Fréttablaðið - 06.04.2008, Síða 24
6 sport
Í fyrsta sinn í mörg ár er Njarð-víkingurinn Egill Jónasson ekki lengur hæsti leikmaður
Iceland Express-deildarinnar.
Hinn 216 sm hái og 17 ára gamli
Hvergerðingur Ragnar Nathana-
elsson fékk nefnilega að stíga sín
fyrstu spor með Hamri í deildinni
í vetur.
Ragnar kom inn á í sínum fyrsta
leik þegar Hamar sótti Þórsara
heim á Akureyri. Fyrsta karfan
kom í óvæntum sigri Hamars á
verðandi deildarmeisturum Kefla-
víkur og í lokaleiknum gegn ÍR
var Ragnar með 6 stig og 7
frá köst.
Lárus Jónsson, fyrirliði Ham-
ars, hefur fylgst með Ragnari
undanfarin ár og hann sá mikinn
mun á honum á þessu tímabili.
„Hann hefur alla möguleika og
það er undir honum sjálfum komið
að verða góður. Áhuginn er að
aukast hjá honum og hann stóð sig
bara ágætlega í þeim leikjum sem
hann tók þátt í hjá okkur í vetur.
Hann var aðeins með okkur í fyrra
en í vetur er hann búinn að vera á
fullu. Það er þvílík breyting á
honum, hann náði að troða í fyrsta
sinn í vetur og núna treður hann á
hverri einustu æfingu,“ segir
Lárus sem segir hugarfar Ragn-
ars geta hjálpað honum.
„Hann hefur ágætis
hugarfar og hann er
frekar milli-nagli. Það
á samt eftir að reyna
almennilega á hann
því hann er ungur og
ekki búinn að spila
mikið,“ segir Lárus
en þrátt fyrir að vera
þegar orðinn stór og mikill
þá þarf strákurinn að styrkja sig.
„Hann þarf að styrkja sig líkam-
lega og þá sérstaklega miðju lík-
amans því hann er svolítið valtur.
Það gæti orðið auðvelt að ýta
honum ef hann styrkir sig ekki.
Það kemur því hann er svo ungur
ennþá,“ segir Lárus.
Ragnar hefur gengið í gegnum
ýmislegt þrátt fyrir ungan aldur
og um tíma var eins og hann ætl-
aði ekki að enda í körfuboltanum
en Ágúst Björgvinsson, þjálfari
Hamars, hefur hjálpað stráknum
mikið í vetur og kveikt áhuga hjá
honum á að reyna að ná langt í
körfuboltanum.
Ragnar hefur aldrei verið val-
inn í unglingalandslið sem mörg-
um finnst skrítið því ef það er eitt-
hvað sem íslenskan körfubolta
vantar þá eru það fleiri stórir
menn. Hans tími mun þó örugg-
lega koma haldi hann áfram á
sömu braut.
RISINN ÚR HVERAGERÐI
1. Trúðu alltaf á sjálfan þig og
vertu sjálfum þér trúr. Þú munt
alltaf vekja athygli vegna hæð-
arinnar og kemst ekki hjá því að
vera í sviðsljósinu. Vertu hógvær
og mundu alltaf hvar þú byrjaðir.
Þú kaust ekki að vera stór. Það er
bara bónus! Þú ert ekki öðruvísi
en aðrir þótt þú sért hærri en fólk
mun alltaf halda það. Hæðin getur
hins vegar boðið þér upp á ýmsa
möguleika en það er undir þér
sjálfum komið hvernig þú vinnur
úr þeim.
2. Mundu að menntun er máttur.
Aldrei gleyma að körfubolti er leik-
ur en menntun undirbýr þig fyrir
lífið. Það á við hvort sem þú ert 220
sm á hæð eða 120 sm. Þú verður að
finna rétt jafnvægi þar á milli.
3. Settu þér markmið og mundu að
vera alltaf óhræddur við að reyna
eitthvað nýtt. Það er betra að
reyna eitthvað og mistakast en að
reyna ekki og vita aldrei hvort þú
getur það! Fólk mun hafa ákveðnar
væntingar til þín vegna hæðarinnar
en mundu að „fólk“ stjórnar ekki
lífi þínu. Treystu þeim
sem hafa hjálpað þér
hingað!
4. Þeir sem VILJA
verða betri finna alltaf
„aukatíma“ til að æfa
sig. Mundu að þú
„spilar eins og þú æfir“.
Æfðu rétt og þá spilar
þú rétt! Endurtekning,
endurtekning... enginn
verður meistari án þess að eyða
miklum tíma í að æfa það sem hann
er búinn að læra. Þetta á
ekki síst við um hávaxna
leikmenn.
5. Mundu svo að lokum
að svona stór líkami er vél
sem þarf gott eldsneyti.
Borðaðu rétt og hugsaðu
vel um líkamann og þá
eru þér allir vegir færir!
GANGI ÞÉR VEL!
Þinn vinur, Pétur.
5 RÁÐLEGGINGAR PÉTURS GUÐMUNDSSONAR TIL RAGNARS
Tíu næstu menn til
að komast á listann
yfi r 20 bestu knatt-
spyrnumenn Íslands
frá 1946-2008:
BJARNI SIGURÐSSON
Varði mark Skaga-
manna þegar liðið
varð tvöfaldur
meistari tvö ár í
röð frá 1983 og
1984. Varð tvisvar
sinnum bikar-
meistari þrjú ár í röð, fyrst 1982-84
með ÍA og svo 1990-92 með Val.
GUÐMUNDUR STEINSSON
Annar af aðeins tveimur leikmönn-
um sem hafa skorað 100 mörk í
efstu deild. Varð fjórum sinnum
Íslandsmeistari ogskoraði sex sinn-
um yfir tíu mörk á átta ára tímabili
frá 1984 til 1991.
GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNSSON
Er þriðji marka-
hæsti leikmaður
Vals frá upphafi
þrátt fyrir að leika
sem miðjumaður.
Varð fjórum sinn-
um Íslandsmeistari
og kláraði ferilinn
sem atvinnumaður í Sviss.
KARL ÞÓRÐARSON
Einn skemmtilegasti vængmaður
Íslands frá upphafi. Varð fimm
sinnum Íslandsmeistari með
Skagamönnum og það liðu 20
ár milli þess fyrsta 1974 og þess
síðasta 1994.
MATTHÍAS HALLGRÍMSSON
Einn mesti markahrókur Íslands
frá upphafi og sá eini sem hefur
skorað yfir 90 mörk í efstu deild og
yfir tíu mörk með A-landsliðinu.
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON
Líklega baráttuglaðasti leikmaður
sem Ísland hefur
eignast. Vann sjö
Íslandsmeist-
aratitla og fimm
bikarmeistaratitla
með Skagamönn-
um og spilaði 72 landsleiki.
RAGNAR MARGEIRSSON
Einn hæfileikaríkasti framherji
sem Ísland hefur eignast. Skoraði
83 mörk í efstu deild fyrir Keflavík,
Fram og KR en tókst aldrei að
verða Íslandsmeistari.
SIGURÐUR DAGSSON
Er þekktastur fyrir að halda hreinu
á móti Eusebio og liði Benfica fyrir
framan 18 þúsund manns á Evr-
ópuleik á Laugardalsvellinum.
SÆVAR JÓNSSON
Einn traustasti varnarmaður
Íslands frá upp-
hafi. Spilaði 201
leik á ferlinum,
alla fyrir Val, og
varð fjórum sinn-
um Íslandsmeistari
með Val.
ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON
Lykilmaður í fyrsta gullaldarliði
Skagamanna, skoraði 103 mörk í
139 leikjum með Skagamönnum,
varð fjórum sinnum markakóngur
deildarinnar og sex sinnum
Íslandsmeistari.
TUGURINN
Ragnar Ágúst Nathanaelsson
Aldur... 17 ára.Hæð... 216 sm.Þyngd... 125 kg.Skónúmer... 51/15 US.Lítur upp til... Pétur Guð-mundsson er sá eini sem ég þarf að líta upp til.Önnur áhugamál.. Hef mikinn áhuga á tónlist, bæði að spila og hlusta.
Hinn 17 ára Ragnar Nathanaelsson spilaði sína
fyrstu leiki í úrvalsdeild í vetur og varð um leið
hæsti leikmaður Iceland Express-deildarinnar. Hann
nálgast óðum Pétur Guðmundsson og er enn að
stækka. Pétur fylgist vel með þróuninni hjá strákn-
um sem hefur ekki enn fengið tækifæri með yngri
landsliðum Íslands.
Eftir Óskar Ófeig Jónsson
Pétur Guðmundsson er sá körfu-
boltamaður sem hefur náð lengst
en hann spilaði meðal annars með
Los Angeles Lakers, San Antonio
Spurs og Portland Trailblazers.
Pétur er sjálfur 218 sm á hæð og
þeir Ragnar hafa hist, gerðu það
um síðustu áramót og Pétur hefur
sýnt mikinn áhuga á að hjálpa
Ragnari í framhaldinu. Hann
hefur sem dæmi boðið stráknum
til sín þegar Ragnar fer í körfu-
boltabúðir í Duke í Bandaríkjun-
um í sumar.
Pétur ráðleggur Ragnari hér
neðar á síðunni. „Ég trúi því að
hann geti náð langt. Það er erfitt
að fylgjast með úr svona mikilli
fjarlægð en ég veit að Gústi er að
gera góða hluti fyrir Ragnar og ég
treysti honum,“ sagði Pétur um
strákinn.
Lárus segir það hafa verið fróð-
legt að fylgjast með þeim Pétri og
Ragnari. „Það er gaman að segja
frá því að Pétur kom á nokkrar
æfingar milli jóla og nýárs. Hann
sagði honum meðal annars að fara
aldrei út úr íþróttahúsinu án þess
að troða. Það kveikti tvímælalaust
í honum því hann hefur náttúru-
lega ekki margar fyrirmyndir hér
á Íslandi nema kannski Egil,“
segir Lárus.
Lárus vonast til þess að Ragnar
haldi áfram á þeirri braut sem
hann komst á í vetur.
„Það skiptir máli að halda
honum að körfubolta því það er
eins með hann og alla aðra að það
er hægt að búa til áhuga. Ég er
mjög bjartsýnn en það er undir
honum komið hvað hann ætlar að
ná langt. Hann getur farið
nákvæmlega eins langt og hann
vill.“
Pétur kom
á nokkrar
æfingar
milli jóla
og nýárs.
Hann sagði
honum
meðal ann-
ars að fara
aldrei út úr
íþróttahús-
inu án þess
að troða.
Það kveikti
tvímæla-
laust í
honum.