Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 38

Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 38
Jóhann Sveinsson kokkur, hjá fyrir-tækinu Kryddi og kavíar, tók vel í hug- myndina um að töfra fram nokkra heilsusam- lega rétti fyrir lesendur Fréttablaðsins. „Mig munar ekkert um að elda fyrir þúsund manns,“ segir Jóhann glaðlega sem hefur kokkað í mötuneytum í rúman áratug. Þegar hann er inntur eftir því hvað honum þyki sjálfum best að elda og borða nefnir hann lax sem honum þykir bæði góður á bragðið og auð- veldur í eldun. Hann segir í raun alla réttina sem eru hér á síðunni mjög auðvelda í gerð auk þess sem þeir séu ein- staklega hollir og góðir. Krydd og kavíar hefur verið starfrækt í níu ár. Garðar Agnarsson hefur verið þar við stjórnvölinn frá upphafi. Fyrirtækið sinnir aðallega fyrir- tækjum og mötuneytum en í dag borða starfs- menn um tuttugu fyrir- tækja víðs vegar á höfuð- borgarsvæðinu mat frá Kryddi og kavíar í hádeginu. „Framleiðslan fer öll fram í eldhúsi okkar á Smiðshöfða en maturinn er fulleldaður á hverjum stað fyrir sig,“ segir Garðar en lögð er sér- stök áhersla á gott og ferskt hráefni. „Við reynum einnig að draga úr öllu sem heitir við- bætt fita, við viljum að maturinn sé hollur og hugsum mikið á sam- setningu hans,“ segir Garðar. En hvað ætli sé vin- sælast í mötuneytunum í dag? „Á miðvikudögum erum við með grænmetis- rétt og það eru mjög stórir dagar, þá er ný soðin ýsa mjög vinsæl og lasanja í þriðja sæti,“ segir Garðar og bætir við að þeir hjá Kryddi og kavíar séu ekkert að flækja hlutina. - sg Léttir og hollir Jóhann Sveinsson kokkur hjá Kryddi og kavíarhefur lítið fyrir því að kokka fyrir þúsund manns. Grillsteiktur lax með cous-cous. Bakaður þorskhnakki. hvunndagsréttir Fyrirtækið Krydd og kavíar þjónustar yfir tuttugu mötuneyti víðs vegar á höfuð- borgarsvæðinu. Þar er lögð áhersla á hollustu og fersk hráefni höfð í fyrirrúmi. Ferskt og gott

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.