Fréttablaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 10
10 29. nóvember 2008 LAUGARDAGUR
GJALDEYRISHÖFT Á ÍSLANDI
Mikil skuldabréfaeign erlendra
fjárfesta í íslenskum krónum er
ein af ástæðunum fyrir því að
setja þurfti ströng höft á viðskipti
með gjaldeyri hér á landi, eins og
gert var með lagasetningu í gærn-
ótt. Þetta segir Arnór Sighvatsson
aðalhagfræðingur Seðlabankans.
Hann segir þessi miklu höft ekki
til marks um það að stjórnvöld og
Seðlabankinn hafi litla trú á krón-
unni. Um tvo möguleika hafi verið
að ræða í stöðunni. Tímabundin
höft á gjaldeyrisviðskipti, eða að
láta krónuna beint á flot. Síðari
möguleikinn hafi einfaldlega verið
álitinn of áhættusamur.
„Auðvitað er trú á krónunni
mjög lítil eins og er, en til lengri
tíma teljum við að þetta muni auka
trú á krónunni,“ segir Arnór.
Íslenskt samfélag á það á hættu
að þeir erlendu aðilar sem eiga
skuldabréf í íslenskum krónum
selji allir á sama tíma, sem myndi
lækka gengið hratt, segir Arnór.
Sú hætta sé nú úr sögunni.
Sérfræðingar viðskiptabank-
anna, sem sátu fund um nýjar
reglur í Seðlabankanum í gær,
höfðu sumir áhyggjur af því að
verið væri að lengja tímabili sárs-
auka í íslensku viðskiptalífi. Hugs-
anlega væri réttara að taka áfallið
þegar erlendir fjárfestar losi sig
við krónur hratt, og byggja því
næst upp.
Þessu sagðist Arnór ekki sam-
mála. „Núna getum við stýrt því
hvenær þeir fara. [...] Við getum
afnumið þessi höft í áföngum, og
stýrt því að þeir fari þegar umfram
innstreymi er af gjaldeyri, þannig
að það leiði ekki til þess að krónan
lækki,“ sagði Arnór.
Seðlabankinn reiknar með því
að beita inngripum til að halda
gengi krónunnar stöðugu, segir
Arnór. Til þess verði hægt að grípa
til láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inum (AGS). Hann segir skýrt að
það sé Seðlabankinn sem ákveði
hvenær og hversu mikið verði
gripið inn í. Þó takmarki sjóðurinn
hversu háum upphæðum sé varið
til að verja krónuna á hverjum
tíma. Til dæmis megi verja 500
milljónum dala til inngripa fram
að áramótum.
Í lögunum eru ákvæði sem
skylda útflytjendur til að flytja
gjaldeyri til Íslands. Arnór segir
þessi ákvæði algerlega nauðsyn-
leg. Væru þau ekki til staðar gæti
myndast tvöfaldur markaður með
gjaldeyri, sem gerði önnur höft
gagnslaus með öllu.
Lög og reglugerð um gjaldeyris-
höftin voru unnar í samvinnu
Seðlabankans og AGS. Arnór við-
urkennir að Seðlabankinn hafi
upphaflega viljað setja krónuna
beint á flot, og taka skellinn. AGS
hafi hins vegar alfarið lagst gegn
því að höft væru afnumin. Eftir
samtöl við sérfræðinga sjóðsins
hafi verið fallið frá því að fleyta
krónunni strax. brjann@frettabladid.is
Gjaldeyrishöft vegna skuldabréfa
erlendra fjárfesta í krónum
Gjaldeyrishöft koma í veg fyrir að erlendir fjárfestar selji mikið magn skuldabréfa í krónum og felli gengi krón-
unnar, segir hagfræðingur. Bankinn mun einnig beita inngripum. Gjaldeyrishöftin eru að forskrift AGS.
Eftirlit með viðamiklum og flóknum lögum um gjaldeyrisviðskipti verður í
höndum Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins (FME).
Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir að í grunninn
muni eftirlitið virka þannig að Seðlabankinn fylgist með og afli ýmiss konar
upplýsinga um gjaldeyrisviðskipti og útflutning. FME muni svo rannsaka
meint brot sem bankinn verði var við.
Arnór segir Seðlabankann vel í stakk búinn til að taka við þessu eftirlits-
hlutverki, en sagði það verða að koma í ljós hvort fjölga verði starfsfólki
vegna þessa aukna álags.
EFTIRLIT HJÁ SEÐLABANKA OG FME
Við setningu reglna Seðlabankans um gjaldeyrishöft þurftu stjórnvöld að
víkja sér undan tvennum alþjóðlegum skuldbindingum. Annars vegar samn-
ingnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og hins vegar skuldbindandi
samþykktum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).
Aðildarríkjum EES-samningsins er óheimilt að hefta flutning fjármagns
innan EES svæðisins. Heimild er til að víkja frá þessu ákvæði til að bregðast
við erfiðleikum eða röskun á fjármagnsmarkaði.
Samþykktir OECD kveða á um að heimila beri gjaldeyrisyfirfærslur vegna
viðskipta og afnema á þeim allar hömlur. Skapist alvarlegar aðstæður vegna
þess að gjaldeyrisreglur hafa verið rýmkaðar er heimilt að endurvekja fyrri
höft.
ÍSLAND VÍKUR SÉR UNDAN EES OG OECD
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
44
21
0
11
.2
00
8
Dúnúlpur frá
The North Face
Jólatilboð
25% afsláttur
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Kíktu á
blaðsíðu 33
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að nýju lögin um gjaldeyris-
höftin hafi valdið sér vonbrigðum.
Hann hefur
áhyggjur af því
að nokkur tími
líði áður en
krónan fari að
styrkjast á nýjan
leik. Hann segir
að málið sé til
skoðunar hjá
ASÍ og kveðst
hafa áhyggjur af
því að lögin hafi
slæm áhrif á verðlag og þróun
atvinnustigs.
„Gjaldeyrishöft koma í veg
fyrir að hér myndist gjaldeyris-
markaður sem geti leitt til
styrkingar krónunnar. Ég hef
áhyggjur af því að sú styrking
sem við vorum að vona að gæti
orðið láti á sér standa og verð-
bólgan verði því meiri og lengur
en við áttum von á,“ segir hann og
telur liggja í augum uppi að lögin
auki völd í Seðlabankanum. - ghs
Forseti ASÍ:
Verðbólgan
meiri og lengur
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
„Við þurfum á trúverðugleika
gagnvart alþjóðasamfélaginu að
halda. Aðgerðir stjórnvalda upp á
síðkastið hafa
beinlínis verið
til þess fallnar
að grafa undan
því. Við megum
ekki við þessu,“
segir Finnur
Oddsson,
framkvæmda-
stjóri Viðskipta-
ráðs.
Hann bendir á að aðgerðirnar í
gær geti varla verið í samræmi
við stefnu AGS, sem styðji
fremur opnun markaða og frjálst
flæði fjármagns. „Þetta skýtur
skökku við,“ segir hann og þrýstir
á um mikilvægi þess að stjórn-
völd birti landsmönnum skýra
framtíðarsýn. Aðeins þannig
verði óvissu eytt. - jab
Hömlur í andstöðu við AGS:
Lýst eftir skýrri
framtíðarsýn
FINNUR ODDSSON
FUNDUR Fulltrúar fjölmiðla og greiningardeilda bankanna fengu upplýsingar um nýju lögin á fundi með sérfræðingum Seðla-
bankans í fær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is