Fréttablaðið - 06.07.2008, Síða 52
20 6. júlí 2008 SUNNUDAGUR
Þar sem bensín-
verð fer hækk-
andi og Iceland
Express ákvað
að lenda í Kefla-
vík einmitt á
miðjum vinnu-
degi ákvað ég að
taka flugrútuna
frá Keflavíkurflug-
velli í vikunni. Það
var greinilegt strax að það voru
ekki margir Íslendingar á leiðinni
til höfuðborgarinnar í þessari til-
teknu rútu.
Fyrsta vísbendingin um það
kom þegar út var komið. Ég ætlaði
auðvitað að labba beint að farang-
ursgeymslunni og skutla töskunni
minni þangað inn, en komst ekki
að fyrir fólki. Það var ekki fyrr en
ég leit í kringum mig að ég fattaði
að ástæða þess var einföld: fólkið
stóð í einfaldri röð og beið þess
rólegt í hávaðarokinu að komast
að geymslunni og setja töskurnar
inn. Svo var önnur einföld röð til
að komast upp í rútuna. Ekki beint
íslenska leiðin.
Þegar ég settist upp í rútuna
fann ég mér fínt gluggasæti og
horfði út um gluggann, eins og ég
hafði gert í annarri rútu á leiðinni
á flugvöll í Þýskalandi nokkrum
klukkutímum fyrr. Munurinn var
bara sá að þar var blankalogn, 25
stiga hiti og sól, en í Keflavík var
rok og rigning. Ég ákvað að það
tæki því ekki að reyna að sofna, en
horfði þess í stað bara út um
gluggann á landið mitt og hlustaði
í leiðinni á túristana í sætunum í
kringum mig.
Á leiðinni í bæinn bar margt
merkilegt fyrir augu túristanna.
Þeim þótti merkilegt að sjá bragga
og landslagið var auðvitað umtals-
efni. Álverið í Straumsvík, sem
mögulega stingur ekki eins í augu
í sólskini og blíðu var hrikalegt í
rigningunni. En túristunum brá
langmest þegar þeir voru rétt að
komast á leiðarenda. „Bíddu nú
við, hér er annar flugvöllur, en
skrýtið,“ sagði einn og annars
staðar í rútunni heyrðist „hvers
vegna í ósköpunum er eiginlega
flugvöllur hér?“ Ég vildi að ég
hefði getað svarað því, en ég skil
bara ekkert í því sjálf.
STUÐ MILLI STRÍÐA Hvers vegna er eiginlega flugvöllur hérna?
ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR FERÐAÐIST MEÐ FLUGRÚTUNNI Í BÆINN
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Rúna!
Halló Ragna, er
allt í lagi hér?
Ragga og ég höfðum
það huggulegt áður
en þú mættir hingað.
Af hverju ertu búinn
að hlamma feitum
afturendanum á þér í
stólinn?
Af því að
við erum
trúlofuð?
Það skiptir engu máli. Þú
ættir bara að snáfa burt!
Snáfaðu!
Haraldur,
ekki ...
Ég hélt kannski
að hann myndi
ekki vilja slást
við mann með
gleraugu ...
Flestir vilja nú
helst slást við
menn með
gleraugu.
Langflestir!
Það er
verið að
sækja mig.
Sjáumst.
Haldið matn-
um heitum.
Ég verð seint á
ferðinni.
Ég þarf
að hitta
ráðgjafann
minn.
Það mikilvægasta er
að þú haldir kúlinu.
Sara er nálægt því að
verða skotin í þér, en
þá máttu ekki vera
of venjulegur. Mínar
heimildir herma
að það sem henni
finnist best við þig
sé hárið, brosið og
tónlistin þín. En við
þurfum aðeins að
ræða klæðaburðinn
á þér ...
Hvernig
á
að lækna
svefn sýk
i?
Bú!
Hver bað hann að
segja sína skoðun?
Því miður, litli, þú ert
ekki nógu stór fyrir
þetta tæki.
Rólegur, Hannes,
ég er með hug-
mynd.
Þegar ég var barn settum
við pappír í skóna til að vera
nógu stórir fyrir
tækin.
Ertu þetta
öruggt
Meinarðu tækið,
eða hvað?
Gestir verða
að vera svona
háir fyrir tækið
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem
er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig
um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana
og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!
Auglýsingasími
– Mest lesið