Fréttablaðið - 20.06.2008, Side 36
fatastíllinn
Ragnhildur Ágústsdóttir listamaður
1. Þessi jakki er frá Ungaro og keyptur í París. Hún féll fyrir litnum á jakkan-
um.2. Þessi kjóll er úr Rokki og rósum. 3. Skór úr Spútnik sem Ragnhildur heldur
mikið upp á. 4. Þessa mussu keypti hún í Danmörku. 5. Eyrnalokkar úr Kisunni.
6. Þennan skyrtukjól keypti Ragnhildur í lítilli hliðargötu í París. Hún notar hann
við gallabuxur, leggings eða er bergleggja undir. 7. Þessir eru úr Kron. 8. Jimmy
Choo, fékk þá í Jibby Choo í London. 9. Þessir skór voru keyptir í brúðkaupsferð-
inni sem Ragnhildur fór í til Dubai. 10. Kjóll frá Báru bleiku sjálfri sem Ragnhildur
hnaut um í Fríðu frænku fyrir fimm árum síðan. 11. Hálsfestin er úr KronKron.
Viltu það nýjasta í förðun?
Ragnhildur Ágústsdóttir er ættuð frá Stykkishólmi
en árið 2002 útskrifaðist hún bæði úr fjármálafræði
og listnámi við bandarískan háskóla. Hún segist
hafa þurft að gera upp við sig hvort hún tæki listina
fram yfir fjármálin, byrjaði að vinna í bankageiran-
um þegar hún kom heim en síðustu ár hefur hún ein-
beitt sér að listinni. Þann 12.júlí næstkomandi ætlar
hún að opna sína fyrstu myndlistarsýningu í Norska
húsinu í Stykkishólmi. Þegar hún er spurð út í þema
sýningarinnar þá segist hún hafa verið undir áhrif-
um dýrlingsins Húberts. Ragnhildur er kannski ekki
staðalmynd af listamanni því hún á ævintýraleg-
an fataskáp sem er fullur af allskonar gersemum.
Þegar hún er spurð um fatastílinn þá segist hún
vera með einfaldan smekk. „Ég vildi að ég gæti sagt
„svaka fríkuð“ en ég verð víst að viðurkenna að ég
er frekar látlaus þegar kemur að fötum.“
Fyrir hverju fellur þú alltaf? „Allt of dýrum skóm og
kjólum.“
Af hverju áttu mest í fataskápnum? „Skóm og kjól-
um.“
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? „Það
er mjög misjafnt.“
Hefur þú alltaf haft gaman af fötum? „Já, alveg frá
því að ég var sett í fyrstu taubleyjuna.“
Áttu einhverja tískufyrirmynd? „Ekki það að ég reyni
að klæðast eins og hún en mér finnst Dita Von Teese
æði.“
Uppáhaldsefnið? „Allt mjúkt er inn hjá mér.“
Uppáhaldsverslunin? „Þær eru svo margar í uppá-
haldi hjá mér en mér finnst ég oftast finna mér eitt-
hvað sætt Trilogiu eða Kron. Og ef ekkert finnst á
skerinu þá er það bara kaffibolli og notaleg stund á
www.net-a-porter.com.“
Uppáhaldshönnuðurinn? „Þeir eru svo margir og það
er mjög misjafnt frá ári til árs hverjir mér finnst
vera að gera góða hluti. En fyrst ég minntist á skó
hérna áðan þá dettur mér Christian Louboutin í
hug.“
Hvernig er uppáhaldslitapalettan þín? „Þessa dagana
er hún björt og litrík. Vínrauður, gulur, fjólublár og
grænn en ég laðast oft að svörtum flíkum.“
Þegar þú horfir til baka, hvaða tískutímabil myndir þú
ekki vilja ganga í gegnum aftur? „Ég myndi alls ekki
vilja ganga í gegnum 3% klæðnaðartímabilið aftur
eins og góð vinkona mín kallar það. Þar var mark-
miðið ekki endilega að klæða sig eftir veðri. En þess-
ir tímar eru vel að baki enda var þetta á síðustu öld.“
Hvernig er heimadressið þitt? „Heimadressið er
dress sem ég er í þegar ég mála. Gráblár kjóll með
gömlu leðurbelti.“
Hvað dreymir þig um að eignast núna? „Hvíta Gi-
venchy-sandala.“ martamaria@365.is
Frekar látlaus í smekk
1
2
3 4
5
6
7
8
9
10
11
M
Y
N
D
IR
/R
Ó
S
A
6 • FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2008