Fréttablaðið - 22.08.2008, Side 78
58 22. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. áfall, 6. í röð, 8. kúgun, 9. starfs-
grein, 11. öfug röð, 12. ávöxtur,
14. miklu, 16. í röð, 17. drulla, 18.
óhreinka, 20. íþróttafélag, 21. nudda.
LÓÐRÉTT
1. hæfileiki, 3. tveir eins, 4. tegund af
brauði, 5. málmur, 7. aftursæti, 10.
hola, 13. röð, 15. murra, 16. spenna,
19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lost, 6. áb, 8. oki, 9. fag,
11. on, 12. akarn, 14. stóru, 16. þæ,
17. for, 18. ata, 20. kr, 21. niða.
LÓÐRÉTT: 1. gáfa, 3. oo, 4. skonrok,
5. tin, 7. baksæti, 10. gat, 13. róf, 15.
urra, 16. þan, 19. að.
„Dagskrárstjórinn vill greinilega halda í möguleik-
ann á kynferðislegri spennu. Ég veit ekki hvort ég
get komið til móts við hann þar,“ gantast sjónvarps-
konan Eva María Jónsdóttir sem verður spyrill í
Gettu betur – spurningakeppni framhaldsskólanna.
Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri innlendrar
dagskrárdeildar RÚV, hefur gengið frá ráðningu
Evu Maríu sem verður önnur kvenna til að annast
þetta vandasama hlutverk. Sögulegt er einnig að
stigavörðurinn verður karlkyns. „Okkur þótti
forvitnilegt að víxla þessu alveg með tilliti til
kynja,“ segir Þórhallur. Áður hefur komið fram að
dómari er Davíð Þór Jónsson og hann er að vonum
ánægður með spyrilinn: „Hún er skýrmælt og
skjávön.“
Evu Maríu hefur alltaf fundist keppnin skemmti-
leg, eins og flest sem komið er til ára sinna og er
hluti útvarpssögunnar. Gettu betur hefur lifað góðu
lífi þótt tímarnir breytist. Og sé einmitt litið til
sögunnar má segja að kynferðisleg spenna milli
stigavarðar og spyrils hafi þar verið fyrir hendi án
þess að farið sé nánar út í þá sálma.
„Ég sló þessu fram í gríni í óformlegu spjalli við
Þórhall. Að þá væri rétt að stigavörðurinn væri
karlkyns. Ef ég fæ að velja hver stigavörðurinn er
get ég lofað Þórhalli ákveðinni spennu. En það er
varla í mínum höndum að ráða stigavörðinn,“ segir
Eva María.
Verkefnið leggst vel í Evu Maríu þótt hún segist í
gegnum tíðina hafa verið hrædd við unglinga. „Þetta
er fín ögrun. Kannski er ég það ekki lengur heldur
er þetta einhver gömul bábilja í mér sem ég hef
læknast af. Ég hlakka til að kynnast þeim og vita
hvernig þeir eru.“
Eva María verður eftir sem áður með viðtalsþætti
sína á sunnudagskvöldum fram í desember. Þá tekur
Gettu betur við og verður þátturinn á laugardags-
kvöldum til að gefa honum aukið vægi.
Stefán Pálsson sagnfræðingur er öðrum mönnum
fróðari um Gettu betur og hann mælti sérstaklega
með því á sínu bloggi fyrir um tveimur mánuðum að
Eva María veldist til starfans. „Steinunn Sigurðar-
dóttir er eini kvenspyrillinn til þessa. Árið 1990. Það
var sérkennileg keppni því hún var strípuð spurn-
ingakeppni. Stefán Jón Hafstein tók við árið eftir og
þá varð keppnin og umgjörðin miklu stærri.“
Eva María segir Gettu betur nýbreytni fyrir sig;
nú sé fengist við beinharðar staðreyndir en ekki
túlkanir. Hún hefur aldrei hneigst til að leggja
staðreyndir á minnið. „Stórkostlegt að vera lélegur í
einhverju en vera samt fundið hlutverk í því. Ég hef
ágæta framsögn og get borið spurningarnar rétt
fram.“
jakob@frettabladid.is
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON: EVA MARÍA SPYRILL Í GETTU BETUR
Kynferðisleg spenna í
Gettu betur hugsanleg
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR OG DÓTTIR Sló því fram í gríni við
Þórhall að ef hún tæki spyrilshlutverkið að sér væri réttast að
stigavörðurinn yrði karlkyns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Pétur Jóhann Sigfússon.
2 Guðmundur Þóroddsson.
3 Hercules.
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég er núna að hlusta á frábær-
an nýjan disk með Múgsefjun,
Hjaltalín og nýtt efni eftir KK.
Þægilegast er að hlusta á KK og
brainstorma. Múgsefjun kemur
mér í stuð, sértaklega Þú ert svo
lauslát. Svo er Hjaltalín er alltaf
skemmtileg.“
Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri og
fyrirtækjaeigandi.
Tónlistarhátíðin Iceland Music
Festival 2008 verður haldin í fyrsta
sinn á Tunglinu um miðjan sept-
ember. Á meðal þeirra sem koma
fram eru Ultra Mega Technobandið
Stefán, Sometime, Sesar A, Kicks!,
Dabbi T, The Nellies og Dag-
straumur.
Maðurinn á bak við hátíðina er
hinn sextán ára Steinar Jónsson,
framkvæmdastjóri hins
nýstofnaða útgáfufyrir-
tækis MediStream Rec-
ords. „Mig langaði að
halda eitthvað skemmti-
legt festival,“ segir
Steinar um hátíðina.
„Þeir sem voru í kring-
um mig vildu geta farið á
Iceland Airwaves en þar
er átján ára aldurstak-
mark. Þannig að ég vildi
halda þessa hátíð svo krakkar yfir
þrettán ára gætu fengið þessa Air-
waves-upplifun,“ segir hann.
Undirbúningur fyrir hátíðina er í
fullum gangi og sér Steinar
alfarið um hann sjálfur.
Vonast hann til að fimmt-
án hljómsveitir komi
fram á hátíðinni og er
helmingurinn þegar búinn
að staðfesta komu sína.
Leit stendur einnig
yfir að fersku elektró-
bandi sem fær þann
heiður að opna hátíð-
ina og geta áhuga-
samir sent umsókn á
netfangið contact@
mediastreamrecords.
com.
Hvað varðar Media-
Stream Records þá er
Steinar þegar búinn
að semja við Haffa
Haff, Sesar A, Daniel
Alvin og Dabba T og
vonast til að bæta fleiri skjólstæð-
ingum í sarpinn. „Þetta er mjög
gaman. Maður er kominn með svo-
lítið aukavald. Ég er búinn að gera
hitt og þetta áður og gaf til dæmis
út Dabba T-plötuna. Maður er far-
inn að þekkja allt þetta fólk,“ segir
hann. - fb
Tónlistarhátíð fyrir unglinga
STEINAR JÓNSSON Steinar
undir býr þessa dagana tónlistar-
hátíðina Iceland Music Festival
sem verður haldin í september.
ULTRA MEGA TECHNOBANDIÐ STEFÁN Technobandið verður á meðal þeirra sem
troða upp á tónlistarhátíðinni.
Veiðifélagið Oddhvassir tindar var form-
lega stofnað árið 2002 af ekki ómerkari
veiðimönnum en Ragnari Páli Steinssyni
og Heiðari Erni Kristjánssyni, báðir
kenndir við Botnleðju, Sindra Kjartans-
syni kvikmyndagerðarmanni, Unnari
Jónssyni og plötusnúðnum Kristni Gunn-
ari Blöndal. Félagið dregur heiti sitt af
oddhvössum tindum sem blasa við mönn-
um hjá Hítarvatni á Mýrum.
„Við höfum farið árlega í veiði eftir
stofnun félagsins og þá oftast að Hítar-
vatni. Þetta eru alvöru harðkjarna-veiði-
túrar sem við förum í, hér eru engir Range
Roverar með í ferð heldur bara karlmenn
með derhúfur á pikköpp og mikil læti,“
segir Raggi.
Tveir meðlimir hafa bæst við hópinn
síðan hann var stofnaður, þeir Jón Atli úr
Hairdoctor og Friðrik Ásmundsson, kvik-
myndagerðarmaður. „Veiðin sjálf er í raun
í aukahlutverki í þessum veiðiferðum.
Þetta er meira spurning um ljúfar sam-
verustundir og söng og gleði,“ segir Raggi
en bætir við að stundum hafi komið til
slagsmála á milli manna, „En það gerir
ferðina bara eftirminnilegri,“ bætir hann
við.
Ragnar segir að það ríki mikil
valdaskipting innan félagsins,
„Sindri er æðstitindur og forseti,
næstur er ég og minnsti tindurinn
er Jón Atli, einfaldlega vegna þess
að hann er nýjasti meðlimurinn.
Nýir meðlimir þurfa að ganga í
gegnum margt til þess að fá inn-
göngu í hópinn. Þeir mega til
dæmis ekki syngja með okkur,
ekki veiða og ekki drekka í fyrstu
ferðinni sinni,“ segir Raggi. - sm
Þekktir tindar saman í veiðifélagi
RAGGI LEÐJA
Segir hópinn
fara í harðkjarna
veiðiferðir.
NÝJASTI MEÐLIM-
URINN Jón Atli
þurfti að þreyta
inntökupróf til þess
að fá inngöngu.
ÆÐSTITINDUR
Sindri er ótvíræður
foringi hópsins
Leikhúshaustin eru
nú óðum að taka á sig
mynd og í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu hefjast
sýningar á verkinu
Mamma mamma
aftur 31. ágúst,
en leikritið hlaut
frábærar viðtökur
í vor. Einhverjar
breytingar verða
á leikhópnum því
Birgitta Birgis-
dóttir er nú sjálf að verða mamma.
Fyrsta barn hennar og eiginmanns-
ins Örvars Smárasonar í múm er
væntanlegt í september og í stað
Birgittu mun Laufey Elíasdóttir því
kasta sér um gólfin í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu í haust.
Tónleikarnir á Klambratúni á Menn-
ingarnótt verða með glæsilegasta
móti. Hljómsveitirnar sem koma
fram að þessu sinni
eru Ný Dönsk, Jet
Black Joe, Magn-
ús og Jóhann,
Bloodgroup,
Fjallabræður og
Hjaltalín. Þar með
mun dagskráin þó
ekki vera upptalin
því Páll Óskar
Hjálmtýsson mun
koma fram ásamt
síðastnefndnu
hljómsveitinni
og syngja lag sitt
Þú komst við hjartað
í mér, sem Hjaltalín hefur einmitt
breitt yfir með glæsibrag á öldum
ljósvakans.
Eftir gott og ærlegt sumarfrí snýr
sjónvarpsstjarnan Jón Ársæll
Þórðarsson til baka. Hann, og hans
hægri hönd Steini, eru
nú að hefja vetrarstarfið
og leggja drög að næstu
seríu Sjálfstæðs fólks
þar sem garnirnar eru
raktar úr athyglisverð-
um Íslendingum. Þeir
skima nú eftir slíkum
og þiggja allar ábend-
ingar með þökkum.
- sun/- shs/- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI