Fréttablaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 70
54 23. október 2008 FIMMTUDAGUR
og ég setti ýmislegt úr fari hans í
persónusköpunina, sérstaklega útlit
og áhuga hans á Snorra, en ég myndi
aldrei nota raunverulegan mann
beint sem fyrirmynd persónu í
sögum mínum. Til dæmis er séra
Magnús með beinagrindur í skáp-
um sínum og mér myndi aldrei detta
í hug að gefa til kynna að Geir
Waage væri með neitt slíkt í sínum
skápum – það væri mjög ósann-
gjarnt gagnvart Geir,“ segir Ege-
land.
Norski rithöfundurinn segir
norsku þjóðina fylgjast grannt með
gangi mála í þeim efnahagslega
ólgusjó sem Ísland gengur nú í
gegnum. Tom Egeland, sem er eink-
ar viðræðugóður, segist vissulega
eiga eftir að sækja landið heim þó
ekki sé nema sem ferðamaður. En
það sé undir Forlaginu komið hvort
hann komi til að fylgja útgáfu bók-
arinnar eftir. Ekki náðist í Geir
Waage þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir. jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. lappi, 6. í röð, 8. mál, 9.
stefna, 11. í röð, 12. land í Asíu, 14.
mælieining, 16. gat, 17. breið, 18. fley,
20. tvíhljóði, 21. traðkaði.
LÓÐRÉTT 1. fituskán, 3. ólæti, 4.
köldusótt, 5. angan, 7. súlur, 10. þrí,
13. skammstöfun, 15. innyfli, 16.
einatt, 19. holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sami, 6. rs, 8. tal, 9. átt,
11. lm, 12. kórea, 14. lítri, 16. op, 17.
víð, 18. far, 20. au, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. brák, 3. at, 4. malaría, 5.
ilm, 7. stólpar, 10. trí, 13. etv, 15. iður,
16. oft, 19. ró.
„Það er kaffi. Þegar ég er heil-
brigður fæ ég mér smoothie
með frosnum afurðum heimsins
og íslensku skyri. Og svo aðeins
meira kaffi.“
Páll Eyjólfsson umboðsmaður
Björk fer ekki fögrum orðum um Samfylkinguna í
nýlegu viðtali við bandarísku tónlistarsíðuna
Pitchforkmedia.com. „Um leið og þetta fólk komst
til valda með öllum þessum Dick Cheney-um og
George Bush-um Íslands var vitað mál hvað myndi
gerast. Kannski blinduðust þau vegna aukinna valda
því allt í einu vildu þau byggja álver,“ segir Björk.
„Iðnaðar-, umhverfis- og utanríkisráðherrar
landsins koma úr þessum flokki. Fyrir kosningar
birtu þeir lista í fjölmiðlum þar sem þeir sögðust
ætla að vernda landið. Núna er hægt að strika öll lof-
orðin út af listanum. Ég held að ástæðan fyrir
þessum sinnaskiptum séu þessir íhaldssömu
kapítalistar í stjórninni sem fæddust á milli 1940 og
1950. Þeir stjórna öllu og þannig hefur það alltaf
verið,“ segir hún.
Björk gagnrýnir svo umhverfisráðherra fyrir að
hafa viljað hætta við umhverfismat vegna álvers í
Helguvík. Eftir mikla gagnrýni hafi hún loks skipt
um skoðun. Núna segir Björk að sama hljóðið sé
komið í strokkinn vegna efnahagskreppunnar og
allir vilji á nýjan leik gefa skít í allt umhverfismat.
Björk nefnir tölvuleikjafyrirtækið CCP sem vel
heppnað mótvægi við byggingu álvera. Þar starfi
fjögur hundruð manns sem sé sami fjöldi og vinni í
álverum. Þar séu aftur á móti ekki unnin skítverk
fyrir Alcoa á lágum launum, rétt eins og gengur og
gerist í þriðja heims ríkjunum, með allri mengun-
inni sem því fylgir. „Við eigum að stofna fyrirtæki
með Íslendinga innanborðs, bæði með verkafólki og
fólki í æðri stöðum, sem uppgötvar nýja hluti sem
haldast í landinu.“
Björk skammar Samfylkinguna
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR Björk fer ekki fögrum orðum um
Samfylkinguna í viðtali við tónlistarsíðuna Pitchfordmedia.
com. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Quentin Tarantino hefur leitað til
förðunarsérfræðingsins Hebu
Þórisdóttur og fengið hana
til að stjórna förðuninni í
nýjustu kvikmynd sinni,
Inglorius Bastards. Stór-
stirnið Brad Pitt er þar í
aðalhlutverki ásamt Diane
Kruger, sem leikur ein-
mitt aðalhlutverkið í
kvikmynd Baltasars
Kormáks, Inhale.
Reyndar eru fleiri
Íslands-tengingar við
þessa nýjustu kvik-
mynd Tarantino því
kvikmyndaleik-
stjórinn Eli Roth
leikur einnig lítið
hlutverk í mynd-
inni. En Tarantino og Roth eru
sennilega einhverjir dyggustu
Íslandsvinirnir sem sögur fara af.
Inglorius Bastards er
beðið með mikilli eftir-
væntingu enda stóðst
síðasta mynd Taran-
tinos, Grindhouse,
engan veginn þær vænt-
ingar sem til hennar voru
gerðar. Inglorius
Bastards hefur verið
töluvert lengi í vinnslu.
Hún gerist í seinni
heimsstyrjöldinni og segir frá
hópi bandarískra gyðinga í amer-
íska hernum sem er falið að
höggva stórt skarð í herlið nasista
í Frakklandi. Á leið sinni komast
þeir í kynni við unga stúlku í París
en hún rekur kvikmyndahús sem
jafnan er troðfullt af þýskum her-
mönnum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Brad Pitt sest í stólinn hjá Hebu á
þessu ári því hún stjórnaði einnig
allri förðun í kvikmyndinni The
Curios Case of Benjamin Button
sem David Fincher leikstýrir og
verður væntanlega frumsýnd
seint á þessu ári. Þar leikur Pitt
aðalhlutverkið á móti gæðaleik-
konunum Tildu Swinton og Cate
Blanchett. - fgg
Brad Pitt sest í stólinn hjá Hebu
Í FAÐMI STÓRSTJARNA Heba Þórisdóttir
mun sjá um förðun á stórstirninu Brad
Pitt í kvikmyndinni Inglorius Bastards
eftir Quentin Tarantino.
Í ANNAÐ SINN Þetta er í
annað skiptið sem Heba
kemur að gerð kvik-
myndar með Brad Pitt.
Hin er The Curios Case of
Benjamin Button.
„Jú, jú, það er engin tilviljun að séra
Magnús er með grátt hár, gleraugu
og geithafursskegg. Og er forfall-
inn áhugamaður um Snorra,“ segir
norski rithöfundurinn Tom Ege-
land.
Út er komin bókin „Verðir sátt-
málans“ eftir Tom Egeland, norska
rithöfundinn sem sló í gegn með
bók sinni „Við enda hringsins“.
Þegar hún kom út á íslensku fyrir
um þremur árum kom Egeland til
Íslands, bæði til að fylgja bókinni
eftir sem og að afla sér efniviðar í
næstu bók sína. Egeland segir enda
Ísland, sögu landsins og umhverfi,
leika stórt hlutverk í „Vörðum sátt-
málans“. Egeland sótti meðal ann-
ars Reykholt heim og naut leið-
sagnar sóknarprestsins að
Reykholti, séra Geirs Waage, dag-
stund. Geir sýndi Egeland og konu
hans safn sem er að Reykholti,
Snorralaug og húsakynni auk fornra
handrita sem Geir á í eigu sinni. Í
nýju bókinni, og er þar vísað til
ársins 2007, finnst sóknarprest-
urinn Magnús dáinn í Snorra-
laug. Honum hefur verið
drekkt: „Séra Magnús er dáinn.
Hann flýtur á grúfu, líkt og hann
hafi dregið djúpt andann og sé að
skoða eitthvað á botni laugarinnar.
Sítt hárið myndar gráan geislabaug
í vatninu. Hvítar hendurnar fljóta í
gáruðu vatnsborðinu,“ segir í bók-
inni.
Ekki er þó hin minnsta ástæða til
að ætla þetta kaldar kveðjur norska
rithöfundarins til sóknarprestins að
Reykholti. Þvert á móti lýkur Tom
Egeland miklu lofsorði á Geir og
segir aðstoð hans við ritun bókar-
innar ómetanlega. „Ef þú spyrð
hvort „Geir Waage“ sé sá hinn sami
og „séra Magnús“ þá er svarið bæði
já og nei. Augljóslega varð ég fyrir
áhrifum þegar ég hitti Geir Waage
TOM EGELAND: ENGIN TILVILJUN AÐ KLERKUR LÍKIST GEIR WAAGE
Norskur rithöfundur drepur
sóknarprestinn í Reykholti
LÍK Í SNORRALAUG
Tom Egeland aflaði sér efnivið-
ar í bókina Verðir sáttmálans á
Íslandi, en þar er presti drekkt
í Snorralaug og minnir persón-
an óneitanlega mjög á Geir
Waage, sóknarprest í Reykholti
sem sést hér til vinstri. Af og frá
er að telja þetta kaldar kveðj-
ur frá norska rithöfundinum sem
naut leiðsagnar hans um Reykholt.
Munum eftir að kveikja
á útiljósunum
Nú þegar farið er að myrkva úti
viljum við vinsamlega minna íbúa
á að hafa kveikt á útiljósum við
heimili sín til að auðvelda
blaðberum Fréttablaðsins
aðgengi að lúgu.
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454
Tímaritið Grapevine hélt
upp á fimm ára afmæli
sitt fyrr á árinu og nú í
desember mun fimmti
ritstjóri blaðsins taka
við. Það er Haukur
Magnússon, gít-
arleikari í Reykja-
vík! sem hefur
verið blaðamað-
ur á Grapevine og víðar um hríð.
Fráfarandi ritsjóri, Sveinn Birkir
Björnsson, ætlar að snúa sér að
öðru og líklega fara í nám. Þess má
geta að hvorki Fons, Gaumur né
Spons standa að útgáfu blaðsins,
heldur sömu fjórir menntaskólavin-
irnir og settu það á fót.
Svo virðist sem Golfblaðið, sem
Birtingur gaf út, sé lagst
í dvala hvort sem
það mun koma úr
híði sínu í vor eða
ekki. Hinn skeleggi
golfáhugamaður, grínari
og blaðamaður,
Sveinn Waage,
hefur nú mun-
strað sig sem
blaðamann
á DV.
Nýsköpun tungumálsins fer eink-
um fram meðal unglinga sem nú
munu vera að prufa nýja sögn: Að
„haardera” í merkingunni að gera
nákvæmlega ekki neitt. Bloggarinn,
og fyrrverandi kennarinn, Gísli
Ásgeirsson, fer hamförum núna
og virðist sem efnahagsþrengingar
hafi orðið til að vekja vísnasmiðinn
í honum því nú er ort sem aldrei
fyrr á síðu hans. Gísli gerir sér mat
úr hugtakinu í leirburði sem hann
kennir við alteregó sitt, Högna Más-
son: Heilmargt átti
hann að laga/haar-
deraði alla daga./
Íslendinga
allir klaga/úti í
löndum skulda
þeir./Heimt-
ar fólkið:
„Hættu,
Geir.”
-drg, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R