarri er meg-
inefnið skáldrit, sagnfræði og landa-
fræði, myndbönd og -diskar. Einnig er
þar forn- og dægurmenningardeild til
húsa. „Unglingar og ungt fólk á öllum
aldri á sérstakan stað hér á safninu. Þar
eru til dæmis nýjustu teiknimyndasög-
urnar í bland við íslensk fornrit og við
köllum staðinn Heita pottinn. Á efstu
hæð er svo barnadeildin og Listvang-
ur, þar sem er að finna tónlist á geisla-
diskum, bækur um listir og handa-
vinnu- og föndurbækur,“ segir Inga.
Hún segir útlán á bókum hafa verið
stöðugt um árin og nokkuð bundið við
árstíðir. Hljóðbækur njóta mikilla vin-
sælda en einnig lánar safnið út mynd-
diska og tímarit. Hún segir bókasafn-
ið vinalegan vinnustað en á safninu
vinna milli tuttugu og þrjátíu manns.
„Ég er búin að vinna hér í átján ár og
kann ákaflega vel við umhverfið, sam-
starfsfólkið og vinnuna með börnun-
um,“ segir Inga að lokum.
heida@frettabladid.is
BÓKASAFN KÓPAVOGS: ER FIMMTÍU OG FIMM ÁRA Á ÞESSU ÁRI
Blómlegt starf á bókasafninu
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför föður míns og bróður
okkar,
Steindórs Zóphóníassonar,
fyrrum bónda, Ásbrekku í
Gnúpverjahreppi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Kumbaravogi fyrir góða umönnun.
Ingveldur Sigrún Steindórsdóttir og systkini hins látna.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Gísli Gunnarsson,
áður til heimilis að Bárustíg 4,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þriðjudaginn
1. apríl. Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 12. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Gísladóttir Björn Ottósson
Sveinn Gíslason Jónína Þorvaldsdóttir
Pálmey Gísladóttir Rúnar Ingólfsson
Haraldur Gíslason Björg Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
Gunnar Ragnar
Sveinbjörnsson,
frá Kothúsum, Garði, Eyrarholti 20,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 3.
apríl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 10. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsam-
legast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Krabbameinsfélag Íslands.
Ágústa Sigríður Gunnarsdóttir Halldór A. Þórarinsson
Valdís Þóra Gunnarsdóttir Vignir Már Guðjónsson
Sara Lind Gunnarsdóttir Páll Þórir Jónsson
barnabörn og systkini.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu
við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Björns Sigurðssonar,
Árskógum 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dagdeildar á hjúkrun-
arheimilinu Eir og starfsfólks Heiðarbæjar á Skógarbæ
fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju, Guð blessi
ykkur öll.
Ársól Margrét Árnadóttir
Margrét Björnsdóttir Brynjúlfur Erlingsson
Sigurður Björnsson
Ólafía Björnsdóttir
Sólveig Björnsdóttir Ólafur Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Nílsínar Þ. Larsen
Garðvangi, Garði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Garðvangs og
Heilbrigðistofnunar Suðurnesja fyrir hlýhug og kær-
leiksríka umönnun.
Þórdís Ólafsdóttir
Sigurbjörg Ólafsdóttir Einar S. Guðjónsson
Egill Ólafsson Jóna G. Bjarnadóttir
Bjarni Þór Ólafsson
Ragna Ólafs Lirot Henry R. Lirot
Ólafur Högni Ólafsson Gunnar Guðmundsson
Sóley Ólafsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur.
ÚTLÁNIÐ STÖÐUGT Inga
Kristjánsdóttir, deildarstjóri
á barnadeild safnsins, hefur
starfað þar í átján ár og líkar
alltaf jafnvel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
RAFMÆLI