Fréttablaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 62
46 23. október 2008 FIMMTUDAGUR
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
14
16
L
L
L
L
MAX PAYNE kl. 8 - 10
HOUSE BUNNY kl. 6 - 10
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 8
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 6
16
L
14
L
MAX PAYNE kl. 5.45D - 8D - 10.15D
MAX PAYNE LÚXUS kl. 10.15D
HOUSE BUNNY kl. 5.45 - 8 - 10.15
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 8 - 10.15
MAMMA MIA kl. 5.30
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 3.45
GRÍSIRNIR 3 kl. 3.45
LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
L
16
7
14
L
THE WOMEN kl. 5.30 - 10.30
MAX PAYNE kl. 5.45 - 8 - 10.15
HAMLET 2 kl. 10.15
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 8 - 10.10
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
16
L
16
16
12
L
BANGKOK DANGER kl. 5.30 - 8 - 10.20
HOUSE BUNNY kl. 6 - 8.20 - 10.30
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
PINAPPLE EXPRESS kl. 8 - 10.30
STEP BROTHERS kl. 5.45
550kr.
fyrir börn
650kr.
fyrir fullorðna
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
SEX DRIVE kl. 8 - 10:10 12
HAPPY GO LUCKY kl. 8 12
BURN AFTER READING kl. 10 16
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 16
BABYLON A.D. kl. 10:10 16
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 14
SEX DRIVE kl. 8 12
PATHOLOGY kl. 8 16
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 12
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP
MAX PAYNE kl. 5:50 - 8 - 10:10 16
NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 16
WILD CHILD kl. 8 L
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L
TROPIC THUNDER kl. 10:20 16
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 5:50 L
SEX DRIVE kl. 6 - 8:10 - 10:30 12
HAPPY GO LUCKY kl. 8 12
QUEEN RAQUELA kl. 10:20D 12
DEATH RACE kl. 10:20 16
JOURNEY 3D kl. 6 L
WILD CHILD kl. 5:50 L
DIGITAL-3D
FRÁ HÖFUNDI „THE NOTEBOOK”
SEX DRIVE FER FRAM ÚR
AMERICAN PIE
Á 100 Km hraða!
TOPP GRÍNMYND!
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
MARK WAHLBERG
- bara lúxus
Sími: 553 2075
THE WOMEN kl. 5.50, 8 og 10.10 L
SKJALDBAKANN OG HÉRINN kl. 6 (650)- ÍSL.TAL L
RIGHTEOUS KILL kl. 6, 8 og 10 16
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 og 10 12
ATH! 650 kr.
Á yfir tveggja áratuga ferli hefur
Ný dönsk komist á þann öfunds-
verða stall að höfða jafnt til sveita-
ballaþyrsts almúga sem og djúp- og
krúttþenkjandi músík spekúlanta.
Tvískiptur persónuleikinn hefur
einnig leitt af sér að sveitin hefur
gjarnan verið sjálfkrafa uppáhald
fólks sem alla jafnan hefur tak-
markaðan áhuga á tónlist en þykir
gaman að syngja með í partíum og
finnst sjálfsagt að eiga sína eftir-
lætishljómsveit eins og hinir. Ný
dönsk hefur því verið eins konar
Toyota íslenskrar dægulagasögu;
Tákn um gæði.
Turninn er áttunda breiðskífa
sveitarinnar og sú fyrsta í fimmt-
án ár sem Daníel Ágúst Haraldsson
syngur á, mörgum til mikillar gleði.
Umslagið, hlutar úr andlitum með-
limanna fimm settir saman í eitt
andlit, er stílhreint en afskaplega
bitlaust og byggir á hugmynd sem
hefði líklega þótt sniðug seint á síð-
ustu öld, áður en annar hver táning-
ur varð doktorslærður í fótósjoppi.
Myndin undirstrikar þó óviljandi
ráðandi hlut Björns Jörundar Frið-
björnssonar í hljómi sveitarinnar,
því erfitt er að sjá nokkuð annað en
Björn Jörund út úr andlitinu marg-
skipta. Að vísu sextugan Björn Jör-
und sem starfar sem flugþjónn, en
Björn Jörund engu að síður.
Leikarinn ástsæli Þröstur Leó
Gunnarsson var ráðinn sérstaklega
(í fyrsta sinn í íslenskri poppsögu
svo vitað sé) til að sjá um lagaupp-
röðun á plötunni og verður frammi-
staða hans að teljast misheppnuð.
Fyrstu þrjú lögin, hið rangnefnda
Leiðinlegasta lag í heimi, titillagið
Turninn og Biðin eru öll hin fínustu
popplög og halda aðalsmerkjum
sveitarinnar, skemmtilegum mel-
ódíum og hnyttnum textum, hátt
á lofti. Alla tíð (annað af tveim-
ur lögum eftir Jón Ólafsson) er
svo afgerandi besta lag plötunnar.
Minnir á sameinaða Eric Clapton
og Chris Rea að flytja nýja útgáfu
af upphafsstefi Taggart-þáttanna,
en á mjög góðan hátt. Frábært lag.
Ströndin sleppur á góðu viðlagi
og Tvær krákur eftir Daníel vinn-
ur verulega á, ljúfsárt og fallegt í
senn.
Flestar lagsmíðar síðari hlutans
bera hins vegar vott um ákveðna
þreytu. Lykillinn hljómar eins og
afleit eftiröpun á Purrki Pillnikk og
líkindi viðlags Taktu mig fastan við
gamla smellinn Hunang eru einung-
is til þess fallin að fá áheyrendur til
að gráta Ný dönsk fortíðar. Askan,
Eðlileg og Þokan eru auðgleyman-
leg, mátt- og tilgangslítil. Eini ljósi
punktur síðari hlutans er Náttúran,
sem nálgast bestu stundir sveitar-
innar hér í denn. Mögulega er helst
til langt seilst í nýdanska nostalgíu
með texta um „hunangs- og rjóma-
bú“, en lagið er þrælskemmtilegt.
Turninn á mjög góða spretti en er
að minnsta kosti tveimur hæðum
of hár. Næst þyrfti að notast við
grimmari gæðastuðla og, fyrir alla
muni, ekki láta Þröst Leó koma
nálægt lagauppröðun aftur.
Kjartan Guðmundsson
Arfaslakur síðari hálfleikur
TÓNLIST
Turninn
Ný dönsk
★★
Turninn rís hátt í byrjun en hrynur er
á líður. Endurkoma Daníels Ágústs er
vel þegin en slöku lögin eru of mörg.
„Það eru þrettán ár síðan ég gaf út
jazzplötuna Koss með Tómasi R.
Einarssyni og hef ekki verið að
syngja með tríói síðan,“ segir leik-
og söngkonan Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir. Hún undirbýr nú dagskrá
ásamt Ásgeiri Óskarssyni, Birni
Thoroddsen og Gunnari Hrafns-
syni sem þau munu fara með í
grunnskóla og syngja.
„Þeir eru búnir að vera með
þessa dagskrá í tíu ár og Egill
Ólafsson söng upprunalega með
þeim. Við byrjum í nóvember, en
erum byrjuð að æfa og búin að
hittast heilmikið. Við munum fara
í grunnskóla og tökum gamla þjóð-
lagið Ljósið kemur langt og mjótt,
láta það ferðast um hin ýmsu lönd
og ég syng það í allskonar stílum.
Þetta er svona tónlistarkennsla og
svo er líka leikið og dansað,“
útskýrir Ólafía Hrönn sem er nú í
óðaönn að undirbúa sýninguna
Utan gátta, sem verður frumsýnd
á föstudag í Þjóðleikhúsinu. Auk
þess stefnir hún á frekara tón-
leikahald þar sem hún mun syngja
nokkur af sínum uppáhalds
lögum.
„Mér finnst svakalega skemmti-
legt að syngja og væri til í að hvíla
mig á leiklistinni til að sinna
söngnum alfarið. Þótt ég vilji ekki
fara frá leiklistinni væri rosalega
gaman að geta gefið sig alla í
þetta. Ég er alltaf að semja eitt-
hvað og langar að gefa út aðra
plötu. Mér finnst ég eiginlega
þurfa að gefa út eina plötu enn,“
segir Ólafía Hrönn. - ag
Langar að gefa út aðra plötu
HEFUR GAMAN AÐ SÖNGNUM
Ólafía Hrönn myndi vilja hvíla sig á
leiklistinni og sinna söngnum alfarið.
Hún semur tónlist og langar að gefa út
aðra plötu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
www.forlagid.is