Fréttablaðið - 22.08.2008, Blaðsíða 64
44 22. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Nú þegar „strákarnir okkar“ í handboltalandsliðinu sigra hjörtu lands-
manna er ekki úr vegi að skoða aðeins hið frábæra fyrirbæri sem
handboltarokk var og er, eða kannski er það ekkert lengur? Ég veit
reyndar ekki alveg hvaðan þetta hugtak, handboltarokk, kemur. Þetta er
einfaldlega tungutak sem útvarpsmenn byrjuðu að temja sér og múgurinn
hermdi eftir. Allavega er deginum ljósara að tónlistarmennirnir sjálfir,
sem skópu stefnuna, áttu lítinn þátt í að móta hugtakið, enda eru þeir
væntanlega teljandi á fingrum annarrar handar Suðurríkjamennirnir sem
skilja eðli þessa guðdómlega sports.
Fyrir mér er handboltarokk
einfaldlega rokk sem vel strípaðir
strákar, með flottan kassa og á
kraftmiklum bílum fíla. Sjálfur hef
ég ekkert á móti þessum hópi enda
tilheyrði ég honum sjálfur hér á
árum áður. Það gerir að verkum að í
hillunum mínum má finna nöfn
listamanna, já listamanna, á borð við
Creed, Staind, Lit, Machine Head og
fjölmargra annarra sem má hæglega
setja í frægðarhöll handboltamanna.
Mér fannst til dæmis Linkin Park
besta hljómsveit sem ég hafði heyrt
upp úr síðustu aldamótum. Ég kenni
handboltanum um. Hversu sterkar
taugar eru milli Linkin Park og handboltans hefur líka verið sannað á
núverandi Ólympíumóti. Þar má Park ekki eingöngu finna í s-kóreska
landsliðinu heldur einnig í hátalarakerfi kappvallarins.
Ég lagði reyndar aldrei í sveitir eins og 3 Doors Down, Nickelback eða
Puddle of Mud en þær þóttu með sveittari og jafnframt flottari hljóm-
sveitum meðal ekta handboltamanna. Mikið af drullu, smekklegar
klippingar, flottar kúlukeðjur og boot cut-gallabuxur. Gott stöff. Nú er
bara að styðja strákana í dag og úrslitaleiknum og syngja hástöfum
línurnar sem Creed kyrjuðu svo ódauðlega hér um árið. Let me take you
higher …
Áfram Ísland!
LINKIN PARK Park er ekki bara að finna
í s-kóreska landsliðinu heldur einnig í
hátalarakerfi keppnisvallarins í Peking.
> Plata vikunnar
Late of the Pier – Fantasy Black
Channel
★★★★
„Þessi fyrsta plata Iceland Airwaves-
sveitarinnar Late of the Pier er óvenju
djörf blanda ólíkra tónlistartegunda.
Glysrokk, fönk, nýbylgja, progg og
rafpopp eru á meðal hráefna í súpu
sem svínvirkar.“ - tj
Ný plata frá hljómsveitinni Coldplay er
væntanleg strax á næsta ári og mun
hún fylgja eftir vinsældum Viva La
Vida or Death and All His Friends
sem kom út í júní síðastliðnum. Sveit-
in hefur þegar tekið upp meirihluta
plötunnar og vill koma henni í búðir
sem allra fyrst.
„Upptökurnar á Viva La Vida
gengu ótrúlega vel. Samstarf
þeirra við upptökustjórann
Brian Eno gekk eins og í sögu
og þeir tóku upp mun fleiri lög
en þeir komu fyrir á einni
plötu,“ sagði starfsmaður hjá
EMI, útgáfufyrirtæki Cold-
play.
Stutt er síðan söngvarinn
Chris Martin sagði að sveitin
hefði nýverið starfað með Kylie
Minogue og nýtt lag með þeim
væri væntanlegt á næsta ári. „Það
verður á plötu sem kemur út 2009.
Platan mun loka áratugnum á
snyrtilegan hátt og eftir það veit
ég ekki hvað gerist,“ sagði
hann. Coldplay á tvær
plötur eftir af samningi
sínum við EMI og fari
svo að ný plata komi út á
næsta ári og hugsanlega
safnplata í kjölfarið verð-
ur sveitin laus allra mála.
Ný plata á næsta ári
COLDPLAY Ný plata frá Coldplay
er væntanleg strax á næsta ári.
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!
Seattle-sveitin Fleet Foxes
er á meðal heitustu ný-
liðanna í poppheiminum
á árinu 2008, en fyrsta
platan hennar samnefnd
sveitinni hefur verið að fá
hástemmda lofdóma beggja
vegna Atlantshafsins að
undanförnu. Trausti Júlíus-
son kynnti sér þetta korn-
unga band.
„Okkar markmið er að vera ævin-
týragjarnir og trúir sjálfum okkur
og hafa gaman af því sem við erum
að gera saman,“ segir Robin Peck-
nold söngvari, gítarleikari og
aðallagasmiður Seattle-sveitarinn-
ar Fleet Foxes, í nýlegu viðtali.
Yfirlýsing sem gæti átt við aðra
hverja nýstofnaða hljómsveit, en
munurinn á Fleet Foxes og öllum
hinum er að Fleet Foxes er nýja
uppáhaldshljómsveit tónlistar-
áhugamanna og gagnrýnenda úti
um allan heim. Og Robin heldur
áfram að lýsa sveitinni: „Það
skemmtilegasta sem ég geri í heim-
inum er að syngja í harmóníu með
öðru fólki þannig að vð gerum fullt
af því. Við elskum kassagítara, raf-
magnsgítara, stórar tom-trommur,
mandólín, sílófóna, bassagítara,
bassapedala, orgel, píanó, kótó og
mest af öllu harmóníur og melód-
íur. Okkur hefur tekist ætlunar-
verkið ef við náum að gera lag þar
sem öll hljóðfærin eru að gera eitt-
hvað áhugavert og melódískt.“
Æskuvinir
Fleet Foxes er skipuð þeim Robin,
Skye Skjelset gítarleikara, Casey
Westcott hljómborðsleikara, Josh
Tillman trommuleikara og Christi-
an Wargo bassaleikara. Robin og
Skye eru æskuvinir og byrjuðu að
spila á gítar saman fyrir tíu árum
eða svo og ákváðu að stofna hljóm-
sveit. Þeir störfuðu saman undir
ýmsum nöfnum, t.d. Lemon/Lime
og Pineapple, en fyrir tveimur
árum varð Fleet Foxes til. Þeir
vöktu snemma athygli fyrir góða
frammistöðu á tónleikum og náðu
eyrum útsendara Seattle-plötu-
fyrir tækisins Sub Pop sem gerði
við þá samning í fyrra. Fyrsta
útgáfan var EP-platan Sun Giant
sem kom út í febrúar og fyrsta
stóra platan, Fleet Foxes, kom svo
út nú í sumar.
Líkt við Beach Boys og CSN&Y
Vegur Fleet Foxes upp á stjörnu-
himininn hefur verið hraður
síðustu vikur og mánuði. Þeir hafa
spilað mikið og eru bókaðir út árið
og platan hefur fengið dúndur-
dóma, m.a. fullt hús í Mojo og
Guardian og 9/10 hjá Pitchfork-
media. Tónlistin er heillandi þjóð-
lagaskotið indípopp borið uppi af
fínum lagasmíðum og frábærum
söng. Henni hefur m.a. verið líkt
við Beach Boys; Crosby, Stills,
Nash & Young; Band of Horses og
annað amerískt nýstirni, Bon Iver.
Áhrifin frá tónlist sjöunda áratug-
arins eru augljós, en skýringuna
má finna í því að Robin ólst upp við
tónlist foreldra sinna, Bob Dylan,
Beach Boys, Neil Young, Simon &
Garfunkel og fleiri.
Óbyggðir og ævintýri
Í textum Fleet Foxes er mikið talað
um óbyggðir, t.d. í Ragged Wood,
White Winter Hymnal og Medow-
lark, ekki beint umhverfið í stór-
borginni Seattle. Að sögn Robins
átti hann við ofnæmisvandamál að
stríða þegar hann var unglingur og
varð að vera meira og minna inni í
þjú ár. Þá sökkti hann sér inn í
ímyndaðan heim með því að lesa
bækur eins og Lord of the Rings.
Hann segir tónist Fleet Foxes vera
á einhvern hátt eins og ævintýri
sem maður getur flúið inn í til að
gleyma stað og stund.
Raddaður ævintýraheimur
FLEET FOXES Söngvarinn Robin Pecknold líkir tónlist sveitarinnar við ævintýraheim sem maður getur flúið inn í til að gleyma stað
og stund.
Næsta plata hljómsveitarinnar
GusGus, sem kemur út eftir ára-
mót, verður tekin að mestu leyti
upp „live“. Verður það í fyrsta
sinn sem sveitin prófar slíkt.
„Konseptið á næstu plötu eru
búið að taka dálítið skýra mynd
hjá okkur. Það er eiginlega forms-
atriði að klára hana,“ segir Biggi
Veira úr GusGus. „Það hefur verið
nefnt við okkur að við höfum
aldrei náð „live-fílingnum“ inn á
plöturnar. Við höfum unnið plöt-
urnar og útsett „live-settið“ út frá
því og þaðan hafa lögin tekið öðru-
vísi stefnu,“ segir hann.
Daníel Ágúst mun koma meira
við sögu á nýju plötunni en á undan-
förnum plötum og eru það góð tíð-
indi fyrir aðdáendur GusGus.
Fyrir utan þátttöku hans verður
platan að stórum hluta án söngs.
„Forever-platan [síðasta plata
GusGus] var eðlilegt framhald af
Attention. Núna þurfum við pínu-
lítið að finna okkur upp á nýtt,“
segir Biggi.
Fram undan hjá GusGus eru
tónleikar í Moskvu 30. ágúst og í
Tókýó 11. október. Því næst er
röðin komin að Iceland Airwaves
og miðað við stemninguna sem
var á tónleikum GusGus á Nasa
um síðustu helgi mega aðdáendur
sveitarinnar eiga von á góðu á
þeirri tónlistarhátíð. - fb
Næsta plata formsatriði
DANÍEL ÁGÚST Hljómsveitin Gus Gus er
að undirbúa glænýja plötu sem kemur
út á næsta ári. Daníel Ágúst verður þar í
stærra hlutverki en áður.
> Í SPILARANUM
Esja - Esja
Wanker of the 1st Degree - Retrograde
Sagan af Eyfa (bönnuð börnum) - Stórsveit Guðmundar
Inga
WANKER OF THE 1ST DEGREEESJA