Fréttablaðið - 24.12.2008, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008 7kirkjan ● fréttablaðið ●
Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar
og organisti Hallgrímskirkju,
Hörður Áskelsson, er upptek-
inn maður í desember. Meðal
annars verður hann með stór-
tónleika á nýársdag þar sem
hann flytur Messías eftir Händ-
el ásamt kór og hljómsveit.
Hörður Áskelsson, organisti í
Hallgrímskirkju og söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar, býr meira
og minna í kirkjunni um jólin.
„Jólin eru einn af stórum hápunkt-
um í starfi organistans á hverju
ári,“ segir hann og finnst gleðilegt
hversu mikið framboðið af tónlist
hefur aukist í kirkjum á aðvent-
unni hin síðari ár.
„Ég kom til starfa í Hallgríms-
kirkju árið 1982 og hef starf-
að óslitið síðan þá. Þá var nánast
ekkert um að vera á aðventunni
í tónlistarlífinu nema aðventu-
kvöld sem var samkoma á fyrsta
sunnudag í aðventu,“ lýsir Hörð-
ur en tónleikahald í kirkjum hefur
farið ört vaxandi síðan þá. „Þessi
jól sláum við sennilega öll okkar
fyrri met,“ segir Hörður, sem er
einnig kórstjóri Mótettukórsins
og Schola cantorum.
Fyrir utan alla venjubundna
jólatónleika kóranna og söng í
öllum jólamessum ætlar Hörður
að flytja stórvirkið Messías eftir
Friedrich Händel á nýársdag. „Á
þeim degi höfum við aldrei hald-
ið tónleika og ég held að það séu
varla dæmi þess að haldnir hafi
verið tónleikar þennan dag á Ís-
landi,“ segir Hörður en tekur fram
að nýárstónleikar séu algengir og
mjög vinsælir í menningarlöndum
Evrópu.
Ástæða þess að brugðið verð-
ur á þessa nýbreytni nú er að á
næsta ári verður haldið upp á 250
ára ártíð Händels um allan heim.
„Okkur fannst við ekki geta gert
það flottar á Íslandi en að flytja
sjálfan Messías, hans frægasta
verk, á nýársdag,“ segir Hörður
en það er Schola cantorum sem
syngur ásamt fjórum einsöngv ur-
um og átján manna hljómsveit
erlendra hljóðfæraleikara spil-
ar undir á upprunaleg hljóðfæri.
Hörður tekur fram að ákvörðun-
in um tónleikana hafi verið tekin
fyrir kreppu og vissulega sé þetta
ekki áhlaupaverk að fá til liðs við
sig erlenda söngvara og hljóm-
sveit. „En við tókum slaginn,“
segir hann. Tónleikarnir verða
klukkan 17 á nýársdag og endur-
teknir 3. janúar.
Hörður telur ótvírætt að tónlist-
in og kórastarfið auki veg kirkj-
unnar. Mikill fjöldi fólks starf-
ar í kirkjukórum landsins en ný-
lega voru teknar saman tölur um
hve margt það er. „Okkur sýnist
þetta vera hátt í tvö þúsund manns
og þá eru ekki taldir með barna-
kórar og aðrir kórar sem koma
fram,“ segir hann. Í Hallgríms-
kirkju skiptast kórar á að syngja
en í sumum kirkjum syngur sami
kórinn í öllum messum yfir jólin.
Þetta er vissulega mikið starf og
vaknar þá sú spurning hvað fólk
fái út úr þessu. „Menn fá vissu-
lega ánægju út úr þessu. Það er
mjög þakklát tilfinning að þjóna
öðrum, sérstaklega á jólum þegar
flestir koma til messu.“
Hörður hlakkar til að verja
tíma sínum í Hallgrímskirkju um
jólin. „Það hefur verið ólíft í kirkj-
unni síðustu mánuði vegna fram-
kvæmda en þar hefur heill her
af iðnaðarmönnum verið utan
á kirkjunni með loftpressur frá
morgni og fram á kvöld. En nú
skellur á friður fram yfir áramót,“
segir Hörður sem eyðir jólunum á
annan hátt en flestir aðrir. „Á jóla-
nótt er ég búin að vera í tveim-
ur messum. Þegar ég kem heim
um nóttina förum við fyrst að
taka upp gjafir og erum að því til
fjögur hálf fimm, og það er alveg
yndislegt.“ - sg
Tónlistin og kórastarfið
eykur veg kirkjunnar
Hörður Áskelsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar býr nánast í kirkjunni yfir hátíðarn-
ar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Það er mjög hátíðlegt að syngja
á jólunum og mikil tilhlökkun sem
því fylgir,“ segir Björg Sigurðar-
dóttir, sem hefur sungið í Mótettu-
kór Hallgrímskirkju í tíu ár. Hluti
af starfi kórsins er að syngja í
jólamessum í kirkjunni. „Það
krefst að sjálfsögðu skipulags og
hefur áhrif á fjölskylduna sem
þarf stundum að hliðra til jóla-
matnum,“ útskýrir hún.
Mótettukórinn er það fjölmenn-
ur að aðeins helmingur kórs-
ins syngur í einu í jólamessun-
um. Björg þarf því ekki að standa
vaktina alla helgidagana. „Í þetta
sinn er ég bara að syngja á jóladag
og gamlárskvöld,“ segir hún og er
fjölskyldan glöð yfir því.
Þegar maður er með börn er
voðalega gott að geta borðað
klukkan sex á aðfangadagskvöld,“
segir Björg en fjölskylda henn-
ar hefur fengið sinn skerf af jóla-
söng síðastliðin tuttugu ár. „Pabbi
var í kórnum í tuttugu ár og bróð-
ir minn var líka í honum áður en
hann flutti til útlanda. Þannig að
mamma hefur þurft að hliðra til
fyrir okkur hin.“
Björg segist stundum fá gæsa-
húð þegar hún syngur á aðfanga-
dag í troðfullri kirkju en einnig sé
mjög skemmtilegt að syngja í mið-
næturmessum á þeim degi. „Síðan
er mun afslappaðra að syngja á
jóladag enda mun færri í kirkj-
unni þá.“
Innt eftir uppáhaldsjólalagi
sem sungið er í kirkjunni nefnir
Björg lagið Nóttin var sú ágæt ein
og Fögur er foldin. „Svo er auðvit-
að hápunkturinn að syngja Heims
um ból á jólunum sjálfum.“
- sg
Hátíðlegt að syngja í
messu á aðfangadag
Björg Sigurðardóttir hefur sungið með Mótettukórnum í tíu ár. Hún hefur því sungið
í ófáum jólamessum um árin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við hittum þær Urði, Áróru og
Emilíu Bergsdætur á æfingu í Bú-
staðakirkju. Þar eru saman komn-
ir allir barna- og unglingakór-
ar kirkjunnar og því fjöldi barna
hlaupandi um í mismunandi bún-
ingum. Verið er að æfa fyrir jóla-
messu biskupsins.
Finnst ykkur skemmtilegt að
syngja? Þær eru fljótar til svars
og kinka allar kolli. „Alveg rosa-
lega gaman,“ segir Urður, sem er
elst þeirra systra, 13 ára, og syng-
ur í kammerkórnum. Hún hefur
sungið alla sína tíð og verið í
næstum öllum kórum sem standa
til boða í Bústaðakirkju, barna-,
stúlkna- og kammerkór.
Áróra er í miðið, tíu ára, og
syngur í stúlknakórnum en Emil-
ía litla fimm ára er eins og engill,
enda syngur hún í englakór.
„Ég er líka að æfa á flautu og
bjöllur,“ upplýsir Áróra og Urður
segist líka hafa verið að spila á
bjöllur lengi vel en í Bústaða-
kirkju starfar vel þekktur bjöllu-
kór.
Emilía ætlar alltaf að vera
í kór. En eru mamma og pabbi
líka að syngja? „Nei,“ segja þær
og flissa. „Eða jú, pabbi syngur,
hann er leikari,“ útskýrir Urður.
„Þannig að þið hafið þetta frá
honum,“ spyr blaðamaður. „Já,“
segja þær Urður og Áróra en litla
skottið Emilía segir kokhraust:
„Ekki ég.“
Urði þykir skemmtilegt að
syngja íslensk rödduð lög en yngri
stelpurnar eru hrifnari af jóla-
lögunum. „Við ætlum að syngja
heims um ból, í Betlehem er barn
oss fætt og Ljóss barn,“ upplýsir
Urður.
Stúlkurnar búa örstutt frá
kirkjunni og því stutt fyrir þær að
hlaupa á æfingar. Yfir hátíðarnar
eru þær mikið í kirkjunni við söng.
Þó ekki á aðfangadag. „Nei, það
væri ekki gaman,“ hvíslar Áróra
og Urður segir þær yfirleitt bara
vera heima á aðfangadag.
Emilía hlakkar mikið til jólanna
og spurð að því hvað hana langar í
kemur í ljós að Babyborn-vagn og
Dórudót er efst á óskalistanum.
- sg
Þrjár syngjandi systur
Áróra er í stúlknakórnum, Urður í kammerkórnum og Emilía litla, fimm ára, í engla-
kórnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON