Fréttablaðið - 20.06.2008, Blaðsíða 2
2 20. júní 2008 FÖSTUDAGUR
REYKJAVÍK Aðeins einn fær
viðurkenningu fyrir að hafa lokið
framkvæmdum á húseign sinni
við Laugaveg fyrir 17. júní. Í
bréfi sem húseigendur fengu sent
var hvatt til aðgerða fyrir
þjóðhátíðardag og
viðurkenningar skjali lofað.
„Það er nú bara einn búinn að
hafa samband og hann mun fá
viðurkenningarskjal,“ segir
Magnús Sædal byggingarfulltrúi.
Hann segir verkefnið hafa gengið
vel og vel hafi verið brugðist við
erindinu. Sá sem fær viðurkenn-
ingarskjalið málaði og setti upp
húsnúmer.
Lokafrestur til framkvæmda
rennur út í byrjun ágúst. - kóp
Framkvæmdir við Laugaveg:
Aðeins ein við-
urkenning veitt
VIÐURKENNING Eigandi þessa húss fær
viðurkenningarskjal, einn húseigenda
við Laugaveg. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir
unnið glæsilegt Weber-grill eða
vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum
rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu
inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú
færð strax að vita
hvort þú hefur
unnið.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
0
2
0
FÉLAGSMÁL Málaliðar nefnist hópur
átta unglinga, sem hafa af því starfa
í sumar að þrífa veggjakrot, mála
og fegra umhverfi sitt. Þess á milli
fræðast þeir um kostnað yfirvalda
við þrif á veggjakroti, viðurlög við
skemmdarverkum, muninn á
veggjakroti og veggjalist og hvern-
ig má beina sköpunarkraftinum á
löglegar brautir. Í hópnum eru sjö
strákar og ein stelpa sem hafa sýnt
áhættuhegðun með veggjakroti.
„Þetta er í rauninni forvarnar-
verkefni þar sem markmið sumars-
ins hjá okkur er að fá krakkana til
að átta sig á hvað þetta getur verið
fallegt og eins hvað þetta getur
verið ljótt,“ segir Magnús Guð-
mundsson, annar hópstjóranna sem
eiga hugmyndina að verkefninu.
Magnús segist hafa barist fyrir
stofnun hópsins í nokkur ár. Hug-
myndina fékk hann þegar hann
starfaði með svokölluðum Létt-
liðum, vinnuskólahópi unglinga sem
komist hafa í kast við lögin eða lent
í annars konar vandræðum.
„Þá var ég með nokkra stráka
sem höfðu verið að graffa,“ segir
Magnús. „Þeir voru alveg agalega
vonlitlir, fannst allt vera glatað og
voru svolitlir „rebelar“; vildu
skemma allt sem Reykjavíkurborg
átti sökum þess að borgin var svo
andstyggileg við þá að leyfa þeim
ekki að spreyja neins staðar lög-
lega. Svo ég ákvað að athuga hvort
það væri ekki hægt að snúa þessari
skemmdarverkahugsun yfir í eitt-
hvað listrænt.“
Úr varð tilraunaverkefni sem
stendur í sumar. Hópurinn er einn
af fjölmörgum svokölluðum skap-
andi hópum Vinnuskólans, sem eru
starfræktir í samvinnu við ÍTR.
Krökkunum verður svo frjálst að
sinna þessu hugðarefni sínu áfram
ásamt hópnum í vetur.
Hópurinn varð fyrir óskemmti-
legri, en ekki síður lærdómsríkri,
reynslu í gærmorgun. Krakkarnir
höfðu unnið hörðum höndum að því
að þrífa krot af hjólabrettasvæði
við Félagsmiðstöðina Gufunesbæ í
Grafarvogi, mála það og fegra.
Þegar þeir mættu til vinnu í gær
var það hins vegar allt útbíað í kroti
á ný.
Magnús segir krökkunum ekki
hafa verið skemmt. „Við tókum
hressilegar umræður um þetta í
kjölfarið og ég held að þetta hafi
verið mikilvægt víti til varnaðar til
að snúa þessum hugsunarhætti.“
Hann segist þegar farinn að sjá
hugarfarsbreytingu hjá hópnum.
Hápunktur verkefnisins verður
þegar listaverk hópsins verða til
sýnis á búkkum við göngustígana á
Miklatúni í kringum Vinnuskóla-
daginn 10. júlí. stigur@frettabladid.is
Málaliðar læra um
mun á list og kroti
Átta unglingar starfa við það í sumar að þrífa veggjakrot og læra um muninn á
list og skemmdarverkum. Þeir urðu fyrir leiðri en lærdómsríkri reynslu í gær.
BRÚSARNIR MUNDAÐIR Krakkarnir klæðast hlífðarbúnaði við vinnuna, enda hafa þeir
lært að það er ekkert grín að þurfa að þrífa hana úr fötum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Geir Jón, er Jón búinn að
kæra?
„Svona misindisverk fara sem betur
fer framhjá honum, hann er líka
seinþreyttur til vandræða.“
Íslenska fánanum var stolið af leiði Jóns
Sigurðssonar hinn 17. júní. Geir Jón
Þórisson er yfirlögregluþjónn.
Undir hatti skapandi sumarstarfa,
samstarfsverkefnis Vinnuskólans
og félagsmiðstöðva ÍTR, er starf-
ræktur fjöldi vinnuhópa. Meðal
þeirra eru:
■ Fatahönnunarhópur
■ Kvikmyndagerðarhópur
■ Lifandi vegvísar, sem vísa ferða-
mönnum til vegar í miðborginni
■ Götuleikhúshópur
■ Umhverfishópar
■ Málræktarhópar fyrir nýja
Íslendinga
FJÖLDI ÓLÍKRA HÓPA
LEIT Bandaríska og kanadíska
strandgæslan hafa undanfarna
daga staðið fyrir umfangsmikilli
leit að seglskútu Íslendings á svæð-
inu milli Nýfundnalands og
Bermúda. Maðurinn, Jakob Fenger,
er ófundinn en skipulagðri leit
hefur verið hætt. Jakob, sem er 56
ára gamall, er einn um borð.
„Við höfum ekki frétt neitt nýtt,“
segir Gunnhildur Björg Emilsdótt-
ir, kona Jakobs. Hún segir fjölskyld-
una bíða milli vonar og ótta eftir
upplýsingum um afdrif Jakobs, en
vill að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
Jakob hugðist flytja skútuna
Dystociu, sem er 35 feta, einmastra
af Bavaria-gerð, til Íslands. Hann
er mjög vanur siglingamaður sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar hugðist Jakob
sigla 800 mílna leið frá Bermúda til
St. Johns á Nýfundnalandi og þaðan
til Íslands. Hann lagði af stað frá
Bermúda 31. maí eða 1. júní og ekk-
ert hefur heyrst frá honum síðan 3.
júní.
Þegar skútan hafði ekki skilað
sér til St. Johns 13. júní var óskað
eftir því að formleg leit yrði hafin.
Bandaríska og kanadíska strand-
gæslan leitaði á 635 þúsund ferkíló-
metra hafsvæði en hafa ekki fundið nein ummerki um skútuna. - sh
Fjölskylda íslensks sæfara sem saknað er bíður milli vonar og ótta eftir fréttum:
Við höfum ekki frétt neitt nýtt
SKÚTA Ekkert hefur heyrst frá mannin-
um síðan 3. júní. Myndin er úr safni.
UMHVERFISMÁL Auðlind-Náttúru-
sjóður heitir sjóður sem á að
„styrkja endurheimt og viðhald
náttúruauðlinda landsins“.
Að baki honum standa meðal
annarra frú Vigdís Finnbogadóttir,
Andri Snær Magnason og Þórólfur
Árnason.
Sjóðurinn stefnir að því að
verða leiðandi afl í náttúruvernd
og er landsmönnum boðið að
gerast stofnfélagar.
Meðal hugsanlegra verkefna er
að kaupa landsvæði og selja aftur,
með viðbættum verndarkvöðum.
Kynningarfundur er á Þjóð-
minjasafni í dag klukkan tvö. - kóþ
Náttúrusjóður stofnaður:
Styrki auðlindir
náttúrunnar
FRÚ VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Stofn-
félagar sjóðsins geta verið þeir sem
leggja fram 10.000 krónur eða meira.
Verktakar og fyrirtæki geta dregið fram-
lög frá skatti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NORÐURHEIMSKAUTIÐ Ísbreiðan á
Norður-Íshafi bráðnar jafnvel
hraðar en á síðasta ári þrátt fyrir
kaldan vetur.
Mælingar bandarísku snjó- og
ísmælingastofnunarinnar sýna
að í byrjun ársins þakti ísinn
stærra svæði en í byrjun árs
2007. Nú hefur ísinn aftur á móti
hörfað og er umfangið orðið sam-
bærilegt við júní í fyrra, en það
sumar var sett nýtt met í hafís-
tapi.
Vísindamenn segja stóran hluta
íssins svo þunnan að hann bráðni
auðveldlega og spá því að norður-
heimskautið geti orðið íslaust um
sumartímann eftir einungis fimm
til tíu ár.
Heimskautaísinn hefur aldrei
mælst umfangsminni en síðastlið-
ið sumar, þegar ísbreiðan þakti
4,2 milljónir ferkílómetra, saman-
borið við 7,8 milljónir árið 1980.
Löndin í kring eru þegar farin
að íhuga möguleika sem bráðnun
íssins gæti haft í för með sér.
Kanadamenn, Danir/Grænlend-
ingar og Rússar kanna rétt sinn
til hafsbotnsins og George Bush
Bandaríkjaforseti hefur hvatt til
frekari olíuleitar í lögsögu
Alaska.
Bráðnun hafíssins getur þó
haft áhrif um heim allan með því
að herða á hlýnun andrúmslofts-
ins og hækkun sjávarborðs. - ht
Ísbreiður Norður-Íshafs gætu horfið yfir sumarið eftir áratug:
Ísinn bráðnar enn hraðar
Jóhann Sigurðarson leikari hefur verið
valinn bæjarlistamaður Garðabæjar.
Hann starfaði fyrst hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Hann færði sig yfir til
Þjóðleikhússins árið 1986 og hefur
leikið þar allar götur síðan.
GARÐABÆR
Jóhann bæjarlistamaður
© GRAPHIC NEWS
ÍSLAUS HEIMSKAUTASUMUR
Ísbreiður norðurheimskautsins hafa
aldrei mælst umfangsminni en síðasta
sumar; 4,2 ferkílómetrar samanborið við
7,8 milljónir árið 1980. Vísindamenn spá
nú íslausum sumrum á norðurheim-
skautinu innan áratugar.
KJARAMÁL Lítið hefur þokast í
kjaraviðræðum Félags frétta-
manna og samninganefndar
ríkisins fyrir hönd RÚV ohf. hjá
ríkissáttasemjara undanfarið en
viðræðum var vísað þangað í vor.
Aðalbjörn Sigurðsson, formaður
Félags fréttamanna, segir að menn
séu búnir að kynna kröfur sínar og
á mánudaginn verði formlegur
sáttafundur. Ef samninganefnd
ríkisins komi ekki með neitt útspil
þar þá verði fréttamenn að skoða
stöðu sína alvarlega. - ghs
Fréttamenn hjá RÚV:
Skoða stöðu
sína alvarlega
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest átta mánaða fangelsisdóm,
þar af sex á skilorði, yfir manni
vegna líkamsárása. Manninum var
gefið að sök að hafa kýlt mann sem
sat í aftursæti bifreiðar í gegnum
opna rúðu. Jafnframt að hafa,
skömmu síðar, ráðist á annan mann
með golfkylfu og slasað hann.
Loks var maðurinn ákærður
fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás er hann réðst aftur á
fyrrnefnda fórnarlambið og barði
hann með golfkylfunni í höfuðið.
Sá sem fyrir þessari árás varð
fékk heilablæðingu, heilamar og
gat á hljóðhimnu, auk fleiri
áverka. - jss
Fangelsi fyrir líkamsárásir:
Barði tvo menn
með golfkylfu
SPURNING DAGSINS