Fréttablaðið - 24.07.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
24. júlí 2008 — 200. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ÚTIVIST OG FERÐALÖG
Leyndir fjársjóðir
Sérblað um útivist og ferðalög
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÞÓRHILDUR JÓNSDÓTTIR
Alltaf haft skoðanir á
augabrúnum fólks
• tíska • sumar • heimili • heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN SUMAR FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Þórhildur Jónsdóttir snyrtifræðingur hefur lengi
haft mikinn áhuga á snyrtingu og förðun. „Ég hef alltaf haft áhuga á snyrtingu og förðun
almennt. Bara frá því að ég var unglingur og barn í
rauninni,“ segir Tóta, eins og húfór mjög
mitt.“ Tóta ákvað að leggja snyrtifræðina fyrir sig
þegar mamma hennar sá auglýsingu um námið.
„Mamma var að hugsa um að fara sjálf Svo á
við okkur á því að það ák
Stíll Þórhildar er breytilegur og fer eftir aðstæðum og skapi hennar.Farðaði vinkonur ung
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/ARN
ÞÓ
R
ÍSLENSKT Í VETURÍslenskir hönnuðir eru farnir að leggja línurnar fyrir veturinn en margir þeirra eru með vinnustofur og verslanir í miðbænum.
TÍSKA 2
SKIPALAGT ELDHÚSÍ litlum eldhúsum skiptir skipulagið máli og mikil-vægt er að öll vinnutæki séu rétt staðsett svo rýmið nýtist sem best.
HEIMILI 4
útivist og ferðalög
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008
Landsmót skáta
Aðalsteinn Þorvalds-
son varð skáti á full-
orðins aldri. Hann er
nú á landsmóti.
TÍMAMÓT 48
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
STJÓRNMÁL „Ekki hefur verið hætt
við Bitruvirkjun heldur undirbún-
ingi hætt meðan málið er skoðað
betur,“ segir Kjartan Magnússon,
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur.
Stjórn Orkuveitunnar samþykkti
á fundi sínum í maí að hætta undir-
búningi Bitruvirkjunar og fresta
frekari framkvæmdum á svæðinu.
Borgarstjóri óskaði borgarbúum
þá til hamingju með að Bitruvirkj-
un hefði verið slegin af. Kjartan
sagði við það tilefni að rétt hefði
verið hjá borgarstjóra að þessar
framkvæmdir hefðu verið slegnar
af, hvað sem yrði í framtíðinni. Nú
segir Kjartan alls ekki fallið frá
öllum áformum um virkjunina.
„Við brugðumst við mjög ein-
dregnu áliti Skipulagsstofnunar
um mat á umhverfisáhrifum virkj-
unarinnar og samþykktum því að
fresta framkvæmdum.“ Hann
segir spurningar um, hvort hlut-
verk Skipulagsstofnunar sé að taka
afstöðu gegn virkjunum eins og
þar var gert, hafi komið fram í
kjölfarið og verði skoðaðar.
„Ákvarðanir um framhald verk-
efnisins verða teknar í samráði við
eigendasveitarfélög Orkuveitunn-
ar og sveitarfélagið Ölfus sem
stýrir skipulagi svæðisins.“ Kjart-
an bendir einnig á að þrátt fyrir að
ákveðið hafi verið að doka við með
Bitruvirkjun sé unnið að miklum
framkvæmdum á Hellisheiði.
Bjarni Benediktsson og Illugi
Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins, gagnrýna í Markaðn-
um í gær að meirihlutinn í borg-
inni virðist hafa tekið Bitruvirkjun
út af borðinu. Bjarni kveðst telja
menn þar hafa hlaupið á sig.
„Ég trúi því að áður en mjög
langt um líður muni menn átta sig
á því og vinda ofan af þeirri
ákvörðun og taka aftur til við
virkjanir á Hellisheiðinni,“ segir
Bjarni. - ht
Kjartan ekki hættur
við Bitruvirkjun
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir að ekki hafi verið fallið frá öll-
um áformum um Bitruvirkjun. Virkjunin var slegin af fyrir tveimur mánuðum.
HLÝTT Í VEÐRI Í dag verður víða
suðaustan 3-8 m/s en 5-10 SV- og
V-til. Bjart með köflum norðan- og
austanlands en dálítil væta sunnan-
og vestanlands. Hiti á bilinu 10-20
stig, hlýjast norðaustan til.
VEÐUR 4
14
16
17
13
14
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
Keppir í siglingum
Hefur stundað siglingar frá níu ára aldri
FÓLK 50
Besta myndin
Heath Ledger þykir
stórkostlegur í The
Dark Knight, bestu
Batman-myndinni
frá upphafi.
KVIKMYNDIR 36
LANDSMÓT SKÁTA UNDIRBÚIÐ Þessar skátastelpur eru frá Wales og taka þátt í Landsmóti skáta sem fer fram að Hömrum við
Akureyri um helgina. Í gær unnu skátarnir hörðum höndum að því að setja upp tjaldbúðir og reisa hlið. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
EFNAHAGSMÁL Gjalddagi krónu-
bréfa mun hugsanlega hafa
jákvæð áhrif á gjaldeyrismarkað,
segir Lúðvík Elíasson, hagfræð-
ingur hjá Landsbankanum.
„Líklegt er að áhrifin verði að
einhverju leyti jákvæð þar sem
hugsanlegt er að aðgengi
almennings og fyrirtækja að
fjármögnun í erlendri mynt batni
í kjölfarið,“ segir Lúðvík
Hann telur að gengið komi ekki
til með að veikjast meira þrátt
fyrir stóran gjalddaga í haust.
Landsbankinn gaf í gær út
stýrivaxtaspá þar sem gert er ráð
fyrir lækkun í nóvember.
-bþa/ sjá síðu 22
Stýrivaxtalækkun í nóvember:
Gjaldagi krónu-
bréfa losar fé
Valdmörk og mótvægi
„Lýðræðið er flókið gangverk. Það
útheimtir bæði frjálsar kosningar
og styrkar stofnanir til að veita
kjörnum stjórnvöldum aðhald, svo
að þau virði valdmörk sín,“ skrifar
Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 24
Íslandsmótið í
höggleik
Birgir Leifur tekur
út völlinn í Eyjum.
ÍÞRÓTTIR 46
RÚSSLAND, AP Flokkur um þrjátíu
stórra bjarna drap og át í gær tvo
menn sem stóðu vörð við platínu-
námu á Kamtjatkaskaga í
Rússlandi.
Um fjögur hundruð starfsmenn
námunnar neita að fara til vinnu
af ótta við birnina. Birnirnir eru
þriggja metra langir og vega allt
að sjö hundruð kíló.
Yfirvöld segja að veiðimenn
verði sendir til að hrekja burt eða
drepa birnina. Bjarnaárásir eru
tíðar á hinum afskekkta Kamt-
jatka-skaga í Austur-Rússlandi. - gh
Náma á Kamtjatkaskaga:
Hópur bjarna
átu tvo menn
KAMTJATKA-BJÖRN Kamtjatka-birnir eru
stórir og ógnvænlegir. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, FBL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, segir
það ekki hafa verið erfiða ákvörð-
un að vera viðstaddur Ólympíu-
leikana í Kína í samtali við blaða-
mann Fréttablaðsins í New York.
Ólafur segir Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands hafa boðið sér að
verða viðstaddan leikana fyrir
tveimur árum. Þá segir Ólafur að
Hu Jintao, forseti Kína, hafi boðið
honum formlega á viðburðinn
þegar hann var staddur í Kína
fyrir tveimur árum. Hu Jintao
hafi svo ítrekað boð sitt þegar þeir
hittust í fyrra.
Ólafur segir einnig að í stjórnar-
setu sinni í Ólympíuleikum fatl-
aðra hafi sér orðið ljóst að íþróttir
geti verið öflugt tæki til að auka
skilning á milli þjóða.
„Þar að auki hef ég sannfærst
um það á undanförnum árum, eftir
að hafa setið fjölda viðræðu funda
með kínverskum áhrifamönnum
að vænlegasta leiðin til að styrkja
mannréttindi og lýðræðisþróun í
Kína er að eiga jákvæðar viðræð-
ur við kínverska ráðamenn, sýna
þeim virðingu og sóma en um leið
tengja þá inn í hina alþjóðlegu
umræðu. Aðrar aðferðir, sem ein-
kennast fremur af fjandskap og
gagnrýni, skila ekki jafn miklum
árangri eins og dæmin sanna.“
- kdk, - sh
Forsetinn segir það ekki erfiða ákvörðun að vera viðstaddur Ólympíuleikana:
Virðing skilar meiru en fjandskapur