Fréttablaðið - 06.04.2008, Síða 85
SUNNUDAGUR 6. apríl 2008 25
„Ég er búinn að spá í þetta í svolít-
inn tíma enda er ég forfallinn
Bubba-aðdáandi,“ segir Trausti
Már Ingason sem er að undirbúa
spurningakeppni um Bubba Mort-
hens sem hann vonast til að halda í
lok þessa mánaðar.
Trausti hefur auglýst eftir þátt-
takendum á heimasíðunni Bubbi.is
en hingað til hefur eingungis einn
aðili skráð sig. „Þetta er náttúru-
lega bara gert í gamni en ég bjóst
við að það væri aðeins meiri áhugi.
Það eru mjög margir búnir að
koma og segja „frábær hugmynd“
en svo vill enginn vera með. Það
eru margir sem gefa sig út fyrir að
vera Bubba-sérfræðingar og ég
ætlaði að leyfa þeim að spreyta sig
núna. Þeir eru kannski eitthvað
hræddir en fólk getur alveg haft
brennandi áhuga á einhverju þótt
það viti ekki mikið um það. Það
þarf ekkert að skammast sín fyrir
það,“ segir hann og skorar á fólk
að taka þátt í skemmtilegum leik.
Trausti segist ekki hafa lagt
mikla vinnu í spurningarnar því
flestar upplýsingarnar um Bubba
séu þegar til í kollinum á honum.
„Þegar maður er búinn að fylgjast
með Bubba í yfir tuttugu ár þá er
þetta fljótt að koma en ég leita mér
upplýsinga til að vera alveg viss,“
segir hann.
Sigurvegarinn fær nafnbótina
Bubbasérfræðingurinn 2008 og
hugsanlega verðlaunaplatta og
áritaða mynd af Bubba. Áhuga-
samir geta sent Trausta nafn sitt
og símanúmer á blindsker@hive.
is. - fb
Skorar á fólk í
Bubba-keppni
TRAUSTI MÁR INGASON Einn harðasti Bubba-aðdáandi Íslands er að undirbúa spurn-
ingakeppni um goðið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HRINGSJÁ
Hringsjá veitir endurhæfi ngu til náms og starfa. Hringsjá er ætluð einstaklingum
eldri en 18 ára, sem vegna heilsufarsvanda, fötlunar, áfallasögu og/eða félagslegra
aðstæðna hafa ákveðið að endurmeta og styrkja stöðu sína og að efl a persónulega
færni.
Fullt nám er 3 annir
Inntaka í fullt nám fer fram tvisvar á ári
Umsóknarfrestur fyrir haustönn er til 16. maí 2008.
Kennd er tölvunotkun, bókfærsla, stærðfræði, íslenska, enska, félagsfræði, tjáning,
myndlist og námstækni.
Veitt er náms- og starfsráðgjöf, kennd gerð starfsumsókna, þjálfuð atvinnuviðtöl og
unnið að sjálfsstyrkingu. Ráðgjöf og stuðningur vegna lestrarerfi ðleika, námserfi ðleika,
prófkvíða og annarra persónulegra þátta.
Kennt er í litlum hópum, námið er einstaklingsmiðað og áhersla lögð á þægilegt
náms-og starfsumhverfi .
Námskeið
Inntaka á námskeið fer fram allt skólaárið
• Grunnnámskeið í tölvunotkun, 30 kennslustundir
• Excelnámskeið, 30 kennslustundir
• Bókhaldsnámskeið, 30 kennslustundir
• Ýmis önnur námskeið
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Hringsjár www.hringsja.is eða í skólanum.
Frekari upplýsingar veita Helga Eysteinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi helga@hringsja.is
og Linda Skúladóttir, forstöðumaður, rlinda@hringjsa.is
HRINGSJÁ, Hátúni 10 d., s: 552-9380/562-2840, www.hringsja.is