Fréttablaðið - 20.06.2008, Blaðsíða 44
6
Jakob Pape
GRÆNLAND-ÍSLAND-AFRÍKA
Þegar maður mætir Jakobi Pape
á förnum vegi er hann í engu
öðruvísi en hver annar 23 ára
ungur maður. Frjálslegt fataval,
svöl sólgleraugu og stór glitrandi
kross í keðju um hálsinn. Ýmis-
legt hefur þó á daga hans drifi ð
en líf hans tókst á fl ug dag einn
er hann kynntist fólki úr Veginum
sem þá voru stödd á Grænlandi.
Jakob Pape Silassen er frá
Austur Grænlandi og aðspurður
um hvernig líf hans hafi verið
áður en hann kom til Íslands
svarar hann því til að það hafi
verið ótrúlega erfi tt. Hann var
þunglyndur, með litla lífslöngun
og allar hans kringumstæður
voru í raun afar slæmar. Jakob
segir að það hafi verið eins og
skuggi dauðans hafi verið yfi r
lífi hans og annara bæjarbúa.
Sjálfsvíg eru tíð og oft eins og
hluti af daglegu lífi . Í svona litlum
bæ þekkjast allir og þegar ung
manneskja tekur líf sitt þá snertir
það alla og maður fi nnur hvernig
sorgin og vonleysið hellist yfi r
bæinn.
Jakob þekkir þetta af eigin raun
því tveir bræður hann féllu fyrir
eigin hendi. Dagurinn áður en
yngri bróðir hann dó er Jakobi
sérstaklega minnistæður. Bróðir
hans var ofsakátur og allir urðu
glaðir í kringum hann. En næsta
dag var komið að honum þar
sem hann hafði hengt sig. Mikil
sorg og reiði var
í fj ölskyldunni.
“Reiðin varð svo
mikil að við
kenndum
hvert öðru um
og fannst við
hafa brugðist. Þessir atburðir
sundruðu fj ölskyldunni alger-
lega. Ég hugsaði oft hver yrði
næstur. Oft fann ég fyrir miklum
tómleika og var oft svo sorg-
mæddur en reyndi að brosa og
láta ekki á því bera. Ég fann líka
fyrir miklu hatri og fannst eins
og allir hötuðu mig. Ég var alveg
viss um að ég gæti aldrei orðið
hamingjusamur”.
Jakob segist oft hafa verið mjög
nærri því að taka sitt eigið líf. En
hann segir; “það var alltaf einhver
vonarneisti innra með mér sem
stoppaði mig af. Á þessum tíma
bað ég oft til Guðs, ég bað hann
um hjálp. Ég vissi ekki hvernig
Guð gæti hjálpað mér. Ég bað
í hljóði svo að enginn heyrði í
mér”.
Dag einn hitti hann gamlan vin
sem sagðist vilja kynna hann fyrir
fólki frá Íslandi sem gæti hjálpað
honum. Hann svaraði því til, að
hvernig ætti þetta fólk að geta
hjálpað honum þar sem vinir
hans höfðu reynt en ekki getað
það. Vinur hans ítrekaði það
samt við hann að hann yrði að
kynnast þessu fólki frá Íslandi.
Tveimur dögum seinna hitti
hann fólkið á litlu útvarpsstöð-
inni í bænum og í kjölfarið fór
hann að túlka fyrir þessa gesti frá
Íslandi. Þau voru frá Veginum og
komu til Grænlands til þess að
kynnast fólki og rétta því hjálpar-
hönd. Fyrst um sinn var þetta
honum bara tilbreyting en einn
daginn kom hann fyrr en vana-
lega til fundar við Íslendingana
og sagði þeim sögu sína. Hann
segir; “þau báðu fyrir mér og
veittu mér andlega aðhlynningu.
Og þau spurðu mig síðan hvort
ég vildi að þau hjálpuðu mér og
ég svaraði þeim einfaldlega; já”.
Í kjölfarið, sem mikið bænasvar,
bauð Vegurinn honum til Íslands
og hjálpaði honum um dvalar-
stað og að sækja um vinnu. Hann
fékk strax vinnu og vann þar til
hann fór í Biblíuskóla í Noregi
og er aftur kominn í sömu vinnu
í dag. Vegurinn styrkti hann á
meðan hann var í skólanum og
einnig þegar hann fór til Afríku
með skólafélögum sínum að
loknu námi. Þar miðlaði hann
af reynslu sinni og rétti öðrum
hjálparhönd. Það voru mikil
viðbrigði fyrir Jakob að vera í 45
stiga hita og umgangast inn-
fædda Afríkubúa frá því að vera
hálf umkomulaus á Grænlandi.
Vegurinn stendur enn við bakið
á honum og leiðbeinir en bæn
hans er að geta farið aftur heim
til Grænlands og hjálpað öðrum
því þörfi n þar er mjög mikil.
UPPÖRVUNARORÐ
Að biðja. Í Biblíunni er mikið
talað um bæn. Bæn er samtal
okkar við Guð. Við getum verið
að tala um vandamál okkar við
Guð, eða við getum komið fram
fyrir Guð og sagt honum hvað
aðrir eru að ganga í gegnum. Við
tölum um fyrirbæn, þá biðjum
við fyrir öðrum. Líkþrár maður
kom til jesú og sagði “ef þú vilt,
getur þú hreinsað mig!” Jesú
segir við hann “ég vil, verði þú
hreinn.” Hver er vilji Guðs fyrir
okkur? Lestu í Biblíunni og
fi nndu út hver er vilji Guðs með
þitt líf og talaðu svo við Guð
eftir vilja hans og sjáðu lausnina
koma inn í þitt líf og einnig
inn í líf annara þegar þú biður.
Í Matt 7:1 segir “Biðjið og yður
mun gefast, leitið og þér munuð
fi nna, knýið á og fyrir yður mun
upplokið verða.” Lestu Biblíuna,
talaðu við Guð og gefðu þér tíma
til að hlusta á Guð, því hann þráir
að tala við þig.
Högni Valsson & Lilja Ástvalds-
dóttir
LÆKNINGADAGAR
Guð er góður og umhyggju-
samur, það kemur fram í orði
hans hvernig hann vill mæta
þörfum okkar á öllum sviðum
lífsins, andlega, sálarlega og
líkamlega. Textinn í 23. Davíðs-
sálmi lýsir vel hjarta Guðs fyrir
okkur: “Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta, á græn-
um grundum lætur hann mig
hvílast.” Bænin hefur alltaf skipað
veiga mikinn sess í kristinni
trú og hefur mikilvægur þáttur
bænastarfsins verið fyrirbæn
fyrir sjúkum og þeim sem glíma
við ýmiskonar vanlíðan. Vegna
þessa eru í Veginum haldnir
sérstakir fyrirbænadagar sem
kallast “Lækningadagar” þar sem
lögð er sérstök áhersla á að fólk
geti komið og slakað á, bæði á
líkama og sál og þegið fyrirbæn
og ráðgjöf.
Erna Eyjólfsdóttir
Þótt þjóð okkar sé lánsöm og
búi við gott heilbrigðiskerfi
með frábærum læknum og
hjúkrunarfólki þurfa margir á
fyrirbæn að halda. Lækninga-
dagar eru haldnir þrisvar á ári og
standa yfi r frá föstudagskvöldi
til eftirmiðdags á sunnudegi.
Reynslan af þessum dögum
er hreint stórkostleg, og geta
margir vitnað um lækningu og
lausn til líkama, sálar og anda.
Lækningadagar er opnir öllum.
Umsjón með Lækningadögum
hefur Erna Eyjólfsdóttir og fer
skráning fram á skrifstofu Vegar-
ins í síma 564-2355.
UMMÆLI UM
LÆKNINGADAGA
Lækningadagar eru tækifæri
sem við fáum til að leyfa Guði að
koma inn í líf okkar og lækna það
sem er brotið og illa farið.
Síðast liðinn vetur hefur ein-
kennst af vinnu við að fara ofan í
kjallarann í lífi mínu, ná í það sem
hefur eyðilagt líf mitt og gefa
það Guði.
Ásta Lóa Jónsdóttir
Félagasamtökin “Vinir í bata” eru
samtök sem ég fann til að hjálpa
mér við þessa úttekt sem var
mjög sársaukafull á köfl um. En
mitt í sársaukanum voru “lækn-
ingadagar” þar sem tækifæri til
að ljúka málum gafst, afhenda
Guði það sem ég var búin að
sækja og dusta af.
Ég hef burðast með brotna sjálfs-
mynd í gegnum lífi ð og litið á
mig sem ómögulega manneskju,
jafnvel fengið að heyra að ég
væri ómöguleg og merkilegt
hvað úr mér hafi ræst.
Á lækningadögunum kom Guð
og lagði myndina saman fyrir
mig, til að rétta hana af.
Mér leið allan tímann eins og
haldið væri á mér eins og litlu
barni, eins og barni sem foreldri
heldur á þétt í fangi sér. Ég
fékk að heyra orð eins og “elsku
stelpan mín”, “elsku barnið mitt”,
“yndislega dóttir mín”, “ég elska
þig, ég elska þig, ég elska þig”.
Þetta var allt sem ég þurfti svo
að heyra. Mér hafði liðið eins og
enginn gæti elskað mig, af því ég
væri svona eða hinsegin. En Guð
er tilbúinn að taka allt sem ég
hafði gengið með, sársaukann,
höfnunina, einmanaleikann og
fl eira. Í dag fi nn ég að hlutir sem
hrjáðu mig, gera það ekki lengur.
Ég er frjáls og hef fengið lækn
ingu inn í líf mitt sem Guð einn
gat gefi ð mér. Vinir í bata hafa
leitt mig að lækningunni, lækn-
ingadagarnir gáfu mér tækifæri
til að taka við lækningunni en
Guð gaf lækninguna.
Ásta Lóa Jónsdóttir
Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogur, Sími 564 2355, www.vegurinn.is
SUNNUDAGINN 22. JÚNÍ Á VÍÐISTAÐATÚNI
19:00 Lofgjörðarsveit Vegarins
19:30 Story Tellers
20:00 Siggi Kapteinn & blúsband
21:00 Herbert Guðmundsson