Fréttablaðið - 23.05.2008, Page 66
23. maí 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af...
Ljósmyndasýningunni Staðir eftir
Einar Fal Ingólfsson, sem stendur nú
yfir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Á
sýningunni má sjá myndir úr dagbók
ljósmyndarans sem spanna tuttugu
ára tímabil og taka til ýmissa staða
á jörðinni. Nú fer þó hver að verða
síðastur að sjá þessa áhugaverðu
sýningu þar sem komandi sýningar-
helgi er sú síðasta.
Kl. 18
Halldór Haraldsson píanóleikari kynnir
þrjá nýja geisladiska sína í versluninni
Hljóðfærahúsinu, Síðumúla 20, í dag kl.
18. Diskarnir þrír eru gefnir út saman
undir nafninu Portret, en á þeim er farið
yfir feril Halldórs. Á kynningunni í dag
mun Halldór velja tóndæmi af diskunum
til útskýringar og einnig flytja nokkur vel
valin verk frá ferli sínum.
Myndlistarmaðurinn Pétur Hall-
dórsson opnar sýningu á verkum
sínum í Reykjavík Art Gallery,
Skúlagötu 30, á morgun kl. 14.
Pétur lærði myndlist á Íslandi, í
Englandi og í Bandaríkjunum.
Hann hefur haldið einkasýningar
bæði innan lands og utan og meðal
annars sýnt í Norræna húsinu,
Pleiades Gallery í New York og í
Hafnarborg, lista- og menningar-
stofnun Hafnarfjarðar. Auk þess
hafa verk hans birst í annálunum
Graphics Annual og Modern
Publicity.
Sýning Péturs stendur til 15.
júní næstkomandi. - vþ
Pétur í Reykjavík Art Gallery
MYNDLIST Verk eftir Pétur Halldórsson.
Fram undan eru þrjár
sýningar á leikritinu Lirfur
eftir Víði Guðmundsson. Í
sýningunni er tekist á við
ýmsar spurningar um lífið
og tilveruna á frumlegan og
áhugaverðan hátt.
Leikritið Lirfur var æft og frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu fyrr á árinu
þar sem það var sýnt á lokuðum
sýningum í mánuði unga fólksins.
Viðtökur áhorfenda voru góðar og
því þótti aðstandendum sýningar-
innar liggja beint við að efna til sýn-
inga þar sem almenningi gefst kost-
ur á að berja herlegheitin augum.
Leikarar í verkinu eru tveir, þeir
Orri Huginn Ágústsson og Víðir
Guðmundsson, sem jafnframt er
höfundur þess og leikstjóri.
Lirfur fjallar um tvo menn sem
eru fastir saman á ótilgreindum
stað. Þeir komast ekki frá hvor
öðrum þótt þeir fegnir vildu og
neyðast því til þess að eiga í sam-
skiptum hvor við annan, oft með
kostulegum afleiðingum. „Menn-
irnir tveir reyna að hafa ofan af
fyrir sér með spjalli og skemmtun,
en það er þó alltaf eitthvað sem
kemur í veg fyrir gleðina. Þeir
hoppa á milli aðstæðna og umræðu-
efna og minna um margt á þær sam-
ræður sem fara fram innra með
okkur sjálfum í hvert skipti sem við
stöndum frammi fyrir einhverri
ákvörðun. Þrátt fyrir að verkið ger-
ist við heldur afmarkaðar aðstæður
takast persónurnar á við ýmislegt
úr samtímanum, til að mynda
neysluhyggjuna og spurninguna um
hvað er raunverulega mikilvægt í
lífinu. Áhorfendur ættu því að geta
fundið vissan hljómgrunn með per-
sónunum,“ útskýrir Víðir. Ekki er
laust við að verkið hljómi eilítið
framúrstefnulega út frá lýsingunni,
en áhorfendur þurfa þó ekki að
óttast að skilja ekki neitt.
„Það er dálítið erfitt að lýsa
nákvæmlega söguþræði verksins,
en persónurnar og aðstæður þeirra
eru þó alveg skýrar í leikritinu.
Fólk þarf ekkert að hafa áhyggjur
af því að það muni ekki skilja neitt í
neinu, hlutirnir útskýrast jafn-
óðum,“ segir Víðir og hlær.
Sem stendur eru aðeins fyrirhug-
aðar þrjár sýningar á verkinu, á
sunnudaginn kemur og svo 30. og
31. maí og hefjast sýningarnar öll
kvöldin kl. 20. Sýningarnar fara
fram í húsnæði á horni Vitastígs og
Skúlagötu þar sem leikhópurinn
Vér morðingjar hefur aðsetur. Það
er því ljóst að leikhúsáhugafólk ætti
að hafa hraðar hendur og tryggja
sér miða á eina sýninguna sem allra
fyrst. Miðar kosta 1.000 kr. og þá
má nálgast með því að hringja í Víði
í síma 697 3799.
vigdis@frettabladid.is
Tveir menn fastir
á ótilgreindum stað
Ástin er diskó, lífið er pönk
e. Hallgrím Helgason
Stuðið er á Stóra sviðinu
sýn. fös. 23/5 uppselt, lau. 24/5
Sá hrímhærði og draumsjáandinn
e. Nils Aslak Valkeapää
Gestasýning frá Beaivváš, þjóðarleikhúsi Sama í Noregi
Ath. aðeins ein sýning, þri. 27/5
„Þetta er fjörugt verk
og var vel sungið,
leikið og dansað..."
SA, tmm.is
„Það er svona
sumarfílíngur í þessu."
KJ, Mannamál/Stöð 2
Tilnefnd til Grímuverðlaunanna
sem barnasýning ársins!
Skoppa og Skrítla í söng-leik
e. Hrefnu Hallgrímsdóttur
Sýningum lýkur 1/6
Örfá sæti laus um helgina
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ KL. 20
PÍANÓTÓNLEIKAR FRÁ LHÍ
HÁKON BJARNASON
Aðgangur ókeypis!
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ KL. 20
SAMKÓR REYKJAVÍKUR
30 ára afmælistónleikar
Miðaverð 2000 kr.
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ KL. 20
KEITH TERRY Í SALNUM
Body percussion.
Miðaverð 1000 kr.
FÖST 30. MAÍ KL. 20 UPPSELT!
LAUG 1. JÚNÍ KL. 20 ÖRFÁ SÆTI!
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON
TIL MINNINGAR UM BIRGI EINARSON
Miðaverð 2500 kr.
VÍÐIR GUÐMUNDSSON
OG ORRI HUGINN
ÁGÚSTSSON Eru allt í
öllu í leiksýningunni
Lirfur, misjafnlega
mikið þó. F
R
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N