Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 32
32 13. desember 2008 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Bjarni Benediktsson og Illugi
Gunnarsson skrifa um fram-
tíð Íslands
Á andartaki færðumst við Íslendingar úr því að vera í
fremstu röð þjóða hvað lífsgæði
áhrærir yfir í að leita alþjóðlegrar
ásjár til þess að koma landinu úr
efnahagslegri herkví og gera
gjaldmiðilinn gjaldgengan. Þessi
umskipti kalla á uppgjör, krafan
um skýringar er ekki bara sjálf-
sögð og eðlileg, hún er nauðsynleg
forsenda þess að við getum endur-
reist efnahagslífið á traustum
grunni og komið sjálfu þjóðlífinu í
eðlilegan farveg á ný.
Á undanförnum árum mistókst
okkur að tengja saman ríkisfjár-
málin og stjórn peningamála.
Útgjöld hins opinbera – bæði ríkis
og sveitarfélaga – hafa aukist gríð-
arlega að raungildi síðastliðinn
áratug. Það er óþarfi að rekja
þenslu undanfarinna ára í smá-
atriðum; tilraunir Seðlabankans
til að slá á verðbólgu með stýri-
vaxtahækkunum; hvernig erlend
lán og verðtrygging drógu úr
áhrifamætti vaxtahækkana bank-
ans, vaxtamunurinn við útlönd
sogaði til sín erlent fjármagn og
vextir urðu ein helsta útflutnings-
afurð þjóðarinnar. Afleiðingin
varð meðal annars sú að gengi
íslensku krónunnar varð sterkara
en verðmætasköpun þjóðarinnar
gat staðið undir. Fyrir vikið varð
kaupmáttur of mikill, einkaneysl-
an jókst og víða í atvinnulífinu
fóru menn fram úr sér líka. Niður-
staðan varð sú að verðbólga rauk
upp og hagkerfið varð ramm-
skakkt: framleiðslan og útflutn-
ingur greiddu fyrir óhóflega
neyslu og ódýra mynt, sem nýttist
þeim sem fjárfestu erlendis. Á
þessum vanda hafði ekki verið
unnið þegar bankahrunið varð.
Fjármálakreppan nú er sú
versta síðan 1930 og hana stóðust
íslensku bankarnir ekki. Niður-
staða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
er sú að við höfum verið illa undir-
búin og heimili og atvinnulíf of
skuldsett.
Einkavæðingin
Margir hafa orðið til þess að benda
á einkavæðingu ríkisbankanna
sem upphaf ógæfunnar. Undir það
viljum við ekki taka. Einkavæðing
ríkisbankanna var rétt ákvörðun,
en flest bendir til þess að reglur
um eignarhald hefðu þurft að vera
betur úr garði gerðar. Þröngt eign-
arhald fer illa saman við að helstu
eigendur bankanna séu jafn fyrir-
ferðarmiklir í viðskiptum og verið
hefur hér á landi. Þetta á ekki síst
við vegna þess hve fákeppni er
algeng í atvinnulífi okkar og kross-
eignatengsl útbreidd. Án nokkurs
vafa hefði verið skynsamlegt að
setja eignarhaldi að bönkum
þrengri skorður. Víða má finna
dæmi í löggjöf annarra ríkja um
að enginn einn aðili eða eigenda-
hópur megi fara með stærri hlut
en 25-30% og að athafnafrelsi
þeirra sem fara með stóran
eignarhlut í banka sé mjög tak-
markað.
Alþjóðavæðing fjármálalífsins
felur í senn í sér mikil tækifæri og
hættur. Erlendar lántökur bank-
anna og of ör stækkun efnahags
þeirra gerði það að verkum að
bankarnir höfðu í raun engan lán-
veitanda til þrautavara og þar með
voru íslensku bankarnir í mun
verri stöðu en erlendir bankar
þrátt fyrir að rekstur þeirra virtist
sterkur.
Fjármálaeftirlitið hafði ekki
næga fjármuni og mannafla til að
sinna hlutverki sínu. Þetta var
látið viðgangast of lengi og stjórn-
málamenn bera þar sína ábyrgð.
Þrátt fyrir mikla aukningu á síð-
ustu tveimur árum er það enn svo
að Fjármálaeftirlitið er einungis
með um 60% þess mannafla sem
Fiskistofa hefur. Höfum þó hug-
fast að getu okkar til að byggja
upp margar öflugar stofnanir eru
takmörk sett og því fögnum við
tillögu forsætisráðherra um að
skoða hvort sameina megi Fjár-
málaeftirlitið og Seðlabankann.
Mikilvæg næstu skref
Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin
hefur gripið til á undanförnum
mánuðum hafa markast af því að
reyna að lágmarka þann skaða
sem orðið hefur. Þjóðnýting bank-
anna tryggði að greiðslukerfin
hrundu ekki og þar með gat
almenningur og viðskiptalífið
áfram nýtt sér bankaþjónustu.
Aðgerðir til að leysa bráðavanda
heimilanna og viðskiptalífsins
hafa nú þegar litið dagsins ljós og
fram undan eru verkefni sem snúa
að því hvernig við leysum úr
málum á næstu misserum og
leggjum þar með grunn að efna-
hagslegri endurreisn. Við viljum
hér tæpa á nokkrum atriðum sem
við teljum að geti verið gagnleg í
þeirri vinnu.
• Samdráttur í tekjum og aukn-
ar vaxtagreiðslur gerir það að
verkum að nauðsynlegt er að
skera niður í ríkisbúskapnum á
næstu árum. Breyttar aðstæður
kalla á að við endurhugsum og
hagræðum í öllum ríkisrekstrin-
um. Við leggjum til að sett verði
upp nokkurra ára áætlun um slíka
endurskipulagningu með aðstoð
færustu sérfræðinga á Íslandi og
eftir atvikum aðkomu alþjóðlegs
ráðgjafarfyrirtækis.
• Halda ber skattahækkunum í
lágmarki því með þeim er dregið
úr framkvæmdavilja í samfélag-
inu sem aftur vinnur gegn því
markmiði að komast sem fyrst út
úr efnahagskreppunni.
• Auka þarf gagnsæi í störfum
eftirlitsstofnana fjármálakerfis-
ins. Þetta er nauðsynlegur liður í
að auka skilning á því starfi sem
þar fer fram og um leið traust á
kerfinu í heild.
• Komið verði á föstum sam-
ráðsvettvangi á milli ríkisstjórn-
arinnar, samtaka atvinnulífsins og
verkalýðshreyfingarinnar. Sam-
ráð þessara aðila er lykillinn að
árangri á næstu mánuðum og
reglulegir fundir á milli þeirra
ráðherra sem með efnahagsmál
fara og forystumanna aðila vinnu-
markaðarins því nauðsynlegir.
• Skýrar, einfaldar og gagnsæjar
reglur verða að gilda um sam-
skipti ríkisbankanna við viðskipta-
vini sína vegna þess almenna
vanda sem við er að etja. Þetta á
bæði við um fyrirtæki og
einstaklinga.
• Mikilvægt er að öflug efna-
hagsskrifstofa sé til staðar í
forsætisráðuneytinu sem hafi
ráðgefandi hlutverk fyrir forsæt-
isráðherra og ríkisstjórn. Jafn-
framt leggjum við til að Alþingi
geri fastan samning við háskóla-
stofnun um gerð þjóðhagsspár og
annarra álitsgerða um þau efna-
hagslegu málefni sem þingið telur
nauðsynlegt.
• Áhersla verði lögð á að flýta
gjaldeyrisskapandi framkvæmd-
um og ráðist verði í þá orkuöflun
sem nauðsynleg er til að slíkt megi
verða. Jafnframt verður að
afnema eins fljótt og auðið er höft
á gjaldeyrisviðskipti, en á meðan
þau eru þarf að gæta þess að krón-
an styrkist ekki umfram þarfir
framleiðslunnar.
• Leita þarf allra leiða til að
koma í veg fyrir að þeir sem lenda
í fjárhagserfiðleikum á næstu
misserum missi heimili sín.
• Lækka verður vexti við fyrsta
tækifæri og gera aðgang að fjár-
magni greiðari fyrir fjárþurfa
atvinnulíf.
Vandi smárrar myntar
Vegna þeirra efnahagserfiðleika
sem fram undan eru er mjög kall-
að eftir því að stjórnmálaflokkar
móti sér sýn og stefnu sem stýrt
geti för næstu misseri og ár. Í ljósi
aðstæðna er eðlilegt að sú umræða
hverfist einkum um peningamála-
stefnuna, valkosti í gjaldmiðils-
málum og ríkisfjármálin. Peninga-
málastefnan er ein af grunnstoðum
efnahagsstefnu hvers ríkis og
traustur gjaldmiðill gegnir lykil-
hlutverki við mótun og fram-
kvæmd slíkrar stefnu.
Íslenska krónan er smá og við-
kæm fyrir ytri áhrifavöldum. Á
undanförnum árum hafa miklar
sveiflur í gjaldmiðlinum valdið
fyrirtækjum og heimilum veru-
legum vanda. Veik staða krónunar
um þessar mundir er okkur reynd-
ar mikilvæg og verður það áfram
á næstunni til þess að reisa hag-
kerfinð við, því lágt gengi styrkir
útflutninginn og veitir innlendri
framleiðslu vernd. Þar með vernd-
um við störfin og aukum fram-
leiðsluna. Ýmis rök hníga því að
því að krónan geti hentað okkur
ágætlega til skamms tíma.
En sé horft til lengri tíma er
hætt við að krónan verði okkur
fjötur um fót. Sá sveigjanleiki sem
krónan veitir okkur til að kljást
við afleiðingar mistaka í hagstjórn
eða til að bregðast við ytri áföllum
á sér því miður þá skuggahlið að
vera sveifluvaldandi og geta ýtt
undir óstöðugleika í hagkerfinu.
Óstöðugur gjaldmiðill dregur úr
trausti á hagkerfinu og þar með
möguleikum okkar á að nýta til
fulls þau tækifæri sem felast í
innri markaði Evrópu, laða til
okkar fjárfestingar og hámarka
samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Vöxtur nýrra atvinnugreina og
fyrirtækja sem starfa að stórum
hluta erlendis en eiga höfuðstöðvar
hér á landi takmarkast mjög af
stærð myntarinnar og því óöryggi
sem af henni hlýst. Ekki verður
horft fram hjá þeim veikleikum
sem felast í smæð myntkerfisins.
Meira að segja Bretar velta því nú
fyrir sér hvort myntsvæði þeirra
sé of lítið til að tryggja samkeppn-
ishæfni þjóðarinnar. Það kemur
því ekki á óvart að forystumenn
íslensks atvinnulífs leggi um þess-
ar mundir vaxandi áherslu á að
mótuð verði stefna í gjaldmiðils-
málum á nýjum forsendum. Leið-
togar verkalýðshreyfingarinnar
hafa á sama tíma sannfæringu
fyrir því að án nýs gjaldmiðils
muni ekki takast að verja stöðug-
leika og þar með kaupmátt
almennings.
Með upptöku nýs gjaldmiðils
verða ekki öll hagstjórnarvanda-
mál okkar leyst, langur vegur er
þar í frá. Það er sanni nær að í
slíkri ákvörðun felist að setja stöð-
ugleikann í forgang og sætta sig
við að geta ekki mætt sveiflum í
hagkerfinu með aðlögun gengis-
ins. Rangt væri að gera lítið úr
þeirri fórn. Þeir sem um þessar
mundir mæla fyrir Evrópusam-
bandsaðild nefna einkum ávinning
af upptöku evrunnar og kosti sam-
starfsins innan Myntbandalagsins
máli sínu til stuðnings. Það má til
sanns vegar færa að evran er að
sumu leyti heppilegur valkostur
fyrir okkur Íslendinga sem fram-
tíðargjaldmiðill, en aðrir kostir í
þeim málum hljóta jafnframt að
koma til skoðunar. Evrópusam-
bandsaðild er hins vegar miklu
stærra og flóknara mál en svo að
hægt sé að láta það ráðast af gjald-
miðlinum einum. Með í kaupunum
fylgja ýmsir aðrir þættir, sumir
jákvæðir en aðrir neikvæðir og þá
hefur Sjálfstæðisflokkurinn talið
vega svo þungt, að hagsmunum
þjóðarinnar væri betur borgið
utan ESB en innan. Þessi afstaða
hefur átt samhljóm meðal þjóðar-
innar enda ESB aðild aldrei verið
kosningamál hér á landi.
Þrátt fyrir efnahagslega erfið-
leika á Íslandi er ljóst að ekkert
hefur breyst varðandi þau grund-
vallaratriði sem um er að semja í
aðildarviðræðum við ESB. Allt
sem sagt hefur verið um ókosti
sjávarútvegsstefnu ESB, áhrif á
utanríkis- og öryggismál okkar og
frekara framsal á fullveldi okkar
á jafnt við nú og fyrir hrun banka-
kerfisins eða fall gjaldmiðilsins.
En færa má fyrir því rök að kostir
myntsamstarfs við ESB hafi vegna
aðstæðna öðlast nýtt og aukið
vægi. Með vísan til þess og þeirra
straumhvarfa sem orðið hafa í
efnahagslegu tilliti er því skyn-
samlegt að fara að nýju yfir það
hagsmunamat sem ráðið hefur
afstöðu Sjálfstæðisflokksins til
þessa, með sérstaka áherslu á
framtíðarstefnu í peninga- og
gjaldmiðilsmálum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla
Verði það niðurstaða endurmats
Sjálfstæðisflokksins að hagsmun-
um þjóðarinnar sé enn betur borg-
ið utan ESB væri það engu síður
mjög í samræmi við ríka lýðræð-
ishefð í Sjálfstæðisflokknum að
láta málið ganga til þjóðarinnar í
kjölfar viðræðna, þar sem ítrustu
hagsmuna hefur verið gætt. Varð-
staða um auðlindir þjóðarinnar
skiptir þar höfuðmáli.
Ljóst er að hér er um að ræða
mál sem gengur þvert á flokkslín-
ur. Aðrir flokkar hafa hver með
sínum hætti opnað á að virkja
beint lýðræði til lausnar á aðildar-
spurningunni og það gengur gegn
kjarna sjálfstæðisstefnunnar að
flokkurinn leggi stein í götu slíkr-
ar leiðar. Óumdeilanlegt er að
staða okkar í alþjóðlegu samstarfi
og innan Evrópusamstarfsins mun
hvíla á sterkari grunni að loknu
slíku ferli. Hér ber einnig að líta
til þess að samningur við ESB er
hinn endanlegi úrskurður um þær
reglur og undanþágur sem gilda
eiga við inngöngu Íslands í ESB.
Þó að meginlínurnar um þessi efni
séu skýrar er viðvarandi ágrein-
ingur um ýmsa mikilvæga þætti,
svo sem mögulega stjórn Íslend-
inga á sérstökum fiskveiðisvæð-
um, yfirráð veiðiheimilda úr stað-
bundnum stofnum, heimildir til
takmarkana á fjárfestingu og
fjölmörg fleiri atriði.
Þær sérstöku aðstæður sem nú
eru uppi kalla á að þjóðin öll taki í
kjölfar aðildarviðræðna ákvörðun
um þetta mikilvæga mál. Ræður
þar úrslitum að halda ber á hags-
munum Íslendinga gagnvart Evr-
ópusambandinu með það að leiðar-
ljósi að sem víðtækust sátt og
samstaða takist um niðurstöðuna.
Til varnar frelsinu
Margir eiga nú við vanda að etja,
standa frammi fyrir atvinnuleysi
og erfiðleikum þrátt fyrir að hafa
sýnt varkárni og almenna fyrir-
hyggju í fjármálum sínum. Þetta
hefur leitt til þess að sú skoðun er
nú næsta útbreidd að frelsið hafi
einhvern veginn hlaupið með
okkur í gönur, að hrun bankanna
og afleiðingar þess sé frelsinu að
kenna. Sótt er að þeirri lífsskoðun
að athafnafrelsi og einstaklings-
frelsi skuli liggja þjóðskipulaginu
til grundvallar.
Frelsi einstaklingsins til orða og
athafna er markmið í sjálfu sér.
Sagan geymir fjölda dæma um
hvernig allt um lykjandi ríkisvald
drepur mannlífið í dróma, hvernig
grámóska og einsleitni bera fjöl-
breytni og athafnagleði ofurliði
þegar hið opinbera er upphaf og
endir alls. En hitt er einnig ljóst að
ríkisrekstur getur aldrei keppt við
hið frjálsa hagkerfi þegar kemur
að verðmætasköpun, um það ber
sagan rækilegt vitni. Leiðin út úr
þeim efnahagsvanda sem nú er
við að kljást er því ekki vörðuð
Endurreisn á nýjum grunni
Allur vafi um sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu grefur undan tiltrú almennigs á
stjórnskipulaginu. Þegar svo við bætist sú gremja og heift sem fylgir hruni í efnahagslífinu er rétt að
ígrunda hvort ekki sé nauðsynlegt að gera breytingar á stjórnskipuninni í þeim tilgangi að skerpa á
ábyrgð einstakra þátta ríkisvaldsins og stofnana þess. Slíkar breytingar kunna að vera tímabærar
og nauðsynlegur liður í að endurheimta traust almennings á stjórnskipulaginu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ILLUGI
GUNNARSSON
BJARNI
BENEDIKTSSON