Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 4
4 13. desember 2008 LAUGARDAGUR
ÚTFÖR Fjölmenni var við útför
Guðmundar Rúnars Júlíussonar,
eins ástsælasta tónlistarmanns
þjóðarinnar, sem gerð var frá
Keflavíkurkirkju í gær. Einnig
var sýnt beint frá athöfninni í
sjónvarpi, í safnaðarheimili
Keflavíkurkirkju, Fríkirkjunni í
Reykjavík og Duus-húsinu í
Reykjanesbæ, en þar var haldin
erfidrykkja að athöfn lokinni.
Dagur íslenskrar tónlistar var í
gær, og var hann tileinkaður
minningu Rúnars.
Keflavíkurkirkja var skreytt
skjaldarmerkjum Félags
íslenskra hljómlistarmanna
(FÍH) og íþrótta- og ungmennafé-
lags Keflavíkur í tilefni dagsins,
en eins og kunnugt er var Rúnar
Júlíusson liðtækur knattspyrnu-
maður og lék með liðinu við góðan
orðstír.
Séra Skúli S. Ólafsson, sóknar-
prestur í Keflavíkurkirkju,
minntist tónlistarmannsins með
þeim orðum að íslenskt samfélag
og menning væri fátækari ef ekki
væri fyrir ævistarf Rúnars.
Nokkrir helstu tónlistarmenn
þjóðarinnar fluttu lög til heiðurs
Rúnari. Einnig fluttu þeir Baldur
Þórir og Júlíus Freyr, synir Rún-
ars, lagið Það þarf fólk eins og
þig eftir föður sinn.
Rúnar Júlíusson lést föstudag-
inn 5. desember af völdum hjarta-
áfalls. Hann lætur eftir sig eigin-
konuna Maríu Baldursdóttur, tvo
syni og sex barnabörn. - kg
Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar var borinn til grafar í Keflavík í gær:
Fjölmenni við útför Rúnars Júlíussonar
RÚNAR KVADDUR Gunnar Þórðarson, Ágúst Hans Ágústsson, Þorsteinn Eggertsson,
Magnús Torfason, Tryggvi Hübner, Hermann Gunnarsson, Bjartmar Guðlaugsson og
Gylfi Ægisson báru kistu Rúnars. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Minningarsjóður Rúnars:
Styrkir unga
tónlistarmenn
SAMFÉLAGSMÁL Stofnaður hefur
verið sjóður til
minningar um
Rúnar Júlíusson í
Sparisjóðnum í
Keflavík. Reikn-
ingsnúmer
sjóðsins er 1109-
05-2717, kennitala
610269-3389.
Sjóðnum er ætlað
að veita styrki til
ungra og upprenn-
andi poppara á Suðurnesjum.
Þetta kemur fram á vefsíðunni
runarjul.is.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
14°
3°
3°
3°
3°
3°
1°
3°
3°
5°
19°
8°
0°
19°
-1°
4°
12°
3°
-5
-3
-2
-5 -4
-1
-5
1
-6
-1
Á MORGUN
3-8 m/s
MÁNUDAGUR
5-10 m/s
4
2
3
4
4
5
5
4
4
4
2
-3
-3 -5
-6
-4
2 3
-1
-3
-2
RÓLEGT UM
HELGINA
Veðrið um helgina
einkennist af hægum
vindum og úrkomu-
litlu veðri. Í dag má
búast við einhverjum
snjókornum sunnan
til og síðan á morgun
er að sjá snjómuggu
einnig með austur-
strönd landsins. Það
er harðnandi frost í
kortunum og raunar
má búast við hörku
frosti til landsins.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
RÚNAR
JÚLÍUSSON
GENGIÐ 12.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
204,102
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,72 117,28
174,22 175,06
155,33 156,19
20,847 20,969
16,889 16,989
14,608 14,694
1,2934 1,3010
176,91 177,97
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
EFNAHAGSMÁL Álögur ríkisins á
áfengi, tóbak, eldsneyti og fleira
hækkuðu um 12,5 prósent þegar
Alþingi samþykkti breytingar á
lögum með miklum hraða á mið-
vikudagskvöld.
Hagstofan áætlar að bein áhrif
hækkunarinnar á vísitölu neyslu-
verðs, sem mælir verðbólgu, verði
0,4 til 0,5 prósent. Þá hefur ekki
verið tekið tillit til mögulegra
hækkana á fargjöldum og flutn-
ingskostnaði vegna hærra elds-
neytisverðs.
Það þýðir að höfuðstóll verð-
tryggðra lána almennings hækkar
um 0,4 til 0,5 prósent, sem og verð-
tryggður sparnaður landsmanna.
Hækki verðbólgan um 0,5 prósent
hækkar höfuðstóll 20 milljóna
króna láns um 100 þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabanka Íslands eru skuldir
heimilanna um 1.890 milljarðar
króna, þar af um 1.337 milljarðar í
verðtryggðum lánum. Sérfræðing-
ur ASÍ segir að hækki verðbólgan
um 0,5 prósent hækki skuldir
íslenskra heimila um 6,7 milljarða
króna.
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar, sem kynnt var í byrjun
október, var lagt til að þessir liðir
hækkuðu um 11,5 prósent til að
halda í við verðbólguspá. Fram
kemur í athugasemdum með nýsett-
um lögum að vegna breytinga á
verðbólguspá hafi þurft að hækka
meira en áformað var.
Alþingi samþykkti að hækka
áfengisgjald og tóbaksgjald, en auk
þess hækka bifreiðagjöld, vöru-
gjald af bensíni, olíugjald og kíló-
metragjald. Allt hækkar þetta um
12,5 prósent. Áætlað er að tekjur
ríkisins á næsta ári aukist um tæp-
lega 3,6 milljarða vegna hækkunar-
innar. Hækkun um eitt prósentu-
stig umfram það sem áður var
ráðgert mun skila ríkinu tæplega
300 milljónum króna á næsta ári.
brjann@frettabladid.is
Skuldir heimilanna
upp um 6,7 milljarða
Alþingi hefur samþykkt að hækka álögur á eldsneyti, áfengi, tóbak og fleira
um 12,5 prósent. Þetta hækkar verðbólgu um allt að hálft prósent. Verðtryggð
lán landsmanna hækka um það bil um 6,7 milljarða vegna hækkunarinnar.
DROPINN DÝRI Verð á bensínlítra hækkar um 7,70 krónur og dísilolíulítrinn hækkar
um 6,40 krónur samkvæmt útreikningum FÍB. Að auki hækkar verðbólgan, og þar
með skuldir heimilanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNSÝSLA Embætti sérstaks
saksóknara sem rannsaka á grun
um refsiverða háttsemi vegna
bankahrunsins hefur verið auglýst.
Umsækjendur skulu fullnægja
skilyrðum til skipunar í embætti
héraðsdómara en þau kveða meðal
annars á um góða heilsu, lögræði,
óflekkað mannorð, próf í lögfræði
og tiltekna starfsreynslu.
Sérstakur saksóknari þarf að
opinbera upplýsingar um hluta-
bréfaeign í gömlu bönkunum,
skuldir við þá og tengsl sín og
skyldmenna við þá.
Dómsmálaráðherra skipar í
embættið en hann hefur lýst yfir
vilja til að eiga samráð við alla
flokka um verkið. - bþs
Auglýst eftir saksóknara:
Þarf að upplýsa
um skuldir og
hlutabréfaeign
BELGÍA, AP Sex menn, sem voru í
hópi fjórtán manna sem hand-
teknir voru víða um Belgíu á
fimmtudag, voru í gær ákærðir
fyrir að tilheyra hryðjuverka-
samtökum.
Meðal hinna ákærðu er kona,
hvers eiginmaður átti þátt í
samsæri um að ráða Ahmed
Massoud, stríðsherra í Norður-
Afganistan sem barðist gegn
talibönum er þeir voru við völd í
Kabúl, af dögum haustið 2001.
Hin ákærðu eru kjarni hryðju-
verkahóps herskárra íslamista, og
að sögn Lieve Pellens, talsmanns
belgísku lögreglunnar, var einn í
hópnum að undirbúa sjálfsvígs-
sprengjutilræði. - aa
Grunur um hryðjuverkatengsl:
Sex handteknir
ákærðir í Belgíu
HANDTÖKUR Lögreglubíll fyrir utan
dómhús í Brussel í gær, þar sem sak-
borningunum sex voru birtar ákærur.
NORDICPHOTOS/AFP
Fangelsi og ævilöng svipting
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og til
ævilangrar ökuleyfissviptingar fyrir
ölvunarakstur. Hann hafði áður gerst
brotlegur og verið sviptur ökuréttind-
um tímabundið.
DÓMSTÓLAR
DÓMSMÁL Fresta þurfti meðferð
kröfu um að Landsbankinn veiti
upplýsingar um fjárfestingar
peningamarkaðssjóða sinna fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Lögmaður Landsbankans var
upptekinn við málflutning í öðru
dómsmáli.
Hópur fólks sem átti í peninga-
markaðssjóðum Landsbankans
hefur krafið bankann upplýsinga
um fjárfestingar, eignaskiptingu
og fleira. Bankinn hefur ekki
svarað erindum þar um. Því er
upplýsinganna krafist með
fulltingi héraðsdóms.
Stefnt er að því að taka málið
fyrir á ný í næstu viku. - bþs
Upplýsinga krafist fyrir dómi:
Lögmaðurinn
var upptekinn
Bifreiðagjöld, vörugjald af bensíni,
olíugjald og kílómetragjald, hækka
um 12,5 prósent. Hækkunin tók
gildi í gær. Bensínlítrinn mun hækka
um 7,70 krónur og dísilolíulítrinn
um 6,40 krónur, segir Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bifreiðaeigenda. Það þýðir
um 20 þúsund króna kostnaðar-
auka fyrir meðal heimilisbíl, segir
Runólfur.
Áfengisgjald og tóbaksgjald
hækkuðu um 12,5 prósent. Tóbak
hækkaði strax í gær, en áfengi
hækkar á næstu dögum þegar
birgjar hafa endurskoðað verðskrá
sína, segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri ÁTVR.
Meðaltalshækkun á tóbaki er
um 7,8 prósent. Hækkun á áfengi
er misjöfn eftir áfengisprósentu.
Algeng tegund af rauðvíni mun
hækka um 5,2 prósent, hálfur lítri af
vinsælli bjórtegund um 5,8 prósent,
algeng tegund af vodka um 9,2
prósent og vinsæl koníaksflaska um
4,4 prósent.
KOSTAR BÍLEIGANDA 20 ÞÚSUND Á ÁRI