Fréttablaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 16
16 23. október 2008 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ ■ Í Papúa-Nýju-Gíneu eru töluð 820 tungumál. Hvergi á jörðu eru töluð fleiri tungumál í einu landi. Næst flest eru tungu- málin í Indónesíu, alls 742, en síðan kemur Nígería með 516 tungumál og Indland með 427 mál. Í Asíuríkjum eru alls töluð 2.269 tungumál, í Afríku eru þau 2.092, en í Evrópu aðeins 239. Reyndar er bæði erfitt og umdeilt hvernig skilgreina skuli tungumál, en hér er stuðst við samantekt á vefsíðum ethno- logue.com, þar sem segir að heildarfjöldi „lifandi“ tungumála á jörðinni sé rúmlega 6.900. TUNGUMÁL FLEST Í ASÍU OG AFRÍKU Meðlimir hljómsveitar- innar Blindfold, sem allir eru búsettir í London, boða til friðar í Bretlandi með fríum tónleikum á mánu- daginn. Þeir segja orðspor Íslands í molum og tíma til kominn að styrkja vina- böndin. „Með þessum tónleikum gerum við okkar besta til að byggja upp orðspor lands og þjóðar að nýju og styrkja vinaböndin við bresku þjóðina. Við ætlum að leyfa Bret- um, Íslendingum og hverjum sem vilja að skemmta sér frítt og leyfa tónlistinni að næra sárþjáðar sálir á þessum erfiðu tímum,“ segir Teitur Árnason bassaleikari hljómsveitarinnar Blindfold sem er skipuð íslenskum tónlistar- mönnum sem búsettir eru í Lond- on. Blindfold hefur ákveðið að boða til friðar í Bretlandi með því að blása til opinna hljómleika ásamt tveimur breskum sveitum og plötusnúðum, á tónleikastaðn- um 93 Feet East á Brick Lane-göt- unni í London næsta mánudag. Teitur segist hafa fundið fyrir mikilli neikvæðni í garð Íslend- inga hjá breskum almenningi síð- ustu vikur. „Nú síðast um daginn sat ég með félaga mínum á pöbb og á næsta borði voru fjórir Bret- ar að tala mjög illa um Ísland. Þetta er mjög alvarlegt mál. Þegar ég flutti til Englands fyrir ári síðan sagði ég stoltur frá því að ég væri Íslendingur. Núna hálf- partinn skammast maður sín fyrir þjóðernið. Orðsporið er greini- lega í molum en nú er mál að linni. Þessar bágstöddu fyrrverandi vinaþjóðir geta sparað pundin sín og skemmt sér saman á tónleik- unum okkar,“ segir Teitur, og bætir við að Gordon Brown sé ekki sá vinsælasti hjá Íslending- um í Bretlandi um þessar mundir. „Það eru kosningar í nánd og Brown er bara á atkvæðaveið- um.“ Að sögn Teits er vandkvæðum bundið að skilgreina tónlist Blind- fold en tilraunakennt ambient- rokk sé þó nærri lagi. Sveitin hefur starfað í um þrjú ár og gaf út fyrsta geisladisk sinn, sam- nefndan sveitinni, fyrir tveimur árum. Önnur breiðskífa hennar er tilbúin og mun líta dagsins ljós snemma á næsta ári. Aðrir með- limir eru Sveinn Marteinn Jóns- son sem leikur á gítar, Friðrik Helgason sem ber bumbur og Birgir Helgason, einnig í hljóm- sveitinni Ampop, sem syngur. Teitur lýsir tónleikastaðnum 93 Feet East sem einum besta stað sem hann hafi leikið á fyrr og síðar. „Hljóðburðurinn á staðnum er mjög góður og andinn er frá- bær. Við höfum lent í því á tón- leikum að fólk komi frekar til að drekka sig fullt, eins og reyndar er algengt á Íslandi líka, en til að njóta tónlistarinnar. Áhorfendur á 93 Feet East virða sjálfa tónlist- ina meira einhverra hluta vegna, sem hentar tónlist okkar mjög vel.“ Sem dæmi um þann sess sem staðurinn hefur í London nefnir Teitur að hljómsveitin Rad- iohead hafi frumflutt plötu sína In Rainbows á staðnum. „Við höfum gert samning við 93 Feet East um að koma þar fram mán- aðarlega og það eru frábærar fréttir enda sjaldgæft að böndum hlotnist slíkur heiður,“ segir Teit- ur að lokum og hvetur alla Íslend- inga sem búsettir eru í Bretlandi til að sýna samstöðu og mæta á tónleikana á mánudaginn. kjartan@frettabladid.is Styrkja vinaböndin við Breta LEIKA FYRIR FRIÐI Blindfold, frá vinstri: Sveinn Marteinn Jónsson, Birgir Helgason og Teitur Árnason. Á myndina vantar Friðrik Helgason. MYND/MARÍA KJARTANSDÓTTIR „Ég sit nú bara og maula vínarbrauð ásamt tveimur blaðamönnum sem voru að missa vinnuna eins og ég,“ segir Andrés Ingi Jónsson, fyrrverandi blaðamaður 24 stunda, þegar hann er spurður hvað sé að frétta. Andrés segir að fyrripart dags hafi hann gengið um bæinn ásamt öðrum þessara fyrrverandi samstarfsmanna og fengið sér kreppusúpu á Næstu grösum en þar gafst gestum og gangandi kostur á að snæða súpu og brauð án endurgjalds í gær. „Svo gengum við um bæinn og reyndum að redda gjaldeyri því við erum á leiðinni til Bandaríkjanna í næstu viku. Þannig að ég kristalla ástandið á Íslandi nú,“ segir Andr- és og skellir upp úr en bætir við að ferðirnar hafi verið löngu ákveðnar. „Ég er að fara í vinnuferð í boði bandarískra stjórnvalda. Ferðin er víst enn í boði þótt vinnan á 24 stundum sé það ekki. Það versta er samt að hún er þriggja vikna löng og illa gengur að safna gjaldeyri til fararinn- ar. Það góða við hana er þó að ég kem við í Michigan og get því líkast til leitað góðra sparnaðarráða,“ segir Andrés og vísar til þess að kreppan í Bandaríkjunum hefur leikið það ríki einna harðast. Atvinnuleysi þar er nú um níu prósent, fasteignaverð hefur hrunið og íbúar orðnir þreyttir á loforðum stjórnmálamanna um aðgerðir. „Það er ægilega fínn áfanga- staður fyrir Íslending núna.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ANDRÉS INGI JÓNSSON ATVINNULEITANDI Atvinnulaus í leit að sparnaðarráðum Meistaramót Íslands í rúningi verður haldið að Skörðum í Mið- dölum í Dalasýslu á laugardag. Helgi Haukur Hauksson, einn aðstandenda, segir tíma og gæði lögð til grundvallar. „Góður rún- ingsmaður þarf að vera vandvirk- ur, hafa gott lag á skepnum og vera snöggur.“ Íslenskir rúningsmenn eru að jafnaði tvær til þrjár mínútur að rýja eina á en Helgi segir það taka þá bestu í útlöndum innan við mín- útu. Dómari keppninnar kemur frá Bretlandi og með honum í för verða tveir efnilegustu rúnings- menn Bretlandseyja. - bþs Meistaramót Íslands í rúningi: Reyna með sér í rúningi í Dölunum ÆR Góðir rúningsmenn þurfa að vera vandvirkir, hafa gott lag á skepnum og vera snöggir. Margir Íslendingar eru Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, reiðir þessa dagana eftir að hann beitti hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans þar í landi. Björgvin Franz Gíslason leikari var spurður um sína afstöðu í þessu máli. „Ég skil náttúrlega ósköp vel að fólk sé reitt um þessar mundir,“ segir hann. „Ég get varla sett mig í spor fólks sem hefur orðið fyrir miklu tjóni í þessum hræringum öllum. En ég held að það sé fyrir öllu að halda ró sinni og varast það í fremstu lög að láta reiðina ná tökum á sér. Ég held að það áorkist alls ekkert með henni. Þannig að viðhorf mitt gagnvart Bretum hefur ekkert breyst enda veit ég að þetta er axarskaft eins manns en ekki átak heillar þjóðar. Svo trúi ég því og treysti að tíminn leiði okkar rétta andlit í ljós í Bretlandi en vissulega hef ég nokkrar áhyggjur af ímynd landsins í augnablikinu.“ SPURT OG SVARAÐ DEILAN VIÐ BRETA Reiðin dugar ekkert Lýðræðis slekt „Þetta er álíka lýðræðislegt og rafræn kjörvél í blökku- mannahverfi í Flórída.“ BLOGGARINN HNAKKUS SEGIR RÁÐAMENN ÞEGJA ÞUNNU HLJÓÐI MEÐAN MIKILVÆGAR ÁKVARÐANIR SÉU TEKNAR BAK VIÐ TJÖLDIN. hnakkus.blogspot.com 22. október Orðafangbrögð „Við leitum fanga víða.“ BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON OG FÉLAGAR Í HLJÓMSVEITINNI NÝ DÖNSK FENGU FANGA Í KVENNA- FANGELSINU Í KÓPAVOGI TIL AÐ FULLGERA BOÐSMIÐA Á TÓNLEIKA. Fréttablaðið 22. október BJÖRGVIN FRANZ GÍSLASON Bert veit alve g hvað rokkstjarna þ arf að kunna. Að gefa flotta r eiginhandará ritanir! Það æfir rokk sveitin Heman Hunte rs stíft en lög in verða eitthva ð útundan ... NÝ BÓK í einum allra vinsælasta barnabókaflokki fyrr og síðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.