Fréttablaðið - 20.06.2008, Blaðsíða 18
18 20. júní 2008 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Félagslegt húsnæði
RV
U
n
iq
u
e
0
60
80
1
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Servíettur NexxStyle 39x39cm 80stk, ýmsir litir
Satiné Clean, gólfsápa
Brial Clean, alhliða hreinsiefni
Kristalin Clean, baðherbergishreinsir
Into WC Clean
Lotus eldhúsrúllur Lotus WC pappír
Lotus Maraþon Plus Lotus WC Júmbó
Lotur T-Þurrkur
Lotus V-Þurrkur
Nánar
i upplý
singar
veita s
ölume
nn og
ráðgja
far RV
Umhverfisvottaðar vörur
- fyrir sumarbústaðinn, veiðihúsið og ...
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
Um síðustu mánaðamót tók
gildi nýtt stuðningskerfi
fyrir íbúa Félagsbústaða í
Reykjavík. Nú hefur niður-
greiðslu húsnæðis verið
hætt og sértækar leigu-
bætur teknar upp í staðinn.
Breytingar á útgjöldum
koma ekki að fullu í ljós
fyrr en um næstu mánaða-
mót en hjá þó nokkrum
fjölda hafa þau hækkað
töluvert.
Sigurður Kr. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða,
segir að breytingarnar á stuðn-
ingskerfinu eigi að nýtast þeim
verst settu best. „Áður var kerfið
þannig að niðurgreiðsla var
bundin íbúð, óháð efnahag. Nú
hefur raunkostnaðarleiga hækk-
að og stuðningur við þá sem verst
eru settir hækkað á móti,“ segir
Sigurður. Hann segist telja að hjá
um 300 til 500 manns nemi hækk-
un útgjalda meira en 5.000 krón-
um.
Tugprósenta hækkun
Fréttablaðið hefur undir höndum
greiðsluseðil eins leigjanda
Félagsbústaða. Leiga viðkomandi
var ríflega 32 þúsund krónur, en
eftir breytingar er hún tæpar 55
þúsund krónur; hækkunin nemur
rúmlega 70 prósentum.
Á móti þessu kemur umtals-
verð hækkun á húsaleigubótum.
Viðkomandi var með tæplega 10
þúsund krónur, en með sérstök-
um húsaleigubótum fékk hann
um síðustu mánaðamót um 38
þúsund krónur. Útgjöld mannsins
hækkuðu því úr ríflega 20 þúsund
í ríflega 26 þúsund krónur, eða
um um það bil 30 prósent.
Með þessu er þó ekki öll sagan
sögð. Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra setti í apríl
reglugerð um hækkun húsaleigu-
bóta frá og með 1. apríl. Grunn-
bætur hækkuðu úr 8.000 í 13.500,
eða um 69 prósent. Þá höfðu húsa-
leigubætur ekki hækkað síðan
árið 2000.
Bæturnar eru greiddar eftir á
og um síðustu mánaðarmót fengu
leigjendur leiðréttingu á húsa-
leigubótum í apríl og maí og því
er um tveggja mánaða sérstakar
húsaleigubætur að ræða í þessu
tilviki. Nokkuð sem ekki verður
fyrir hendi um næstu mánaða-
mót.
Húsaleika hækkar ársfjórð-
ungslega, en hún er bundin húsa-
leigulið í vísitölu. Í ár hefur leigan
hækkað um 3,4 prósent og reikna
má með töluverðri hækkun um
næstu mánaðarmót, nái spár um
vísitölu eftir að ganga. Húsaleigu-
bætur eru ekki bundnar vísitölu
og því standa þær í stað þar til
annað er ákveðið. Ákvörðun
félagsmálaráðherra um hækkun
þeirra stendur til tveggja ára og
því ljós að bætur muni ekki
hækka á þeim tíma.
Deilt um aðgerðir
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi
Vinstri grænna í velferðarráði,
vildi fresta breytingum á kerfinu
þangað til bæturnar yrðu bundnar
vísitölu. „Um næstu mánaðamót
má reikna með að leigan hækki
um 5 til 6 prósent, ef ekki meira.
Bæturnar hækka ekki á móti og
það er óeðlilegt,“ segir Þorleifur
og bætir við að almennt hafi
útgjöld fólks í félagslegu húsnæði
aukist eftir breytinguna.
Þessu mótmælir Jórunn Frí-
mannsdóttir, formaður velferðar-
ráðs, og segir að þvert á móti hafi
raunútgjöld meirihluta íbúa lækk-
að. „Heilt yfir kemur þetta meiri-
hlutanum til góða og þetta er mun
réttlátara kerfi,“ segir Jórunn.
Hún segir að hjá einhverjum
hafi leigan hækkað meira en um
5.000 krónur og með þann hóp sé
unnið sérstaklega. Sumir séu í of
stóru húsnæði, aðrir hafi ekki sótt
um húsaleigubætur og einhverjir
séu hreinlega of tekjuháir miðað
við viðmið Félagsbústaða. „Þetta
kemur mun meiri hreyfingu á
kerfið. Í þessu er hvati fyrir fólk
að finna sér íbúð við hæfi og einn-
ig til að komast út úr kerfinu. Í
dag er kerfið allt of staðið.“
Jórunn segir að eðlilegt sé að
húsaleigubætur séu vísitölutengd-
ar. „Velferðarráð samþykkti sam-
hljóða áskorun til ráðuneytisins
þar um. Það er hins vegar ekki
hægt að hengja breytingar hjá
Reykjavíkurborg á mögulegar
aðgerðir í ráðuneytinu í ófyrir-
séðri framtíð,“ segir Jórunn.
Hrannar B. Arnarsson, aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra,
segir að á vegum ráðuneytisins sé
í gangi vinna um endurskoðun á
öllum stuðningsúrræðum varð-
andi húsnæði. „Við erum að skoða
allt kerfið á vegum hins opinbera,
hvort sem það eru húsaleigubæt-
ur, vaxtabætur eða niðurgreiðsla
á félagslegum íbúðum. Vísitölu-
tenging húsaleigubóta rúmast
innan þeirrar vinnu og verður
bara skoðað.“
Starfshópurinn á jafnframt að
skoða verka- og kostnaðarskipt-
ingu á milli ríkis og sveitarfélaga.
Gert er ráð fyrir að hann skili af
sér eigi síðar en 1. desember
2008.
Vilja meiri hækkun
Fyrir mánuði síðan óskuðu Félags-
bústaðir eftir tíu prósenta hækk-
un á húsaleigu umfram verðlags-
hækkanir.
Afgreiðslu velferðarráðs á til-
lögunni hefur verið frestað en
reiknað er með að hún gangi í
gegn á miðvikudaginn. Jórunn
segir að verið sé að móta tillögu
að svari innan velferðasviðs en
vísar að öðru leyti í fyrri ummæli
sín. Þegar tillagan kom fram
sagði hún að sér þætti ekki ólík-
legt að beðið yrði með hækkun.
Óskin um hækkun leigu Félags-
bústaða kemur vegna rekstrar-
stöðu fyrirtækisins. Menn eru
sammála um að hún sé slæm og
Jórunn segir beiðnina ekki óeðli-
lega í ljósi hennar.
Þorleifur segir málið einfalt;
auka þurfi framlög borgarinnar
til Félagsbústaða. „Við ættum
frekar að setja peninga í félagsleg
úrræði en að ausa fé í að setja
Geirsgötu í stokk, svo dæmi sé
tekið. Þegar illa árar þarf að huga
að þeim verst settu,“ segir Þor-
leifur.
Leigukostnaður hækkar
hjá allt að 500 manns
FÉLAGSBÚSTAÐIR Umtalsverð hækkun varð á leigu eftir breytingar á stuðningskerfi.
Stjórnin vill tíu prósenta hækkun leigu umfram verðlag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON
FRÉTTASKÝRING
KOLBEINN ÓTTARSSON
PROPPÉ
kolbeinn@frettabladid.is
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í desember 1996 að stofna hlutafélag
um eignarhald og rekstur félagslegs leiguhúsnæðis á vegum Reykjavíkur-
borgar. Megintilgangur með stofnun fyrirtækisins var að skilja rekstur
félagslegra leiguíbúða Reykjavíkurborgar frá öðrum rekstri borgarinnar og
bæta fjármálalega og faglega umsýslu rekstrarins.
Félagsbústaðir áttu 2063 íbúðir í árslok 2007, þar af voru 1767 leigu-
íbúðir og 296 þjónustuíbúðir fyrir aldraða ásamt tilheyrandi þjónustu-
rýmum. Leiguíbúðum hefur fjölgað um 940 á tíu árum frá stofnun félags-
ins 1997 en þá nam fjöldi félagslegra leiguíbúða átta íbúðum á hverja
1.000 íbúa í borginni en var 15 íbúðir í árslok 2007 og áætlaður sautján
íbúðir í árslok 2010.
HLUTAFÉLAG UM FÉLAGSLEG ÚRRÆÐI FJÖLGAR Á BIÐLISTA
Ár Úthlutanir % Biðlisti
1999 974 153 16 471
2007 1.747 175 10 761
Fjöldi
íbúða
JÓRUNN
FRÍMANNSDÓTTIR
Vegna aðstæðna á húsnæðis-
markaði á höfuðborgarsvæðinu
undanfarin ár hefur dregið úr
gegnumstreymi leigjenda og
þar með afköstum íbúðaeignar
Félagsbústaða, sem sést best á
því að úthlutuðum íbúðum fjölg-
aði einungis um fjórtán prósent
á tímabilinu 1999-2007 á sama
tíma og íbúðaeign Félagsbústaða
nær tvöfaldaðist. Á tímabilinu
fjölgaði umsækjendum á biðlista
eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá
Velferðarsviði borgarinnar hins
vegar um 62 prósent.
Úr skýslu stjórnar Félagsbústaða
2008.
LÍTIL HREYFING