Fréttablaðið - 06.04.2008, Síða 88
28 6. apríl 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Boltinn er hjá okkur
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting í 3 nætur á hóteli með
morgunverði og miði á leikinn.
2.–5. maí
Barcelona – Valencia
79.900 kr.
Verð á mann í tvíbýli
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
18.–20. apríl
Fulham – Liverpool
39.900 kr.
Verð á mann
Tilboð!Flug ogmiði á leikinn
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson fann
sig heldur betur vel í gær á þriðja hring
Estoril-mótsins. Hann lék hringinn í gær á 66
höggum eða fimm höggum undir pari. Hann
er því samtals á átta höggum undir pari á
mótinu. Hringur Birgis var næstbesti hringur
allra keppenda í gær. Hann fékk sjö fugla og
tvo skolla. Birgir Leifur er fyrir vikið í 21. sæti
fyrir lokahringinn.
„Maður er bara kátur núna. Það er ekki
annað hægt eftir svona góðan hring,“ sagði
Birgir Leifur kátur við Fréttablaðið í gær en
hann segir nauðsynlegt að fá svona góðan
hring til þess að auka sjálfstraustið hjá sér.
„Því er ekki að neita að það hefur verið
skortur á sjálfstrausti hjá mér. Það má rekja
til ýmissa þátta eins og stutta spilsins sem
hefur ekki verið nógu gott. Svo þegar púttin
detta hjá manni eins og á þessum hring þá
fær maður sjálfkrafa meira sjálfstraust. Þegar
maður hefur trú á því að púttin detti ofan
í er maður í betri málum. Þetta er vonandi
það sem koma skal hjá mér.“
Birgir Leifur hefur tekið púttin mikið í gegn
hjá sér og hann vonast til að það muni skila
sér í betri árangri á næstu mótum.
„Ég hef verið að vinna í púttunum alveg
síðasta árið. Púttin skipta svo svakalega
miklu máli og þessi aukavinna er að skila sér
hjá mér á margan hátt,“ sagði Birgir Leifur
sem vonast eftir öðrum álíka góðum hring
hjá sér í dag.
„Það er vonandi. Ég hef í það minnsta
fulla trú á því að ég geti náð inn öðrum
svona hring. Við sjáum hvað setur,“ sagði
Birgir.
Fram undan hjá Birgi er síðan smáhlé
en hann kemst ekki inn á næsta mót sem
haldið er í Kína. „Maður
verður bara að nýta fríið
eins vel og maður
getur og æfa sig.
Svo verður
maður
að grípa
gæsina
á næsta
móti sem
ég fæ að
keppa
á,“
sagði
Birgir
Leif-
ur að
lokum.
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON: LÉK Á FIMM HÖGGUM UNDIR PARI Í GÆR
Hefur fengið sjálfstraustið á ný
FÓTBOLTI Brasilíumennirnir Isma-
el da Silva Francisco og Carlos
Alexandre Bernal, sem spila með
Þrótti, segja í viðtali við íþrótta-
blaðið Sport að þeir hafi lent í
fangelsi vegna fordóma dyra-
varða á Vegamótum.
„Við höfðum ekkert gert af
okkur annað en að vera af öðrum
kynþætti og þjóðerni og dyra-
vörðunum var ekki hlýtt til okkar
af þeim sökum. Þetta eru kyn-
þáttafordómar af verstu sort,“
segir Ismael við Sport.
Ítarlegt viðtal við þá félaga
má finna í Sport sem er í miðju
Fréttablaðsins í dag.
Þar eru einnig birtar niðurstöð-
ur í vali á kynþokkafyllstu leik-
mönnum N1-deildanna og viðtal
við hæsta körfuboltamann lands-
ins sem ekki margir vita af. Svo
má finna viðtal við efnilegasta
handboltamann landsins í blaðinu
og einnig er nýja frjáls -íþróttaað-
staðan í Laugardal skoðuð. - hbg
Brassarnir hjá Þrótti:
Fangelsaðir
vegna fordóma
FRANCISCO OG BERNAL Una hag sínum
ágætlega á Íslandi þrátt fyrir handtöku
fljótlega eftir komuna til landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Enska úrvalsdeildin:
ARSENAL - LIVERPOOL 1-1
0-1 Peter Crouch (42.), 1-1 Nicklas Bendtner
(54.).
ASTON VILLA - BOLTON WANDERERS 4-0
1-0 Gareth Barry (9.), 2-0 Gabriel Agbonlahor
(56.), 3-0 Gareth Barry (60.), 4-0 Marlon Hare-
wood (85.).
BLACKBURN ROVERS - TOTTENHAM 1-1
0-1 Dimitar Berbatov (7.), 1-1 Morten Gamst
Pedersen (30.).
FULHAM - SUNDERLAND 1-3
0-1 Danny Collins (45.), 0-2 Michael Chopra
(54.), 1-2 David Healy (74.), 1-3 Kenwyne Jones
(76.).
MANCHESTER CITY - CHELSEA 0-2
0-1 Richard Dunne sjálfsmark (6.), 0-2 Salomon
Kalou (53.).
NEWCASTLE UNITED - READING 3-0
1-0 Obafemi Martins (18.), 2-0 Michael Owen
(43.), 3-0 Mark Viduka (58.).
WIGAN ATHLETIC - BIRMINGHAM CITY 2-0
1-0 Ryan Taylor (15.), 2-0 Ryan Taylor (55.)
STAÐAN:
Man. United 32 24 4 4 68-15 76
Chelsea 33 22 8 3 58-23 74
Arsenal 33 20 11 2 63-27 71
Liverpool 33 17 12 4 57-25 63
Everton 32 17 6 9 48-27 57
Portsmouth 32 15 8 9 46-33 53
Aston Villa 33 14 10 9 56-44 52
Blackburn 33 13 12 8 43-39 51
Manchester 33 13 10 10 37-39 49
West Ham 32 12 8 12 35-39 44
Tottenham 33 10 10 13 62-56 40
Newcastle 33 10 8 15 40-58 38
Sunderland 33 10 6 17 32-50 36
Wigan Athletic 33 9 7 17 30-47 34
Middlesbrough 32 8 10 14 28-45 34
Reading 33 9 5 19 37-61 32
Birmingham 33 7 9 17 38-51 30
Bolton 33 6 8 19 30-52 26
Fulham 33 4 12 17 30-56 24
Derby County 32 1 8 23 16-67 11
Tveir leikir fara fram í
ensku úrvalsdeildinni
í dag.
Manchester United
sækir Middlesbrough
heim klukkan
13.30 og klukkan
15 tekur Everton
á móti botnliði
Derby á
Goodison
Park.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Portsmouth, lið Her-
manns Hreiðarssonar, spilar til
úrslita í ensku bikarkeppninni í ár
eftir sigur á WBA, 1-0, í undanúr-
slitum á Wembley. Það var Nwank-
wo Kanu sem skoraði eina mark
leiksins. Andstæðingurinn í úrslit-
unum verður 1. deildarlið en
Barnsley og Cardiff mætast í síð-
ari undanúrslitaleiknum í dag.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1939
sem Portsmouth kemst í úrslit.
„Þetta var alveg meiriháttar.
Þessi dagur er búinn að vera alveg
ótrúlegur. Maður er ekkert búinn
að ná sér niður enn þá,“ sagði Her-
mann við Fréttablaðið eftir leik í
gær en hann sagði stemninguna
hafa verið lyginni líkasta allan
daginn.
Bjórdósum hent í rútuna
„Þegar við komum keyrandi að
vellinum snemma voru þúsundir
manna að taka á móti okkur. Annar
helmingurinn var að fagna okkur
og hinn helmingurinn kastaði bjór-
dósum í rútuna. Þetta var æðis-
legt,“ sagði Hermann léttur en
hann segir ólíkt skemmtilegra að
vera að keppa um titil en falla líkt
og hann hefur lent í fjórum
sinnum á ferlinum.
„Bikarinn er svakalega
skemmtileg keppni og við
ætlum okkur alla leið. Ef
við spilum eins og menn í
úrslitunum þá verður
það góður dagur,“
sagði Hermann
sem meiddist í
síðasta leik
liðsins en gat
samt spilað.
„Meiðslin
háðu mér ekkert í
leiknum en ég er
ekkert sérstakur
núna eftir leikinn.“
Hermann og félagar
segjast ekki vera búnir
að segja sitt síðasta orð í
deildinni en Hermann
segir að þeir muni bíta frá
sér í þeim leikjum sem
eftir eru.
„Við ætlum að taka inn
eins mörg stig og mögulegt er
og svo sjáum við hverju það skil-
ar okkur. Það eru 18 stig í pottin-
um og við ætlum að taka lungann
af þeim stig-
um,“ sagði Her-
mann að lokum
en hann bjóst
ekki við mikl-
um fagnaðarlátum um kvöldið
enda leikur næsta þriðjudag.
Harry Redknapp, stjóri Port-
smouth, var svo æstur á leiknum
að hann steingleymdi að veðja á
hesta í stórri keppni sem fór fram
í gær en það klikkar aldrei hjá
stjóranum. Nígeríumaðurinn
Kanu var eðlilega kátur með mark-
ið og sigurinn.
„Þetta var auðvelt færi sem ég
gat ekki klúðrað,“ sagði Kanu en
hann lék áður með WBA. „Þeir
byrjuðu leikinn betur en við en
Sol, Sylvain, Glen og Hermann
voru frábærir í öftustu línu.“
henry@frettabladid.is
Alveg ótrúlegur dagur
Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth eru komnir í úrslit ensku bikar-
keppninnar eftir sigur á WBA, 1-0, í undanúrslitaleik sem spilaður var á Wemb-
ley. Hermann segir það hafa verið ótrúlega upplifun að spila á Wembley.
MARKI FAGNAÐ
Kanu fagnar hér
sigurmarki sínu í
leiknum. NORDIC PHOT-
OS/GETTY IMAGES
Í BARÁTTUNNI Hermann Hreiðarsson átti fínan leik í gær og lætur hér einn leikmann
WBA finna fyrir því á Wembley í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Önnur orrustan í sjö daga stríði Arsenal
og Liverpool fór fram á Emirates-vellinum í
London í gær. Líkt og í Meistaradeildinni í
vikunni lyktaði leiknum með jafntefli, 1-1.
Peter Crouch kom Liverpool yfir en Nicklas
Bendtner jafnaði metin fyrir heimamenn
og þar við sat.
Arsenal varð þar með enn af dýrmætu
stigunum og er að missa af lestinni í bar-
áttunni um enska meistaratitilinn þar
sem Man. Utd. og Chelsea fara mik-
inn. Þrátt fyrir jafnteflið neitar
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
að játa sig sigraðan í baráttunni
um titilinn.
„Stærðfræðin segir að bar-
áttan sé ekki töpuð og þess
vegna gefst ég ekkert upp.
Margt veltur á úrslitum hinna lið-
anna. Ég sagði að við þyrftum að minnsta
kosti fimm sigra og jafntefli til þess að
vinna titilinn. Annars er ég mjög pirrað-
ur því við fengum svo sannarlega færin
til þess að klára leikinn,“ sagði Wenger en
hann gerði fimm breytingar á liðinu frá leiknum í
Meistaradeildinni gegn Liverpool. Félögin
mætast þriðja sinni á sjö dögum á þriðjudag-
inn og í það skiptið á Anfield.
Chelsea-vélin heldur sinni siglingu og
Man. City var lagt í gær, 2-0. „Við erum
búnir að vinna um 80 prósent leikja okkar
síðustu þrjá mánuði. Það er meistaralegur
árangur og við erum sífellt að bæta okkur.
United stendur sig líka vel en ég geri ekki
ráð fyrir að liðið vinni alla þá leiki
sem það á eftir. Við munum
halda áfram að gera það sem
við gerum best og svo sjáum
við hverju það skilar okkur,“
sagði Avram Grant, stjóri
Chelsea.
- hbg
Aftur jafntefli hjá Arsenal og Liverpool þegar liðin mættust í ensku deildinni:
Arsenal er að missa af lestinni
VONBRIGÐI Mathieu Flamini og
félagar í Arsenal voru hnípnir
eftir jafnteflið á heimavelli gegn
Liverpool. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Erla Dögg fer til Peking
Það fjölgaði í íslenska ólympíuhópnum í gær þegar sund-
konan Erla Dögg Haraldsdóttir tryggði sér þátt-
tökurétt á Ólympíuleikunum í Peking næsta
sumar. Hún synti þá 200 metra fjórsund á
tímanum 2:18,74 mínútum. Tíminn er einnig
Íslandsmet hjá Erlu Dögg. Erla náði einnig
Ólympíulágmarki í 100 metra bringusundi
en þeim árangri náði hún á föstudaginn.
Erla Dögg er þriðja sundmaðurinn sem
nær að tryggja sér þátttökurétt á Ólym-
píuleikunum en áður höfðu Örn Arnarson
og Ragnheiður Ragnarsdóttir tryggt sér
farseðilinn til Peking.