Fréttablaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 4
4 23. maí 2008 FÖSTUDAGUR
Akureyri
Vík
Egilsstaðir
Selfoss
Hveragerði
Hafnarfjörður
Neskaupstaður
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Súðavík
Ísafjörður
Akranes
Njarðvík
Sandgerði
Hreðavatnsskáli
Reykjavík
Þú sparar á Orkustöðvunum
Net Orkustöðvanna umhverfis landið þéttist sífellt til enn frekari
hagsbóta fyrir almenning. Kynntu þér hvar Orkustöðvarnar eru og
hvað bensínið er ódýrt þar.
SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR!
www.orkan.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
IK
SVÍÞJÓÐ Maður var handtekinn
þar sem hann reyndi að fara með
sprengiefni í gegnum öryggishlið
að kjarnorkuverinu í Oskarshamn í
Svíþjóð í fyrradag.
Síðdegis sama daga var svo
annar maður handtekinn grunaður
um að hafa skipulagt hryðjuverk í
kjarnorkuverinu.
Sprengiefnið sem fannst er sams
konar og var notað í hryðjuverkun-
um í London fyrir þremur árum, að
sögn Aftenposten.
Mennirnir voru látnir lausir
í gær þar sem ekki voru taldar
nægilegar sannanir gegn þeim. - ghs
Kjarnorkuver í Svíþjóð:
Tveir grunaðir
um hryðjuverk
KJARNORKUVERIÐ Mennirnir eru grun-
aðir um að skipuleggja hryðjuverk.
UMHVERFISMÁL Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, tók þátt í
umræðuþætti á vegum sjónvarps-
stöðvarinnar CNN og tímaritanna
Time og Fortune á miðvikudag.
Rætt var um orkumál, hagvöxt í
heiminum og loftslagsbreytingar.
Umræðurnar eru liður í þátta-
röð sem nefnist Principal Voices
og hefur verið rætt við vísinda-
menn og forystumenn í viðskipta-
lífinu. Ólafur Ragnar er fyrsti
þjóðhöfðinginn sem boðin er þátt-
taka í umræðunum.
Umræðurnar fóru fram í Doha,
höfuðborg Katars, og eru tengdar
viðtalsþætti CNN sem tekinn var
upp á Íslandi. - kóp
Ólafur Ragnar Grímsson:
Í spjalli við er-
lenda fjölmiðla
BARNAVERNDARMÁL „Þessi þróun veldur verulegum
áhyggjum,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu. Á árunum 2004 til 2007 fjölgaði
tilkynningum um vanrækslu á umsjón barna og eftir-
liti um 657 mál, eða úr 1.513 í 2.170 yfir allt landið.
Bragi segir verulegan hluta þessara tilteknu tilkynn-
inga kominn til vegna fíkniefnaneyslu foreldra.
Bragi segir að samhliða þessari fjölgun hafi börn-
um í tímabundnu fóstri fjölgað en hann segir tals-
verðan hluta þeirra barna sem eru send í slíkt fóstur
börn fíkniefnaneytenda. Í fyrra voru alls 138 börn
í slíku fóstri yfir allt landið á vegum barnaverndar-
nefnda, samkvæmt bráðabirgðatölum úr óbirtri árs-
skýrslu Barnaverndarstofu. Heildarfjöldi barna í
fóstri á vegum barnaverndaryfirvalda var í fyrra
357 samtals.
Markmiðið með tímabundnu fóstri er að barnið
fari heim á ný og eru foreldrar með forsjá barnsins
á meðan það er í fóstri.
Í tölum frá Barnaverndarstofu kemur einnig
fram að börn sem voru í varanlegu, tímabundnu eða
styrktu fóstri á Íslandi voru samtals 308 árið 2003.
Sá fjöldi var óbreyttur árið 2004 en árið 2005 voru
börnin orðin 326 talsins. Árið 2006 voru þau 343 en í
fyrra voru börn í fóstri samtals 357.
Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir SÁÁ, segir
að mikilvægt sé að fólk sé ekki fælt frá því að leita
sér aðstoðar til að sigrast á fíknisjúkdómum með
fordómum. Stór hluti þeirra sem fari í meðferð sé
ungt fólk sem eigi ung börn. Nái fólk að vinna bug
á fíkninni geti það orðið börnum sínum góðir for-
eldrar og því eigi að vinna að því að koma fólkinu
til hjálpar, ekki síst barnanna vegna. Í vetur var
byrjað að bjóða upp á nýtt úrræði innan SÁÁ fyrir
börn alkóhólista en Valgerður segir þann hóp vera í
mestri hættu á að lenda í neyslu síðar meir á ævinni.
Miðað er við að yngstu börnin sem þar fái aðstoð séu
átta ára.
„Börnin mín gengu í gegnum helvíti vegna mín,“
segir Katrín Ósk Adamsdóttir, 35 ára móðir tveggja
barna sem náði tökum á vímuefnaneyslu sinni eftir
mikla baráttu.
Katrín segir börnin sín tvö hafa mestallan hluta
ársins 2002 verið í tímabundnu fóstri. Katrín segir
að þegar hún fékk börnin sín aftur hafi hjálpin sem
starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur veitti henni
verið sér ómetanleg í baráttunni við að ná aftur
tökum á lífi sínu. Hins vegar hafi börn hennar skort
aðstoð til að vinna úr þeirri reynslu sem þau hafi
orðið fyrir vegna fíknar hennar.
karen@frettabladid.is
Vanræksla barna
vaxandi vandamál
Tilkynningum um vanrækslu á börnum hefur fjölgað mjög á undanförnum
árum. Verulegur hluti tilkynninganna er vegna fíkniefnaneyslu foreldranna,
segir forstjóri Barnaverndarstofu. Börnum í tímabundnu fóstri hefur fjölgað.
LÖGREGLUMÁL Sprengjan sem
fannst í húsagrunni nýja HK-
heimilisins í Kópavogi í gær
reyndist vera svokölluð íkveikju-
sprengja sem hefur tæmst af
sprengiefni í tímans rás.
Sigurður Ásgrímsson, fagstjóri
sprengjusveitar Landhelgis-
gæslunnar, segir sprengjuna enn
í skoðun hjá sveitinni. Líklega sé
hún bresk eða bandarísk.
Talið er að sprengjan hafi
fallið úr herflugvél en svæðið
sem hún fannst á er í flugleið
Reykjavíkur flugvallar. Ekki er
loku fyrir það skotið að henni
hafi verið varpað úr flugvél til að
létta á henni. - kg
Sprengjan í Kópavogi:
Sprengjan var
eldsneytislaus
KJARAMÁL Bjartsýni ríkir innan
samninganefndar BSRB um að
samkomulag takist í dag eða um
helgina um nýjan kjarasamning
við ríkið. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er samkomulag um
kjarasamning fram á haustið 2009.
„Menn eru enn að ræða lengd
kjarasamnings og upphæðir. Það
er ennþá verið að skoða hvað sé
í pípunum gagnvart umönnunar-
geiranum sérstaklega,“ segir
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB.
„Við leggjum mjög ríka áherslu
á að fjárhagslegur grundvöllur
umönnunarstofnana verði
styrktur.“ - ghs
Kjaraviðræður BSRB:
Samningur til
haustsins 2009
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
20°
16°
16°
18°
20°
22°
21°
20°
20°
22°
22°
22°
24°
21°
26°
19°
20°
12
14
17
Á MORGUN
3-8 m/s
SUNNUDAGUR
5-13 m/s, stífastur
vestan til
8
15
15
9
10
10
10
11
10
4
6
5
3
5
6
5
5
13
9
9
6
9 16
11
12 17
20
1512
HVERT Á AÐ FARA
UM HELGINA?
Ágætar veðurhorfur
verða um helgina.
Líkur á einhverri
úrkomu eru mestar
vestan til. Austan til
verður bjartast og
sýnu bjartast allra
austast, séð heilt
yfi r helgina. Hlýindi
eru í kortunum
og má búast við
mestum hlýindum
á Austurlandinu og
til landsins nyrðra
eða allt að 20
stigum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI Verð á olíufatinu fór í
135 dollara um skeið í gær, en
lækkaði síðan aftur og var í 132
krónum síðdegis. Hér heima
hækkaði verðið líka og N1 hækk-
aði um tvær krónur. Lítri af bens-
íni kostar 160,9 krónu í sjálf sölu
og dísilolía 178,6 krónur lítrinn.
Olíuverð var rætt á Alþingi á
miðvikudag. Forsætisráðherra,
Geir H. Haarde, sagði þá að það
hefði enga þýðingu að „hnika
gjöldum ríkisins upp á nokkrar
krónur niður á við.“
Ástæður verðhækkunar nú eru
taldar áhyggjur af framboði á
olíu. - kóp
Olíuverð í nýjar hæðir:
Olíufatið í 135
dollara í gær
HÆKKAR ENN Olíuverð hækkar enn og
valda því áhyggjur af olíuskorti.
ÍSRAEL, AP Ísraelar tóku í gær fregn-
um af friðarviðræðum við Sýrland,
fyrir milligöngu Tyrkja, af tölu-
verðri tortryggni. Telja margir að
Ehud Olmert forsætisráðherra sé
fyrst og fremst að reyna að beina
athyglinni frá eigin vandræðum.
Olmert hefur mátt sæta hverri
lögreglurannsókninni á fætur ann-
arri, þar sem hann er sakaður um
spillingu. Hann hefur ítrekað verið
hvattur til að segja af sér vegna
þessara mála, og svo gæti farið að
hann hrökklist úr embætti á endan-
um.
Einungis 36 prósent Ísraela telja
að megintilgangur viðræðnanna sé
að efla friðinn, að því er fram kemur
í skoðanakönnun, sem ísraelska
dagblaðið Yediot Ahronot birti í
gær. Hins vegar telja 49 prósent að
Olmert sé að beina athyglinni frá
spillingarmálunum.
Meginkrafa Sýrlendinga er að
Ísraelar hverfi burt frá Gólanhæð-
um, sem Ísraelar hertóku árið
1967. Þar búa nú átján þúsund Ísra-
elar. Olmert nýtur lítils stuðnings
og gæti átt erfitt með að sannfæra
Ísraela um að ráðlegt sé að láta
hæðirnar frá sér.
„Friðarviðræður við Sýrland eru
mikilvægari en allar kviksögur og
rannsóknir,“ sagði Olmert í blaða-
viðtali í gær, og lagði áherslu á
sögulegt mikilvægi viðræðnanna.
Mark Regev, talsmaður Olmerts,
sagði í gær að viðræðurnar myndu
halda áfram, og fljótlega yrði hald-
inn annar fundur.
- gb
Friðarviðræður Ísraela og Sýrlendinga fyrir milligöngu Tyrkja:
Mæta tortryggni íbúa Ísraels
EHUD OLMERT Gæti átt erfitt með að
sannfæra Ísraela um að afhenda Sýr-
lendingum aftur Gólanhæðir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYNIR MJÖG Á BÖRN Katrín Ósk, 35 ára móðir tveggja
barna, segir börn sín hafa þurft að líða mjög hennar vegna.
Hún hafi fengið þá aðstoð sem hún þurfti til að vinna á
vandanum en það hafi skort hjá börnum hennar. Myndin
er úr safni.
BRAGI GUÐBRANDSSON VALGERÐUR RÚNARSDÓTTIR
GENGIÐ 22.05.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
147,3325
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
72,68 73,02
143,83 144,53
114,43 115,07
15,339 15,429
14,541 14,627
12,292 12,364
0,7032 0,7074
118,74 119,44
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR