Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 70
62 13. desember 2008 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Eiginmaður minn, Örn Clausen hæstaréttarlögmaður, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni að kvöldi 11. desember. Útförin auglýst síðar. Guðrún Erlendsdóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Helga Þorsteinssonar fyrrum skólastjóra og bæjarritara á Dalvík, Skálagerði 4, Akureyri. Guðrún Bergsdóttir og fjölskyldur. HANNES HAFSTEIN RÁÐHERRA ANDAÐIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1922 Heill sé hugur og snilli, heill sé ráði og dáðum. Heill sé hendi’ og anda, heiður um foldu breiðist. Hannes Hafstein var eitt af þjóðskáldum Íslands, sýslu- maður á Ísafirði og fyrsti ráð- herra landsins. MERKISATBURÐIR 1947 Breski togarinn Dhoon strandar undir Látra- bjargi og var tólf mönnum bjargað við mjög erfiðar aðstæður. 1981 Wojciech Jaruzelski lýsir yfir herlögum í Póllandi. 1988 Sjötug kona í Reykjavík fær stærsta happdrættis- vinning sem þá hafði sést á Íslandi, 25 milljónir í Happdrætti Háskólans. 1996 Fyrsta skóflustungan að Grafarvogslaug er tekin 2006 Þrír ítalskir verkamenn slasast þegar tvær járn- brautarlestir skella saman við gerð Kárahnjúkavirkj- unar. Vígt var nýtt orgel í Hall- grímskirkju í Reykjavík þennan mánaðardag árið 1992 og var það stærsta hljóðfæri á Íslandi á þeim tíma. Það er um 17 metrar á hæð, vegur um 25 tonn og í því eru 5.200 pípur. Smíði þess kostaði um 100 milljónir króna. Fjárins var að miklu leyti aflað með almennum samskotum. Margar fjölskyldur tóku sig saman um að borga eina og eina pípu og einnig létu margir minningargjafir um ástvini renna í orgelsjóðinn. Þýska fyrirtækið Klais Orgelbau smíðaði hið volduga hljóðfæri og for- stjórinn, Hans-Gerd Klais, kom til landsins við afhjúp- un orgelsins sem fór fram 22. október. Hann lagði eyrun við leik Harðar Ás- kelssonar organista og lýsti því síðan yfir að hljómurinn væri eins og vonast hefði verið til. Hallgrímskirkja er 74,5 metra há. Útlit og gerð org- elsins taka mið af bygging- arstíl kirkjunnar. Orgelhús- ið er tilkomumikið, enda á fjórum hæðum, smíðað úr eik og með tvöfaldan gler- vegg að baki. Gera þurfti nokkrar breytingar á kirkj- unni til að hljómur þess yrði sem fegurstur. ÞETTA GERÐIST: 13. DESEMBER 1992 Orgel vígt í Hallgrímskirkju „Eimskipafélagið gefur út almanak að venju. Það er einn af föstum punktum í starfsemi félagsins og veggskreyting- um íslensku þjóðarinnar,“ segir Ólafur William Hand, kynningar- og markaðs- stjóri Eimskipafélags Íslands. Almanakið fyrir 2009, sem er ný- komið út, er hið 80. í röðinni því útgáf- an hófst árið 1928. „Það var með fyrstu samfélagslegu verkefnum félagsins að gefa út almanök og senda til hlut- hafa sinna sem voru dreifðir um land- ið. Í mörg ár höfum við líka sent þau til allra sem óskað hafa eftir og al- menningur hefur getað komið á skrif- stofur félagsins og fengið eintök sér að kostnaðarlausu. Síðustu daga hefur fólk streymt í móttökuna á Korngörð- um, húsið við hliðina á Vöruhótelinu, til að ná í þennan glaðning,“ segir Ólafur ánægður og bætir við: „Verðmæti hafa breyst mikið gegnum tíðina. Þó held ég að flestir fagni því enn að fá almanak Eimskips frítt, einkum eldra fólkið sem ólst upp við það.“ Eimskip hefur ávallt lagt mikið upp úr fallegum myndum á almanökunum sem margir af þekktustu ljósmyndur- um landsins hafa átt heiður að. Nýjasta útgáfan er prýdd myndum eftir Ragnar Axelsson. Þær eru af tólf fossum. Tákn- rænt því Eimskip nefnir skip sín eftir þeim. Þetta eru til dæmis Gullfoss, Goðafoss, Brúarfoss, Laxfoss, Trölla- foss og Lagarfoss. Þar eru líka litlar myndir af fyrstu skipunum sem báru þessi nöfn og saga þeirra í stuttu máli. Hvorutveggja úr bókinni Skipasagan í sjötíu og fimm ár sem Hilmar Snorra- son skráði fyrir Eimskip í tilefni af 75 ára afmæli félagsins. „Þannig að fólk hefur eitthvað að lesa á veggnum, ann- aðhvort til að rifja upp eða fræðast um í fyrsta skipti,“ bendir Ólafur á. Næsta ár verða 95 ár liðin frá stofn- un Eimskipafélags Íslands sem hefur verið kallað Óskabarn þjóðarinnar og margir landsmenn fjárfestu í til að greiða fyrir flutningum. Í tilefni af- mælisins er ætlunin að halda veglega sýningu á öllum almanökum félagsins í sal Sjóminjasafnsins á Grandagarði í janúar. „Fyrstu dagatölin voru þannig að listamenn voru fengnir til að teikna myndir af skipunum og mála þær en á seinni árum hefur íslenskt lands- lag verið í forgrunni,“ segir Ólafur og vill gjarnan koma því á framfæri að eina almanakið sem vantar í safnið er það fyrsta, frá 1928. Ef einhver lumar á því eða öðrum markverðum munum frá félaginu er honum akkur í að fá þá að láni. Dagatalið fyrir 2009 er gefið út í 20.000 eintökum. Þar af fara 5 til 6.000 út í heim sem landkynning. Þó eru það Íslendingar sem það tengist fyrst og fremst enda á það sinn fasta nagla í flestum eldhúsum landsins. „Við próf- uðum að hafa almanakið á þverveginn en breyttum strax aftur yfir í hangandi brot því húsmæður kvörtuðu sáran yfir því að það þyrfti að mála vegginn upp á nýtt. Hann var orðinn gulnaður undir því gamla.“ gun@frettabladid.is ALMANAK EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS: KEMUR ÚT Í 80. SKIPTI Almanakið á sinn fasta nagla í flestum eldhúsum landsins MEÐ ALMANÖKIN KRINGUM SIG „Einn af föstum punktum í starfsemi félagsins og veggskreytingum íslensku þjóðarinnar,“ segir Ólafur William, kynningar- og markaðsstjóri Eimskips. FRÉTTABLAÐIÐ/GVASala á engli vonar hefst nú í fimmta sinn. Hluti af söluverði hans renn- ur til Krabbameinsfélags Íslands og verður nýttur til að styðja við Ráðgjaf- arþjónustuna sem veit- ir ókeypis ráðgjöf til sjúk- linga og aðstandenda. Það er Verslun Guðlaugs A. Magnússonar að Skóla- vörðustíg 10 í Reykja- vík sem selur Engilinn en framleiðsla hans hófst árið 2004 í tilefni af 80 ára af- mæli verslunarinnar. Eng- illinn sem er gerður úr handpóleruðu messing er hannaður af Hönnu S. Magnúsdóttur, barnabarni Guðlaugs. Hann er merktur ártalinu 2008. Engill vonar ENGILL VONAR Hluti af ágóða rennur til Krabbameinsfélagsins. Starfsmenn Múlalundar gerðu sér glaðan dag í vikunni og gæddu sér á hangikjöti og tilheyrandi. Í Múlalundi eru framleiddar fjölmargar íslenskar vörur en þar starfar fólk sem á við einhvers konar fötlun að stríða. Múlalundur, sem er í Hátúni, var stofnaður árið 1959 og verður fimmtíu ára á næsta ári. Hann er því elsti og stærsti verndaði vinnustað- ur landsins. Jólamatur í Múlalundi GÓÐUR MATUR Nokkrir starfsmenn Múlalundar njóta matarins. AFMÆLI LÁRUS GRÍMSSON tónlistarmaður er fimmtíu og fjögurra ára í dag. LÍSA PÁLSDÓTTIR dagskrárgerðarkona er fimmtíu og fimm ára í dag. ÓLI G. JÓHANNSSON myndlistarmaður er sextíu og þriggja ára í dag. 90 ára afmæli Níræð er í dag María Ágústsdóttir, nú til heimilis á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. María er ættuð frá Geiteyjarströnd í Mývatnssveit. Eiginmaður hennar var Sigurður G. Jóhannesson kennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.