Fréttablaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Ólafs Sindra Ólafssonar Íslendingar kunna að lifa við knappan kost. Sú list hefur ekki tapast á þessum fáu góðærisárum. Ekki frekar en að við gleymum hvernig elda skal kjötbollur þó við förum á jólahlaðborð eitt kvöld. Hitt sem Íslendingar kunna er að kjafta. Og efnahagskreppa er kjaftagóðæri. Í staðinn fyrir að kjafta um veðrið getum við kjaft- að um verðið. Þvílík tilbreyting. ÉG hef meiri áhyggjur af því að drepast úr leiðindum en hor í yfir- vofandi kreppu. Ég skal glaður lifa á möðkuðu mjöli næstu árin ef það þýðir að ég losni við frekara hringsól um sömu örfáu umræðu- efnin daginn út og inn. Enginn hefur sagt neitt nýtt síðasta mán- uðinn. Ekki frekar en nokkuð nýtt hefur verið sagt um veðrið síðustu árhundruðin. NÝJUSTU upphæðir hvers dags eru ræddar af sömu hvötum og hitatölurnar. „Nú segja þeir að við fáum 580 milljarða lán frá Bret- um!“. Og einhver svarar á innsog- inu: „Já, biddu fyrir þér. Svo er spáð frosti út vikuna.“ Sannleiks- nefndir og hvítbækur verða svo hliðstæða veðurklúbbsins á Dal- vík. Einhverjar smáfréttir af nýj- ustu uppgötvunum eiga eftir að leka í blöðin með reglulegu milli- bili kreppuna á enda svo fólk geti rætt um þær í kaffihléinu. RÆTT er um nýtt og betra þjóðfé- lag með minni áherslu á peninga – en um leið höfum við ekki áhyggj- ur af öðru en peningum. Allt hjal um nýtt sósíalískt Ísland, hópknús og eflda samstöðu er jafn inni- haldslaust og kaffispjall um að orðið sé ólíft á þessu landi fyrir kulda. Best væri að flytja til heitu landanna. Svo er óað og æjað, klárað úr kaffibollanum og kveikt á útvarpinu til að bíða eftir næstu veðurfréttum. Það breytist ekk- ert. Við breytumst ekkert. Við getum talað um það, vissulega. Það höfum við alltaf getað. Spyrj- um bara Jónas frá Hriflu: „ÞJÓÐIN lifir í sífelldum ugg og óró við nýjar gengisfellingar. Þegar Íslendingar skilja þessa hættu, munu þeir gera nauðsyn- legar ráðstafanir til að gjaldmiðill þjóðarinnar verði aftur öruggur, bæði í nútíð og framtíð. Þá getur Ísland í annað sinn orðið heilbrigt og virðulegt þjóðveldi.“ VIÐ verðum ekki betri sem þjóð né sem einstaklingar þó við eigum peninga. Við verðum ekki einu sinni betri þó við njótum virðingar alþjóðasamfélags. Við höfum próf- að hvort tveggja – reyndar með ímynduðum peningum og ímynd- aðri virðingu. Veðrið Í dag er fimmtudagurinn 23. október, 297. dagur ársins. 8.43 13.12 17.39 8.35 12.57 17.17 Komdu með allt í Gull Lifðu núna Ofurnetið. Mesti mögulegi hraðinn á Netinu Þú færð lægsta mínútuverð í GSM, óháð kerfi Ofurheimasíminn. Símtöl í alla aðra síma, óháð kerfi – líka í GSM og til útlanda, fyrir 3.490 kr.* Þú færð okkar bestu kjör og sparnað sem er gulls ígildi Vertu með allt á einum stað og skráðu þig strax í nýja vildarþjónustu í 1414 eða á vodafone.is. Vodafone Gull – það besta sem við bjóðum F í t o n / S Í A * Innifalið er allt að 6.000 kr. í GSM og 6.000 kr. til 30 helstu viðskiptalanda Íslands. Símtöl í 118 og 900 númer eru gjaldfærð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.