Fréttablaðið - 24.07.2008, Side 65
FIMMTUDAGUR 24. júlí 2008 45
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Sigfús Sigurðsson skrifaði í gær
undir tveggja ára samning við
Val, með möguleika á einu ári til
viðbótar.
Sigfús fór frá Val árið 2002 til
Magdeburgar í Þýskalandi áður
en hann fór til Ademar Leon á
Spáni árið 2006.
Til greina kemur að línumaður-
inn snjalli þjálfi yngri flokka hjá
Val. - hþh
Sigfús Sigurðsson aftur í Val:
Gerði tveggja
ára samning
AFTUR Í VAL Landsliðsmaðurinn Sigfús
Sigurðsson er aftur kominn á Hlíðar-
enda. MYND/VALUR
HANDBOLTI Fram og Akureyri hafa
loks sæst á kaupverð á Magnúsi
Stefánssyni, sem iðulega er
kenndur við Fagraskóg.
Lengi hefur legið í loftinu að
stórskyttan gengi í raðir Safa-
mýrarfélagsins. Hann sagði við
Fréttablaðið í gær að aðeins ætti
eftir að ganga frá formsatriðum
áður en hann skrifar undir
samninginn.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er kaupverðið nokkur
hundruð þúsund krónur.
Þá hafa fjórir leikmenn
framlengt samning sinn við
Fram, Andri Berg Haraldsson,
Haraldur Þorvarðarson, Magnús
Erlendsson markmaður og
hornamaðurinn fljúgandi Guðjón
Drengsson. Framarar æfa í fyrsta
skipti í dag undir stjórn Viggó
Sigurðssonar sem tók við Fram í
sumar. - hþh
Magnús Stefánsson í Fram:
Loksins sættir
um kaupverðið
LOKSINS Magnús Stefánsson mun að
öllu óbreyttu ganga í raðir Fram á næstu
dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Íslenska 20 ára landslið
kvenna hefur vakið mikla athygli
á HM í Makedóníu með því að
gera jafntefli í tveimur fyrstu
leikjum sínum. Stelpurnar spila
við Þjóðverja í dag.
„Það var sérstaklega svekkj-
andi að ná ekki sigri í leiknum á
móti Slóveníu en við áttum mikla
möguleika í báðum leikjum,“ sagði
Þórey Rósa Stefánsdóttir horn-
maður 20 ára liðsins sem var
markahæst í liðinu í síðasta leik
með sex mörk. „Við verðum bara
að vinna annaðhvort Þjóðverja
eða Rúmena,“ segir Þórey.
Þórey er ánægð með allar
aðstæður úti í Makedóníu og
kvartar ekki yfir hitanum. „Það
var fínt í dag og allt í lagi í gær en
það var rosalega heitt á mánudag-
inn. Maturinn hefur líka komið á
óvart en hann er fínn. Hótelher-
bergin eru reyndar svolítið make-
dónísk og ekki upp á margar
stjörnur en það er alveg hægt að
lifa við þetta,“ segir Þórey í létt-
um tón. „Ef við komumst ekki
áfram í milliriðilinn þá þurfum
við að skipta um bæ og skipta um
hótel en annars verður við áfram
hérna,“ bætti hún við.
Íslenska liðið varð fyrir áfalli
þegar Stella Sigurðardóttir meidd-
ist í fyrsta leiknum gegn Ungverj-
um eftir að hafa skorað 7 mörk og
gefið 6 stoðsendingar. Stella var
ekki með í síðasta leik.
„Stella er búin að eiga við axlar-
meiðsli sem hafa verið að angra
hana í nokkra mánuði. Hún var
fjórum sinnum hjá sjúkraþjálfara
í gær og í nuddi áðan þannig að ég
held að hún verði klár. Það var
mikill missir að hafa hana ekki
gegn Slóveníu því hún er í hörku
formi og átti stórleik á móti Ung-
verjum,“ segir Þórey.
„Allir hérna úti halda að við
séum litla liðið en við vitum alveg
hvað við getum og við höfum sýnt
það áður. Það er gríðarleg stemmn-
ing í liðinu. Það er gríðarlega
góður mórall í liðinu, við erum
búnar að vera lengi saman og það
er búinn að vera draumur þessa
liðs í tvö til þrjú ár að komast á
lokakeppni. Það var því frábært
að fá þær fréttir að við fengjum
að fara,“ segir Þórey. „Þegar
maður er kominn á lokakeppni
HM þá er formið ekki það sem
maður er að hugsa um
þegar maður er kom-
inn í leikina. Við
erum mikið bar-
áttulið og það er
hausinn sem
drífur mann
áfram núna en ekki
kannski líkam- lega formið.
Við ætlum bara að vinna Þjóð-
verja á morgun og fara síðan
rólegar í Rúmeníuleikinn. Það er
markmiðið,“ sagði Þórey ákveðin
að lokum. - óój
Þórey Rósa Stefánsdóttir og stelpurnar í 20 ára liðinu ætla sér sigur á Þjóðverjum á HM í Makedóníu í dag:
Allir hérna úti halda að við séum litla liðið
MARKAHÆST
Þórey Rósa
Stefánsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON