Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 32
32 13. desember 2008 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson skrifa um fram- tíð Íslands Á andartaki færðumst við Íslendingar úr því að vera í fremstu röð þjóða hvað lífsgæði áhrærir yfir í að leita alþjóðlegrar ásjár til þess að koma landinu úr efnahagslegri herkví og gera gjaldmiðilinn gjaldgengan. Þessi umskipti kalla á uppgjör, krafan um skýringar er ekki bara sjálf- sögð og eðlileg, hún er nauðsynleg forsenda þess að við getum endur- reist efnahagslífið á traustum grunni og komið sjálfu þjóðlífinu í eðlilegan farveg á ný. Á undanförnum árum mistókst okkur að tengja saman ríkisfjár- málin og stjórn peningamála. Útgjöld hins opinbera – bæði ríkis og sveitarfélaga – hafa aukist gríð- arlega að raungildi síðastliðinn áratug. Það er óþarfi að rekja þenslu undanfarinna ára í smá- atriðum; tilraunir Seðlabankans til að slá á verðbólgu með stýri- vaxtahækkunum; hvernig erlend lán og verðtrygging drógu úr áhrifamætti vaxtahækkana bank- ans, vaxtamunurinn við útlönd sogaði til sín erlent fjármagn og vextir urðu ein helsta útflutnings- afurð þjóðarinnar. Afleiðingin varð meðal annars sú að gengi íslensku krónunnar varð sterkara en verðmætasköpun þjóðarinnar gat staðið undir. Fyrir vikið varð kaupmáttur of mikill, einkaneysl- an jókst og víða í atvinnulífinu fóru menn fram úr sér líka. Niður- staðan varð sú að verðbólga rauk upp og hagkerfið varð ramm- skakkt: framleiðslan og útflutn- ingur greiddu fyrir óhóflega neyslu og ódýra mynt, sem nýttist þeim sem fjárfestu erlendis. Á þessum vanda hafði ekki verið unnið þegar bankahrunið varð. Fjármálakreppan nú er sú versta síðan 1930 og hana stóðust íslensku bankarnir ekki. Niður- staða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er sú að við höfum verið illa undir- búin og heimili og atvinnulíf of skuldsett. Einkavæðingin Margir hafa orðið til þess að benda á einkavæðingu ríkisbankanna sem upphaf ógæfunnar. Undir það viljum við ekki taka. Einkavæðing ríkisbankanna var rétt ákvörðun, en flest bendir til þess að reglur um eignarhald hefðu þurft að vera betur úr garði gerðar. Þröngt eign- arhald fer illa saman við að helstu eigendur bankanna séu jafn fyrir- ferðarmiklir í viðskiptum og verið hefur hér á landi. Þetta á ekki síst við vegna þess hve fákeppni er algeng í atvinnulífi okkar og kross- eignatengsl útbreidd. Án nokkurs vafa hefði verið skynsamlegt að setja eignarhaldi að bönkum þrengri skorður. Víða má finna dæmi í löggjöf annarra ríkja um að enginn einn aðili eða eigenda- hópur megi fara með stærri hlut en 25-30% og að athafnafrelsi þeirra sem fara með stóran eignarhlut í banka sé mjög tak- markað. Alþjóðavæðing fjármálalífsins felur í senn í sér mikil tækifæri og hættur. Erlendar lántökur bank- anna og of ör stækkun efnahags þeirra gerði það að verkum að bankarnir höfðu í raun engan lán- veitanda til þrautavara og þar með voru íslensku bankarnir í mun verri stöðu en erlendir bankar þrátt fyrir að rekstur þeirra virtist sterkur. Fjármálaeftirlitið hafði ekki næga fjármuni og mannafla til að sinna hlutverki sínu. Þetta var látið viðgangast of lengi og stjórn- málamenn bera þar sína ábyrgð. Þrátt fyrir mikla aukningu á síð- ustu tveimur árum er það enn svo að Fjármálaeftirlitið er einungis með um 60% þess mannafla sem Fiskistofa hefur. Höfum þó hug- fast að getu okkar til að byggja upp margar öflugar stofnanir eru takmörk sett og því fögnum við tillögu forsætisráðherra um að skoða hvort sameina megi Fjár- málaeftirlitið og Seðlabankann. Mikilvæg næstu skref Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur gripið til á undanförnum mánuðum hafa markast af því að reyna að lágmarka þann skaða sem orðið hefur. Þjóðnýting bank- anna tryggði að greiðslukerfin hrundu ekki og þar með gat almenningur og viðskiptalífið áfram nýtt sér bankaþjónustu. Aðgerðir til að leysa bráðavanda heimilanna og viðskiptalífsins hafa nú þegar litið dagsins ljós og fram undan eru verkefni sem snúa að því hvernig við leysum úr málum á næstu misserum og leggjum þar með grunn að efna- hagslegri endurreisn. Við viljum hér tæpa á nokkrum atriðum sem við teljum að geti verið gagnleg í þeirri vinnu. • Samdráttur í tekjum og aukn- ar vaxtagreiðslur gerir það að verkum að nauðsynlegt er að skera niður í ríkisbúskapnum á næstu árum. Breyttar aðstæður kalla á að við endurhugsum og hagræðum í öllum ríkisrekstrin- um. Við leggjum til að sett verði upp nokkurra ára áætlun um slíka endurskipulagningu með aðstoð færustu sérfræðinga á Íslandi og eftir atvikum aðkomu alþjóðlegs ráðgjafarfyrirtækis. • Halda ber skattahækkunum í lágmarki því með þeim er dregið úr framkvæmdavilja í samfélag- inu sem aftur vinnur gegn því markmiði að komast sem fyrst út úr efnahagskreppunni. • Auka þarf gagnsæi í störfum eftirlitsstofnana fjármálakerfis- ins. Þetta er nauðsynlegur liður í að auka skilning á því starfi sem þar fer fram og um leið traust á kerfinu í heild. • Komið verði á föstum sam- ráðsvettvangi á milli ríkisstjórn- arinnar, samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar. Sam- ráð þessara aðila er lykillinn að árangri á næstu mánuðum og reglulegir fundir á milli þeirra ráðherra sem með efnahagsmál fara og forystumanna aðila vinnu- markaðarins því nauðsynlegir. • Skýrar, einfaldar og gagnsæjar reglur verða að gilda um sam- skipti ríkisbankanna við viðskipta- vini sína vegna þess almenna vanda sem við er að etja. Þetta á bæði við um fyrirtæki og einstaklinga. • Mikilvægt er að öflug efna- hagsskrifstofa sé til staðar í forsætisráðuneytinu sem hafi ráðgefandi hlutverk fyrir forsæt- isráðherra og ríkisstjórn. Jafn- framt leggjum við til að Alþingi geri fastan samning við háskóla- stofnun um gerð þjóðhagsspár og annarra álitsgerða um þau efna- hagslegu málefni sem þingið telur nauðsynlegt. • Áhersla verði lögð á að flýta gjaldeyrisskapandi framkvæmd- um og ráðist verði í þá orkuöflun sem nauðsynleg er til að slíkt megi verða. Jafnframt verður að afnema eins fljótt og auðið er höft á gjaldeyrisviðskipti, en á meðan þau eru þarf að gæta þess að krón- an styrkist ekki umfram þarfir framleiðslunnar. • Leita þarf allra leiða til að koma í veg fyrir að þeir sem lenda í fjárhagserfiðleikum á næstu misserum missi heimili sín. • Lækka verður vexti við fyrsta tækifæri og gera aðgang að fjár- magni greiðari fyrir fjárþurfa atvinnulíf. Vandi smárrar myntar Vegna þeirra efnahagserfiðleika sem fram undan eru er mjög kall- að eftir því að stjórnmálaflokkar móti sér sýn og stefnu sem stýrt geti för næstu misseri og ár. Í ljósi aðstæðna er eðlilegt að sú umræða hverfist einkum um peningamála- stefnuna, valkosti í gjaldmiðils- málum og ríkisfjármálin. Peninga- málastefnan er ein af grunnstoðum efnahagsstefnu hvers ríkis og traustur gjaldmiðill gegnir lykil- hlutverki við mótun og fram- kvæmd slíkrar stefnu. Íslenska krónan er smá og við- kæm fyrir ytri áhrifavöldum. Á undanförnum árum hafa miklar sveiflur í gjaldmiðlinum valdið fyrirtækjum og heimilum veru- legum vanda. Veik staða krónunar um þessar mundir er okkur reynd- ar mikilvæg og verður það áfram á næstunni til þess að reisa hag- kerfinð við, því lágt gengi styrkir útflutninginn og veitir innlendri framleiðslu vernd. Þar með vernd- um við störfin og aukum fram- leiðsluna. Ýmis rök hníga því að því að krónan geti hentað okkur ágætlega til skamms tíma. En sé horft til lengri tíma er hætt við að krónan verði okkur fjötur um fót. Sá sveigjanleiki sem krónan veitir okkur til að kljást við afleiðingar mistaka í hagstjórn eða til að bregðast við ytri áföllum á sér því miður þá skuggahlið að vera sveifluvaldandi og geta ýtt undir óstöðugleika í hagkerfinu. Óstöðugur gjaldmiðill dregur úr trausti á hagkerfinu og þar með möguleikum okkar á að nýta til fulls þau tækifæri sem felast í innri markaði Evrópu, laða til okkar fjárfestingar og hámarka samkeppnishæfni atvinnulífsins. Vöxtur nýrra atvinnugreina og fyrirtækja sem starfa að stórum hluta erlendis en eiga höfuðstöðvar hér á landi takmarkast mjög af stærð myntarinnar og því óöryggi sem af henni hlýst. Ekki verður horft fram hjá þeim veikleikum sem felast í smæð myntkerfisins. Meira að segja Bretar velta því nú fyrir sér hvort myntsvæði þeirra sé of lítið til að tryggja samkeppn- ishæfni þjóðarinnar. Það kemur því ekki á óvart að forystumenn íslensks atvinnulífs leggi um þess- ar mundir vaxandi áherslu á að mótuð verði stefna í gjaldmiðils- málum á nýjum forsendum. Leið- togar verkalýðshreyfingarinnar hafa á sama tíma sannfæringu fyrir því að án nýs gjaldmiðils muni ekki takast að verja stöðug- leika og þar með kaupmátt almennings. Með upptöku nýs gjaldmiðils verða ekki öll hagstjórnarvanda- mál okkar leyst, langur vegur er þar í frá. Það er sanni nær að í slíkri ákvörðun felist að setja stöð- ugleikann í forgang og sætta sig við að geta ekki mætt sveiflum í hagkerfinu með aðlögun gengis- ins. Rangt væri að gera lítið úr þeirri fórn. Þeir sem um þessar mundir mæla fyrir Evrópusam- bandsaðild nefna einkum ávinning af upptöku evrunnar og kosti sam- starfsins innan Myntbandalagsins máli sínu til stuðnings. Það má til sanns vegar færa að evran er að sumu leyti heppilegur valkostur fyrir okkur Íslendinga sem fram- tíðargjaldmiðill, en aðrir kostir í þeim málum hljóta jafnframt að koma til skoðunar. Evrópusam- bandsaðild er hins vegar miklu stærra og flóknara mál en svo að hægt sé að láta það ráðast af gjald- miðlinum einum. Með í kaupunum fylgja ýmsir aðrir þættir, sumir jákvæðir en aðrir neikvæðir og þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn talið vega svo þungt, að hagsmunum þjóðarinnar væri betur borgið utan ESB en innan. Þessi afstaða hefur átt samhljóm meðal þjóðar- innar enda ESB aðild aldrei verið kosningamál hér á landi. Þrátt fyrir efnahagslega erfið- leika á Íslandi er ljóst að ekkert hefur breyst varðandi þau grund- vallaratriði sem um er að semja í aðildarviðræðum við ESB. Allt sem sagt hefur verið um ókosti sjávarútvegsstefnu ESB, áhrif á utanríkis- og öryggismál okkar og frekara framsal á fullveldi okkar á jafnt við nú og fyrir hrun banka- kerfisins eða fall gjaldmiðilsins. En færa má fyrir því rök að kostir myntsamstarfs við ESB hafi vegna aðstæðna öðlast nýtt og aukið vægi. Með vísan til þess og þeirra straumhvarfa sem orðið hafa í efnahagslegu tilliti er því skyn- samlegt að fara að nýju yfir það hagsmunamat sem ráðið hefur afstöðu Sjálfstæðisflokksins til þessa, með sérstaka áherslu á framtíðarstefnu í peninga- og gjaldmiðilsmálum. Þjóðaratkvæðagreiðsla Verði það niðurstaða endurmats Sjálfstæðisflokksins að hagsmun- um þjóðarinnar sé enn betur borg- ið utan ESB væri það engu síður mjög í samræmi við ríka lýðræð- ishefð í Sjálfstæðisflokknum að láta málið ganga til þjóðarinnar í kjölfar viðræðna, þar sem ítrustu hagsmuna hefur verið gætt. Varð- staða um auðlindir þjóðarinnar skiptir þar höfuðmáli. Ljóst er að hér er um að ræða mál sem gengur þvert á flokkslín- ur. Aðrir flokkar hafa hver með sínum hætti opnað á að virkja beint lýðræði til lausnar á aðildar- spurningunni og það gengur gegn kjarna sjálfstæðisstefnunnar að flokkurinn leggi stein í götu slíkr- ar leiðar. Óumdeilanlegt er að staða okkar í alþjóðlegu samstarfi og innan Evrópusamstarfsins mun hvíla á sterkari grunni að loknu slíku ferli. Hér ber einnig að líta til þess að samningur við ESB er hinn endanlegi úrskurður um þær reglur og undanþágur sem gilda eiga við inngöngu Íslands í ESB. Þó að meginlínurnar um þessi efni séu skýrar er viðvarandi ágrein- ingur um ýmsa mikilvæga þætti, svo sem mögulega stjórn Íslend- inga á sérstökum fiskveiðisvæð- um, yfirráð veiðiheimilda úr stað- bundnum stofnum, heimildir til takmarkana á fjárfestingu og fjölmörg fleiri atriði. Þær sérstöku aðstæður sem nú eru uppi kalla á að þjóðin öll taki í kjölfar aðildarviðræðna ákvörðun um þetta mikilvæga mál. Ræður þar úrslitum að halda ber á hags- munum Íslendinga gagnvart Evr- ópusambandinu með það að leiðar- ljósi að sem víðtækust sátt og samstaða takist um niðurstöðuna. Til varnar frelsinu Margir eiga nú við vanda að etja, standa frammi fyrir atvinnuleysi og erfiðleikum þrátt fyrir að hafa sýnt varkárni og almenna fyrir- hyggju í fjármálum sínum. Þetta hefur leitt til þess að sú skoðun er nú næsta útbreidd að frelsið hafi einhvern veginn hlaupið með okkur í gönur, að hrun bankanna og afleiðingar þess sé frelsinu að kenna. Sótt er að þeirri lífsskoðun að athafnafrelsi og einstaklings- frelsi skuli liggja þjóðskipulaginu til grundvallar. Frelsi einstaklingsins til orða og athafna er markmið í sjálfu sér. Sagan geymir fjölda dæma um hvernig allt um lykjandi ríkisvald drepur mannlífið í dróma, hvernig grámóska og einsleitni bera fjöl- breytni og athafnagleði ofurliði þegar hið opinbera er upphaf og endir alls. En hitt er einnig ljóst að ríkisrekstur getur aldrei keppt við hið frjálsa hagkerfi þegar kemur að verðmætasköpun, um það ber sagan rækilegt vitni. Leiðin út úr þeim efnahagsvanda sem nú er við að kljást er því ekki vörðuð Endurreisn á nýjum grunni Allur vafi um sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu grefur undan tiltrú almennigs á stjórnskipulaginu. Þegar svo við bætist sú gremja og heift sem fylgir hruni í efnahagslífinu er rétt að ígrunda hvort ekki sé nauðsynlegt að gera breytingar á stjórnskipuninni í þeim tilgangi að skerpa á ábyrgð einstakra þátta ríkisvaldsins og stofnana þess. Slíkar breytingar kunna að vera tímabærar og nauðsynlegur liður í að endurheimta traust almennings á stjórnskipulaginu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA ILLUGI GUNNARSSON BJARNI BENEDIKTSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.