Fréttablaðið - 04.09.2008, Side 43
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2008 13Sinfóníuhljómsveit Íslands 2008-2009 ● fréttablaðið ● 7
Íslendingum gefst einstakt
tækifæri til að kynna sér meist-
araverk Sibeliusar í október
þegar Sinfóníuhljómsveitin
flytur allar sinfóníurnar og
fiðlukonsertinn á þrennum
tónleikum.
Finnski tónsnillingurinn Jean Si-
belius samdi sjö sinfóníur sem
njóta gífurlegra vinsælda á heims-
vísu og fiðlukonsertinn hans er
meðal þeirra dáðustu sem fyr-
irfinnast. Sinfóníuhljómsveitin
flytur allar sinfóníurnar og fiðlu-
kon sertinn á þrennum tónleikum í
Háskólabíói. Slík Sibeliusar-mara-
þon eru fágæt í tónlistarheiminum
en í hér er um að ræða eins konar
upphitun fyrir tónleikaröð hljóm-
sveitarinnar í Tókýó í byrjun nóv-
ember.
ÁHRIFAMIKLAR NÁTTÚRUMYNDIR
Margir samverkandi þættir gera
sinfóníur Sibeliusar svo áhrifa-
miklar sem raunin er. Litbrigðin
sem hann laðar fram í tónlistinni
eru einstök enda þykja sinfóníurn-
ar oft minna á norrænt landslag.
Sibelius notar kunnuglega hljóma
á óhefðbundinn hátt og í hljóm-
sveitarútsetningum leitar hann
stöðugt að óvenjulegum samsetn-
ingum hljóðfæra til að gefa tón-
listinni nýstárlegan blæ. Þá eru
áhrif finnskra þjóðlaga hvarvetna
merkjanleg í sinfóníum Sibelius-
ar, hvort sem er í notkun gamalla
kirkjutóntegunda eða ósamhverf-
um hrynmynstrum finnskra þjóð-
lagasöngvara.
Það varð ljóst um leið og Sibeli-
us kvaddi sér hljóðs sem tónskáld
að hann hafði hug á að verða þjóð-
artónskáld Finnlands. Hann lærði
á fiðlu sem barn og þegar hann
hafði útskrifast úr Tónlistarskól-
anum í Helsinki hélt hann til Vín-
arborgar til frekara náms. En
fiðlunámið gekk ekki sem skyldi
og í kjölfarið tók áhugi hans á tón-
smíðum að glæðast. Þegar Sibelius
sneri aftur til Finnlands 1891 hafði
hann einsett sér að skapa finnska
tónlist á heimsmælikvarða. Fyrsta
sinfónía hans var frumflutt í apríl
1899 og eftir því sem fleiri fylgdu
í kjölfarið skipaði hann sér í röð
merkustu sinfónískra tónsmiða
sinnar kynslóðar. Er þá mikið sagt,
því þar teljast með tónskáld á borð
við Gustav Mahler, Edward Elgar
og Carl Nielsen.
ERFIÐLEIKAR OG INNBLÁSTUR
Sibelius átti oft í erfiðleikum
með tónsmíðarnar og leitaði þá
eftir guðlegum innblæstri. Hann
skrifaði til dæmis í dagbók sína
árið 1915, eftir að hafa eytt heilu
kvöldi að setja á blað stef fyrir
fimmtu sinfóníuna: „Hvernig ég
raða saman stefjunum – þetta
skiptir mestu máli, og það heillar
mig á dularfullan hátt. Það er sem
Guð almáttugur hafi fleygt niður
mósaíkflísum úr gólfi himnarík-
is og beðið mig um að raða þeim
eins og þær voru áður. Kannski er
þetta góð skilgreining á tónsmíð-
um. Kannski ekki. Hvað veit ég?“
Sinfóníuhljómsveit Íslands
hefur getið sér frábært orð fyrir
túlkun á sinfóníum Sibeliusar.
Heildarhljóðritun SÍ fyrir Naxos-
útgáfuna kom út á árunum 1996-
2000 og hefur hlotið fjölda viður-
kenninga, og var valin ein af útgáf-
um mánaðarins í breska tímaritinu
Gramophone.
Sibelius-hringurinn verður flutt-
ur í Háskólabíói 16.-18. október.
Sibelius-hringurinn
Ljóst var frá upphafi að Sibelius hafði
hug á að verða þjóðarskáld Finnlands.
Það verða 105 hljóðfæraleikarar á sviði Háskólabíós 5. febrúar
þegar SÍ flytur Turangalila-sinfóníuna, sem er eitt magnaðasta
tónverk 20. aldarinnar. Franska tónskáldið Olivier Messiaen, sem
hefði orðið hundrað ára í desember, fór ótroðnar slóðir í sköpun
sinni. Hann var strangtrúaður og fyrir honum var tónlist dæmi
um birtingarkraft guðdómsins á jörðu. Hann sótti meðal annars
innblástur í fuglasöng og varð eins konar fuglafræðingur með-
fram tónsköpuninni. Hann var til dæmis sagður geta borið kennsl
á söng yfir 600 fuglategunda.
Turangalila var pöntuð af Sinfóníuhljómsveitinni í Boston og
það er til marks um þá virðingu sem borin var fyrir snilligáfu
Messiaens að hann fékk fullkomlega frjálsar hendur með verkið.
Engin skilyrði voru sett hvað varðar lengd, stíl, eða stærð hljóm-
sveitarinnar, sem verður ein sú stærsta sem sést hefur á svið-
inu í Háskólabíói um langt skeið. Það var Leonard Bernstein sem
stjórnaði frumflutningi Turangalilu í Boston árið 1949 og hefur
hún farið sigurför um heiminn síðan.
Flestar tónsmíðar Messiaens bera yfirskriftir með trúarlegum
tilvísunum, en í Turangalilu er yrkisefnið jarðbundnara. Þegar
hann samdi sinfóníuna var hann hugfanginn af sögninni um Trist-
an og Ísold og hinar forboðnu ástir þeirra. Turangalila tekur um
80 mínútur í flutningi og þegar Messiaen var spurður hví hún
væri svo löng svaraði hann einfaldlega: „Hún er ástarsöngur.“
Messiaen sagði sjálfur að Turangalila væri frumlegasta verk sitt,
en um leið það lagrænasta, hlýjasta, kraftmesta og litríkasta.
Gleði án enda
Olivier Messiaen við störf 16. mars árið 1972. MYND/GEORGE TAMES
W W W . S A L U R I N N . I S