Fréttablaðið - 20.04.2008, Page 20
MENNING 4
B likur eru á lofti í gömlu Evrópu. Skugginn er byrjaður að læðast aftur yfir Balkanskaga og
eldar loga í Danmörku. Deilur Serba og Albana
vekja meiri sorg en furðu, líkt og fólk sé reiðubúið
að kasta sér aftur í gin eyðileggingarinnar, aðeins
örfáum árum eftir að stríði lauk á sama vígvelli. Ef
eitthvað er, má segja Dani flækta í jafn ófyrirsjáan-
lega atburðarás. Það breytir því ekki að meðan
eldarnir loga í miðborg
Kaupmannahafnar,
gefa þeir sér tíma til að
fylgjast grannt með
niðursveiflu fjármála-
markaðar í fyrrum
nýlendu sinni, og leggja
á ráðin um hvernig þeir
geti hagnast á olíu við
strendur Grænlands.
Raunveruleikinn fer
sínu fram.
En hvað er til ráða?
Eru orðin kannski til
alls fyrst? Ekki er
auðvelt að fóta sig á
ísbreiðu tungumálsins.
Þar eru sprungurnar
líka djúpar og kaldar.
Fegurstu orðin fela oft í sér mestu hætturnar, hvort
heldur fyrir einstaklinga eða þjóðir, svo ekki sé
minnst á fagurlega ofnar snörur hinna glæstu
hugmyndakerfa. Sjálfsævisaga á borð við Veröld
sem var eftir Stefan Zweig dregur í það minnsta
ekki úr þeim grun.
Bókin er skrifuð skömmu fyrir lok síðari heims-
styrjaldar og greinir frá gangi mála í Evrópu frá
lokum nítjándu aldar þar til Englendingar segja
Þýskalandi Hitlers stríð á hendur. Þegar kemur að
lýsingu á aðdraganda tveggja heimsstyrjalda og
hvernig Evrópa tekur heljarstökk úr dýrkeyptu
Sarajevo-glappaskoti í grímulaust niðurrif mennsku
og menningar, á bókin sér enga líka. Hið sama má
segja um lýsinguna á Evrópu og þeim sem þar búa
áður en óveðursskýin birtast, flestum að óvörum, á
sólríkum degi við strönd. Vínarborg kemur einnig
talsvert við sögu en þar er Zweig fæddur og
uppalinn. Um aldamótin nítján hundruð er Vín
sannkölluð heimsborg, hún sem dregur allt til sín og
þar sem drýpur af hverju strái. Meðan friður ríkir,
ferðast Zweig líka til annarra landa í álfunni og
drekkur í sig fáein tungumál, samtímamenningu og
sögu.
Lesanda er þó ekki aðeins gefið tækifæri til að
skynja veröld sem var í lífi einstaklinga og þjóða.
Um er að ræða jafn einstæða heimild um þroska-
sögu rithöfundar og viðvarandi glímu hans við allt
það sem kann að ógna frelsi hugsunar hans. Gyðing-
urinn, friðarsinninn, húmanistinn, alþjóðasinninn og
rithöfundurinn Zweig varar sig á orðum og hug-
myndakerfum öðru fremur, og það talsvert löngu
áður en nasistar komast til valda. Ólíkt mörgum
stórskáldum millistríðsáranna, stenst Zweig meira
að segja freistingu kommúnisma, en með naumind-
um þó. Líkt og hendir marga evrópska rithöfunda og
listamenn á þessum tíma, yfirgefur Zweig heim-
kynni sín og þar með lífið eins og hann þekkir það.
Árið 1941, eftir að hafa dvalið um hríð á Englandi og
í Bandaríkjunum, er hann kominn til Brasilíu. Þar
lýkur hann við að skrifa sjálfsævisöguna og gerir
heiðarlega tilraun um líf útlagans. Ári síðar fremja
hann og seinni eiginkona hans, Elizabeth Charlotte,
sjálfsmorð.
Hver er þá lærdómurinn? Það er líklega til marks
um alvöru þessarar bókar og mikilvægi, að höfund-
ur hennar ruglast ekki á list og raunveruleika. Í því
efni á hann sér læriföður. Það er franski rithöfund-
urinn og friðarsinninn Romain Rolland sem segir
eftirfarandi við Zweig, ári áður en fyrri heimsstyrj-
öldin brýst út: „Listin getur verið oss til huggunar í
einkalífi voru, /.../ en gagnvart raunveruleikanum
má hún sín einskis.“ *
*(Veröld sem var, þýð. Halldór J. Jónsson og Ingólfur Pálmason,
Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1958, s. 186).
RIDDARI Á ÍSBREIÐU
Birna Bjarnadóttir skrifar frá Winnipeg
Stefan Zweig
V
ið erum bara að vakna upp
við það að við erum tíu ára.
Það kom öllum á óvart,“ segir
Jóhannes. Það þótti glapræði
þegar það fréttist að tveir
nördar, áhugamenn um klassíska tón-
list, væru búnir að stofna plötubúð á
Barónsstíg. „Það var bara hlegið að
okkur um allan bæ,“ heldur hann áfram.
„Þetta var bara einhver stórkostleg
fantasía sem upphófst á bar: tveir menn
að horfa á fótbolta og í hálfleik var bara
ákveðið að kýla á það.“
„Manchester United var að spila,“
segir Lárus. „Jói var verslunarstjóri í
Japis og ég var einn af bestu kúnnun-
um, kom alltaf á föstudögum. Það kom
mér alltaf á óvart hvað ég skuldaði
mikið, svo ég borgaði inn á og tók út enn
þá meira. Við vorum á kafi í tónlist og
erum búnir að vera vinir síðan við
vorum krakkar. Kynntumst í skákinni
og langaði svo mikið að gera þetta.“
Fyrir tíu árum voru klassískar deildir
í Skífunni og Japis og þegar við bættist
það sem vantaði í markaðinn í 12 tónum
fullyrða þeir félagar að á örlitlum bletti
í Reykjavík hafi verið best úrval af
klassískri tónlist við Atlantshaf. Núna
er klassíska deildin í Skífunni svipur
hjá sjón, Japis horfið í sinni gömlu
mynd og þeir tveir einir eftir: „Við
fórum af stað með einfalda viðskipta-
hugmynd. Við höfðum brennandi áhuga
á tónlist og hugsuðum þetta út frá kúnn-
anum. Við erum ennþá með fullt af
kúnnum sem komu þarna inn á fyrstu
vikunum og hafa verið hér síðan. Við
erum með kúnna sem hafa komið hing-
að á fimmtudögum, hvern einasta
fimmtudag, í tíu ár. Þetta er mjög trygg-
ur hópur,“ segir Lárus.
Eftir að 12 tónar komust á legg – fimm
ára – fóru þeir Jóhannes út í næsta vers:
ef þú selur plötur, því þá ekki að gefa út
líka? „Það þróaðist þannig að við gáfum
út allt – nema klassíska tónlist,“ segir
Lárus. „Nú er þetta að breytast, við
ætlum að gefa út fáa titla en gefa bara
út það besta: toppinn. Sem dæmi erum
við að gefa út disk númer tvö með Ísa-
fold. Svo erum við að auka við okkur í
flokki afburðahljóðfæraleikara sem við
ætlum að gefa út.“ Lárus segir að hér á
landi séu nokkrir einstaklingar sem eru
slíkir afburðahljóðfæraleikarar að þeir
gætu orðið alþjóðlegar stjörnur: „Ef
það er einhver mælikvarði,“ segir hann.
„Þetta fólk þarf stuðning. Það vita allir
hvað Björk hefur gert fyrir Ísland. Ef
við eignuðumst alþjóðlega stjörnu í
klassíska geiranum þá hefði það gríðar-
leg áhrif fyrir landið.”
Þeir segjast hafa gefið út geysimikið
af plötum á stuttum tíma til að sýna
hraðan vöxt fyrir alþjóðlega dreifingu
og var mikil breidd í útgáfunni. Nú
hyggjast þeir einbeita sér að langtíma-
verkefnum.
12 tónar settu á stofn búð í Kaup-
mannahöfn sem nú er hætt rekstri:
„Danmerkurævintýrið,“ segir Lárus,
„var dýrt einkanám, en það er ekki búið.
Við þurftum að fara út með okkar vöru.
Það er eðli okkar útgáfu, hún er alþjóð-
leg. Við þekktum vel til í Danmörku svo
það lá beint við. Eftir stendur að allir
þekkja merkið okkar, vörur okkar fást
alls staðar og við rekum þar markaðs-
skrifstofu.“ Þeir segjast gera lítið af því
að endursemja um útgáfur, markmiðið
sé að byggja upp vörumerkið 12 tóna.
Jóhannes segir að útgáfan verði líklega
svipuð og í fyrra en vegna markaðs-
setningar á Evrópumarkaði verði þeir
að hugsa vinnsluna upp á nýtt. Allt taki
lengri tíma, aðdragandinn sé lengri.
Þeir eru í samstarfi við fyrirtækið
Cargo sem gefur út undir vörumerkinu
12 tónar í Evrópu. Fram undan er
stærsta verkefni 12 tóna til þessa: um
allan heim diskur með bandarísku
hljómsveitinni Brian Jonestown
Massacre í byrjun sumars á vegum 12
tóna.. Meðal annars efnis sem þeir gefa
út á næstunni er vínyl-útgáfa af Engla-
börnum Jóhanns Jóhannssonar en
útgáfa á því formi færist í aukana. Í til-
efni af afmælinu þann 27. kemur út
multichannel/surround-diskur með Ísa-
fold. „Það verður ekki fullkomnara,“
segir Jóhannes og bætir við að viðræð-
ur séu í gangi um stóraukna dreifingu á
klassískum armi útgáfunnar. Afmælis-
árið verður helgað ýmsum uppákomum,
tónleikum og myndlistarsýningum.
Þann 10. maí verður á Skólavörðustígn-
um fluttur mars sem Jóhannes fann í
safni í Dresden eftir Wilhelm Hugo en
þá verða 270 ár frá því hann var fluttur,
eina verk þessa höfundar sem til er: „Þú
verður að koma og heyra hann.“
TÓLF TÓNA TAL
Jóhannes Ágústsson og Lárus Jóhannesson hafa rekið verslun sína og útgáfu, 12 tóna, í tíu ár.
Fyrirtækið hefur verið til húsa á Skólavörðustíg um langt árabil. Þar hafa þeir félagar sinnt
áhugamönnum um tónlist af öllu tagi. Lárus og Jóhannes líta yfi r farinn veg og til framtíðar.
TÓNLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Lalli og Jói í 12 tónum . MYND/FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR