Fréttablaðið - 23.05.2008, Síða 46

Fréttablaðið - 23.05.2008, Síða 46
t íska ferskleiki dagsins í dag Í talska töffaramerkið Diesel er 30 ára um þessar mundir en það var stofnað árið 1978 af Renzo Rosso, sem er textílhönnuður, og félögum hans. Árið 1985 keypti hann þá út og þá fór boltinn að rúlla fyrir alvöru. Í dag er hann forstjóri fyrirtækisins og er ávallt með puttana í hönnuninni. Renzo Rosso vildi gera Diesel að tískuvöru sem almúginn gæti nálgast án þess að borga formúu fyrir. Honum hefur tekist ætlunarverk sitt – að fá fólk úti um allan heim til að klæðast Diesel. Diesel var eitt af fyrstu gallabuxnafyrirtækjunum til að koma með öðruvísi þvotta á gallabuxum en hver og einn þvottur getur tekið allt að átta klukkustundir sem gerir bux- urnar sérstakar og eftirsóttar. Íslendingar kynntust Dies- el árið 1986 þegar Sautján fór að selja gallabuxurnar frá þeim. Í dag eru niðurþröngar gallabuxur mest áberandi en þær eru með mismunandi rassvösum í mismunandi þvottum. Litapallettan tekur þó töluverðum breyting- um en ljósgrái liturinn kemur sterkur inn í gallabux- um. Sumartískan frá Diesel er í heild sinni svolítið í anda áttunda áratugarins þar sem áprentanir á boli eru áberandi í allri sinni mynd. Í tilefni af afmælinu mun fyrirtækið, NTC, halda risastórt Diesel-partí á skemmtistaðnum Nasa í samvinnu við Nova. martamaria@365.is SVARTAR OG SEIÐANDI Íslenska fatamerkið e-label er komið með splunkunýja línu á markað. Hún er svört og seiðandi eins og sú fyrri. Línan er full af ferskum og sniðugum sniðum sem hressa upp á fataskápinn. Vörurnar eru eingöngu seldar á netinu á síðunni e-label.com. Ódrepandi andi áttunda áratugarins Áhrif frá áttunda áratugnum Haust 2008 Fornámskeið 4 dagar Hagnýt stærðfræði I Rekstrarhagfræði Reglugerðaumhverfi og gæðastj. í flugrekstri Vor 2009 Fornámskeið 3 dagar Þjóðhagfræði Fjárhagsbókhald Rekstur flugfélaga Sumar 2009 Fjármál I Markaðsfræði Haust 2009 Fornámskeið 3 dagar Lögfræði og vátryggingamál Rekstrar- og birgðastjórnun Markaðsfræði í flugrekstri Vor 2010 Mannauðsstjórnun Verkefnastjórnun Rekstur annarra félaga í flugtengdri starfsemi Sumar 2010 Lokaverkefni Útskrift í september 2010 Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins, býður uppá diplómanám í rekstri og stjórnun í flugrekstri. Námið hentar öllum þeim sem hafa reynslu í flugtengdri starfsemi. Námið er kreandi og hefur sömu námskröfur og eru gerðar á háskólastigi en boðið er upp á sveigjanleika í skipulagningu og skilum á verkefnum nemenda. Námið er þróað og unnið af Flugskóla Íslands í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. REKSTUR OG STJÓRNUN Í FLUGREKSTRI Námið er blanda af arnámi og lotunámi og er hægt að hea nám vor og haust. Hvert fag er 3 einingar (6 ECTS) og er kennt í 6 vikna lotum, eitt fag kennt í senn. Í 2. og 5. viku hverrar lotu koma nemendur í skólann í 3ja daga staðnám, fim-fös-lau. Hverju fagi lýkur með heimaprófi eða verkefnavinnu. 10 • FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.