Fréttablaðið - 20.04.2008, Qupperneq 23
7 MENNING
S
ýningin verður að teljast
stóráfangi á ferli Ólafs
Elíassonar en myndlistar-
heiminum er í fersku
minni sýning hans í Tate.
Hann hefur verið æ meira áber-
andi í forystusveit samtímalista-
manna á Vesturlöndum. Stjórnand-
inn Glenn D. Lowry sparar ekki
stóryrði í ávarpi sínu um sýning-
una en hún verður á tveimur stöð-
um í New York og verður uppi til
júníloka, en fer þá til Dallas, þaðan
til Chicago og endar för sína í
Sydney sumarið 2009.
Take Your Time kallar Ólafur
sýninguna Dokaðu við og vísar
heitið til þess að hann kallar á
áhorfandann að finna sig í verkun-
um, hann hefur um langt skeið
talað ítrekað fyrir rétti og skynjun
áhorfandans, sem hann leiðir á vit
furðuheims skynjunar í ljósi, litum
og rými. Fyrir þessa sýningu hefur
hann bætt fjölda verka inn í safnið
sem sýnt var í San Francisco en
alls eru 38 verk á sýningunni í
MOMA og P.S.1, 24 bætast við og af
þeim eru 6 unnin sérstaklega fyrir
sýninguna. Þau eru af ýmsu tagi:
þarna eru uppi stórar svarthvítar
ljósmyndaseríur hans frá Íslandi,
eldri verk sem eru á mörkum
skúlptúrs og innsetningar sem
mörg vísa beint til landsins sem
hann er stöðugt að taka til með-
ferðar, auk rýmisverka af ýmsu
tagi sem leika sér með skynjun
birtu og litar. Þeirra stærst er verk
sem er samnefnt sýningunni frá
þessu ári, loftfastur spegill sem
snýst og kollvarpar skynjun þeirra
sem undir standa. Verkin koma
víða að; mörg úr eigu safna eða
safnara, önnur frá galleríum sem
selja verk Ólafs eða úr eigu hans
sjálfs. Sýningin er kostuð af fjölda
virtra aðila úr bandarísku menn-
ingarstarfi auk danskra aðila.
Enginn íslenskur aðili kemur að
sýningunni sem vekur nokkra
furðu miðað við þá ríku áherslu
sem Ísland nýtur í verkunum á
sýningunni.
Í fréttatilkynningu MOMA er
ekki dregin dul á vinnslu hans með
íslenska náttúru: þoka, vatn,
vatsnföll, steinn og mosi eru virkir
þættir í myndsköpun hans sem
settir eru í nýja rýmislega vídd.
Rétt eins og gríðarstór verk þar
sem ljós og litur gera skynjun að
leiksoppi aðstæðna.
Sýningunni fylgir stór bók sem
gerir grein fyrir ferli þessa áhuga-
verða listamanns sem hefur á und-
anförnum árum unnið á svipaðan
máta og málarar endurreisnarinn-
ar með sitt stóra verkstæði í Berlín.
Ólafur hefur í fjölmiðlum vestan-
hafs og austan viðurkennt að það
hafi hjálpað við undirbúning útrás-
arinnar til vesturs að hann sé nú að
flytja vinnustofur sínar og því hafi
margt komið til álita við frágang
verka á sýninguna.
Stórbók helguð sýningunni
kemur út og er haldbesta yfirlit
sem nú er fáanlegt um feril Ólafs
og verk hans. Hún geymir myndir
af 70 helstu verkum hans, greinar
eftir bandaríska listfræðinga og
viðtal við listamanninn.
Sýningin mun vafalítið vekja
gríðarlega athygli og ekki bætir úr
fyrirhugað Fossaverkefni Ólafs
sem hefur verið í burðarliðnum í
nokkurn tíma og kemur upp í
sumar á mörgum stöðum í New
York. Uppsetning þess mun halda
áfram athyglinni á Ólafi langt fram
á haust. Í kringum sýningarhaldið í
MOMA verða margs konar kynn-
ingar og fyrirlestrar sem tengjast
Ólafi og verkum hans og er ekki að
sjá annað en að mikill áhugi sé á
dagskránni því þegar er orðið fullt
á marga þessara viðburða.
360° room for all colours/ 360° herbergi
fyrir alla liti (2002) Ryðfrítt stál, ákasts-
dúkur, flúrljós, tré og stjórntæki. (320
x 815.3 x 815.3 sm). Einkaeign. Með
leyfi Tanya Bonakdar Gallery, New York.
Innsetning í MOMA 2008.
MYND/MATTHEW SEPTIMUS. MEÐ GÓÐFÚSLEGU LEYFI MOMA
OG P.S.1.
© 2008 Ólafur Elíasson
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur fagnaði þeim tíma-
mótum á föstudag að nú er komin út fimm-
tugasta bókin í NEON-röðinni. Hefur undir
hennar merkjum komið út mikill fjöldi þýddra
samtímabóka úr mörgum deildum jarðar, auk
nokkurra innlendra verka sem fengu þar skjól,
ritgerðasöfn Gyrðis Elíassonar, Einars Más og
Péturs Gunnarssonar, auk fyrstu verka Guð-
rúnar Mínervu. Þar hafa margir þýðendur lagt
gjörva hönd á snúning verka á íslensku og er
safnið allt hið fegursta.
Breska bókmenntatímaritið Granta fagnar
um þessar mundir hundraðasta og fyrsta
heftinu en það hefur um margra ára skeið
verið deigla engilsaxneskra bókmennta og
greinaskrifa. Þar hafa margir af yngri kynslóð
höfunda sem skrifa á ensku stigið sín fyrstu
og mikilvægustu skref og tryggir slóðin þeim
snemmbæra virðingu því tímaritið hefur
háan standard í öllu sem það birtir.
Á öllum sviðum lífsins
ekki missa af frábærum sýningum
„Eitursnjallt leikrit."
Gerður Kristný,
Mannamál/Stöð 2, 10/2
„Þetta var ekki hefðbundin kvöldvaka."
Elísabet Brekkan, FBL, 13/2
Engisprettur
e. Biljana Srbljanovic
Sýningum lýkur í vor
PBB FBL , 29/3
Sólarferð
e. Guðmund Steinsson
Hárbeitt verk í
hrárri sýningu
„Þetta er vel unnin
sýning, skemmti-
leg og óvenju skýrt
hugsuð.”
MK, MBL 8/4
„Þau eru frábær, öll fjögur…
Þetta er hörkugóð
sýning...!“
SA, tmm.is
Bráðfyndið og
ágengt gamanleikrit
Vígaguðinn
e. Yasminu Reza
Sá ljóti
e. Marius von Mayenburg
,Hafi maður efast um að
Sólarferð Guðmundar væri rétta
verkið til að endurnýja kynni
íslenskra áhorfenda við texta
hans þá sópar sýningin öllum
efasemdum úr huganum."
MK, MBL, 17/2.
Ástin er diskó, lífið er pönk
e. Hallgrím Helgason
Nýr íslenskur söngleikur. Frumsýning 1. maí