Fréttablaðið - 06.12.2008, Page 104
84 6. desember 2008 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, segir að það hafi komið
sér verulega á óvart að Roy
Keane skyldi hætta með Sunder-
land eftir aðeins tvö ár í starfi.
United á einmitt að mæta
Sunderland um helgina og mætir
Sunderland til leiks án knatt-
spyrnustjóra.
„Þetta kom mér mjög á óvart.
Það er erfitt að lesa í gegnum
allar slúðursögurnar og finna út
hvað er satt og rétt. Roy var
frábær leikmaður og það er synd
að hann sé hættur,“ sagði
Ferguson og bætti við erfitt væri
að spá í hvort Keane myndi taka
að sér annað stjórastarf.
„Hann er mjög umdeildur. Í
hverri viku hafði hann eitthvað
áhugavert að segja um leikinn.
Hann var eins sem leikmaður.
Hann er afar áhugaverður
persónuleiki og stóð sig vel að
mínu mati hjá Sunderland,“ sagði
Fergie. - hbg
Sir Alex Ferguson:
Hissa að Keane
skyldi hætta
FÓTBOLTI Argentínumaðurinn
Carlos Tevez efast ekki um að
Man. Utd muni verja Englands-
meistaratitil sinn. Hann segir
United hafa meiri breidd en hin
liðin og það muni skila árangri.
„Ég tel að Chelsea sé með
frábært lið. Ég veit líka að það er
erfitt að spila á sunnudegi og svo
aftur á miðvikudegi. Það finnst 24
ára gömlum manni eins og mér.
Það er því líklega erfiðara fyrir
marga leikmenn Chelsea sem eru
eldri en ég. Álagið um jólin mun
taka sinn toll á Chelsea sem hefur
frábæra leikmenn en ekki sömu
breidd og við,“ sagði Tevez sem
margir spá að sé á förum frá
Man. Utd. - hbg
Carlos Tevez:
United með
besta liðið
ÖFLUG BREIDD Carlos Tevez telur að
United muni verja titilinn á Englandi.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Breskir fjölmiðlar eru
gjörsamlega að tapa sér yfir fyrir-
huguðum stórinnkaupum enska
úrvalsdeildarfélagsins Manchest-
er City, sem er í eigu hins forríka
Abu Dhabi United Group, þegar
félagaskiptaglugginn opnar í jan-
úar. Miklar vangaveltur eru um
þar til gerðan innkaupalista sem
forráðamenn City hafa staðfest að
þegar sé búið að teikna upp. Talið
er næsta víst að City muni eyða og
eyða í janúar á meðan önnur félög
herði sultarólina og haldi að sér
höndum í kreppunni.
Nýir eigendur City sýndu strax að
þeim væri full alvara þegar þeir
komu inn í félagið skömmu fyrir
lok félagaskiptagluggans 1. sept-
ember og náðu á aðeins einum
degi að kaupa stórstjörnuna
Robinho, sem varð um leið dýrasti
leikmaður ensku úrvalsdeildar-
innar, á 32,5 milljónir punda.
Ómögulegt er að ímynda sér hvað
hinir forríku eigendur City geta
gert og munu gera á einum mán-
uði þegar félagaskiptaglugginn
opnar á ný í janúar.
Dýrasti leikmaður sögunnar er
hinn franski Zinedine Zidane sem
var keyptur á 48 milljónir punda
frá Juventus til Real Madrid árið
2001 en allt bendir til þess að
City muni gera gott betur en
það og eigendurnir hafa lýst
því yfir að þeir vilji kaupa í
það minnsta eina „stór-
stjörnu“.
Cristiano Ronaldo hjá
Manchester United, Fern-
ando Torres hjá Liver-
pool og Lionel Messi hjá
Barcelona hafa verið
nefndir til sögunnar,
ein þeir voru einmitt
þrír efstu leikmennirn-
ir í kjörinu á Ballon
d‘Or á dögunum, en það
verður að teljast harla ólík-
legt að félög þessara stór-
stjarna muni selja þá svo
glatt.
Raunhæf skotmörk
Peningar geta gert
ótrúlega hluti eins og
sannaðist þegar
Robinho kom til City
á sínum tíma og þó
svo að City nái ef til
vill ekki að kaupa þrjá
af bestu leikmönnum
heims þá er afar lík-
legt að þeir nái til sín
frábærum leikmönn-
um.
City hefur verið
orðað við þrjá heims-
klassa markverði en
það eru þeir Iker
Casillas hjá Real
Madrid, Gianluigi Buffon hjá
Juventus og Manuel Neuer hjá
Schalke. Spænskir fjölmiðlar hafa
fullyrt að City sé meira að segja
tilbúið að borga upp rándýr upp-
sagnarákvæði í samningi Casillas
sem eru talin nema um 130 millj-
ónum punda. Bæði Casillas og
Buffon hafa reyndar lýst því yfir
að þeir séu ánægðir hjá félögum
sínum en sjáum til hvað gerist í
janúar.
Þó svo að fyrirfram áætlað ættu
varnarmenn að vera efstir á óskal-
ista City miðað við gengi félagsins
í úrvalsdeildinni þá hafa þannig
séð ekki margir varnarmenn verið
orðaðir við Borgarleikvanginn í
Manchester. Á meðal þeirra sem
nefndir hafa verið sem líkleg kaup
eru Kolo Toure hjá Arsenal og
vinstri bakverðirnir Wayne Bridge
og Ashley Cole hjá Chelsea.
Meðal miðjumanna sem orðaðir
eru við City eru Xabi Alonso hjá
Liverpool, Axel Witsel hjá Stand-
ard Liege, Lassana Diarra hjá
Portsmouth og Andrei Arshavin
hjá Zenit frá St. Pétursborg. En
þeir tveir síðastnefndu eru báðir
sagðir vera með uppsagnarklausu
í samningi sínum sem gerir City
kleift að kaupa upp samninga
þeirra.
City er mest orðað við fram-
herja en í því samhengi eru meðal
annarra nefndir til sögunnar Vag-
ner Love hjá CSKA Moskva, Luis
Fabiano hjá Sevilla, Sergio Agu-
ero hjá Atletico Madrid, Roque
Santa-Cruz hjá Blackburn, Mario
Gomez hjá Stuttgart og Amr Zaki
og Emile Heskey hjá Wigan.
Þá hefur Robinho látið hafa eftir
sér að hann hafi ráðlagt knatt-
spyrnustjóranum Mark Hughes
að kaupa Thiago Silva, varnar-
mann Fluminense, og Kléber,
sóknarbakvörð Santos, ásamt því
að biðla til hans að fá jafnvel líka
Kaka frá AC Milan ef það væri
möguleiki. Hvort sem Hughes
mun hlusta á Robinho eða ekki er
nokkuð ljóst að hann mun hafa í
nógu að snúast í janúar. Ekki bara
á leikmannamarkaðnum heldur
einnig inni á vellinum þar sem
hann hlýtur að vera undir tals-
verðri pressu um að koma City á
meðal fremstu liða ensku úrvals-
deildarinnar. omar@frettabladid.is
Jólasveinninn kemur til City
Forráðamenn hins nýríka Manchester City hafa þegar teiknað upp óskalista með leikmönnum sem þeir
vonast til þess að fá til félagsins þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar. Eigandi City, Abu Dhabi Unit-
ed Group, hefur þegar sýnt hvers það er megnugt og City má því eiga von á síðbúnum jólagjöfum í janúar.
DR SULAIMAN ABDUL AL-FAHIM
Fer fyrir fyrirtækinu ADUG sem
er hluthafi í Abu Dhabi United
Group og sá um fjármögnun á
Robinho. NORDIC PHOTOS/AFP
ROBINHO Varð dýrasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar þegar Manchest-
er City festi kaup á honum á 32,5 milljónir punda á lokadegi félagaskipta-
gluggans frá Real Madrid. NORDIC PHOTOS/AFP
INNKAUPALISTI(UPPKAST)
Leikmenn sem eru orðaðir við City
Emile Heskey (Wigan) 4 millj. punda
Kolo Toure (Arsenal) 5
Wayne Bridge (Chelsea) 7
Andrei Arshavin (Zenit St. Pétursb.) 8
Lassana Diarra (Portsmouth) 10
Vagner Love (CSKA Moskva) 13
Roque Santa-Cruz (Blackburn) 13
Sergio Aguero (Atletico Madrid) 15
Lukas Podolski (FC Bayern) 15
Xabi Alonso (Liverpool) 15
Axel Witsel (Standard Liege) 17
Mario Gomez (Stuttgart) 17
Ashley Cole (Chelsea) 17
Luis Fabiano (Sevilla) 20
Carlos Tevez (Man. Utd) 30
FÓTBOLTI Það verður mikið um
dýrðir í ensku úrvalsdeildinni í
dag en „stóru fjögur“ liðin, Liver-
pool, Chelsea, Man. Utd og Arsen-
al verða öll í baráttunni í dag.
Liverpool situr eitt á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar fyrir leiki
dagsins þrátt fyrir að hafa gert
tvö markalaus jafntefli í röð en
félagið heimsækir lánlaust lið
Blackburn á Ewood Park, en
Blackburn hefur ekki unnið í síð-
ustu átta leikjum sínum. Black-
burn hefur enn fremur aðeins
unnið Liverpool einu sinni í síð-
ustu níu leikjum á heimavelli
sínum en það var árið 2006 þegar
Benni McCarty skoraði eina
mark leiksins.
Rafa Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool,
er var um sig fyrir leik-
inn en þó bjartsýnn.
„Ég man vel eftir síð-
ustu skiptum sem við
höfum mætt
þeim. Við
höfum ef til
vill verið að
yfirspila þá en
hins vegar
gengið illa að
skora. Við þurfum að vera grimm-
ari og nýta okkar tækifæri og ég
er sannfærður um að við gerum
það,“ segir Benitez.
Chelsea fylgir Liverpool fast á
eftir í öðru sætinu og á einnig úti-
leik í dag, gegn Grétari Rafni
Steinssyni og félögum í Bolton.
Chelsea hefur ekki unnið í síð-
ustu tveimur leikjum sínum í
deildinni, sem þykir nokkur
nýlunda, en Lundúnafélagið státar
þó af besta útivallarárangri og
getur sett nýtt met í efstu deild
gegn Bolton með því að vinna sinn
ellefta útisigur í röð.
Englandsmeistarar Manchester
United fá Sunderland í heimsókn
á Old Trafford. Knattspyrnu-
stjórinn Sir Alex Fergusson
getur unnið sinn 500. sigur í
efstu deild aðeins tveimur
dögum eftir að Roy Keane,
fyrrum fyrirliði
United, sagði upp
störfum sem knatt-
spyrnustjóri Sund-
erland.
United hefur
ærna ástæðu til
bjartsýni fyrir
leikinn þar
sem félagið hefur ekki tapað í síð-
ustu tólf leikjum sínum gegn
Sunderland í úrvalsdeildinni.
Arsenal svaraði gagnrýnendum
eftir tvo tapleiki í röð í úrvals-
deildinni með því að skella Chel-
sea á útivelli um síðustu helgi og
er greinilega ekki búið að segja
sitt síðasta í toppbaráttunni.
Arsenal mætir Wigan á Emirat-
es-leikvanginum í dag. Wigan
hefur nú unnið tvo leiki í röð í
fyrsta skipti síðan knattspyrnu-
stjórinn Steve Bruce tók við
stjórnartaumunum en félagið
hefur þó aldrei unnið „topp fjög-
ur“ liðin, í alls 26 tilraunum. - óþ
Toppliðin fjögur verða öll í eldlínunni í ensku úrvalsdeildinni í dag:
Sir Alex stefnir á 500. sigurinn
SCOLARI Chelsea
getur sett met
með ellefta útisigri
sínum í röð þegar það
mætir Bolton.
NORDIC PHOTOS/GETTY
SIR ALEX Getur
unnið sinn 500.
leik í efstu deild
sem knattspyrnu-
stjóri United.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
EL
KO
Li
nd
um
–
Sk
óg
ar
lin
d 2
. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
19
9 k
r/s
ke
yt
ið.
9. H
VER
VIN
NU
R!
VINNUR ÞÚPS3TÖLVU?
V E F V E R S L U N E L K O . i s
SENDU SMS EST PS3
Á NÚMERIÐ 1900
AÐALVINNINGUR PLA
YSTATION 3
ÁSAMT ÞREMUR LEIK
JUM!
I I
I
I !
AÐEINS Á