Fréttablaðið - 22.01.2009, Side 2
2 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
FÓLK „Það er ekki beint burðugt á
okkur ástandið núna. Við eigum
enga peninga, engin föt og þar
fram eftir götunum. En svona er
lífið. Helst af öllu viljum við finna
köttinn okkar, hann Ingólf, aftur,
en honum týndum við í öllum látun-
um þegar eldurinn kom upp,“ segir
Phillip Krah, sem ásamt Maju Fei-
erabend, unnustu sinni, og Mark
Hymøller, vini þeirra, leigðu íbúð í
húsi við Klapparstíg sem varð eldi
að bráð aðfaranótt 16. janúar síðast-
liðinn. Þau höfðu flutt inn í íbúðina
fjórum dögum fyrir eldsvoðann.
Þremenningarnir búa þessa dag-
ana á gistiheimili Hjálpræðishers-
ins, en þar fengu þau einnig inni
fyrsta mánuðinn eftir að þau flutt-
ust til Íslands í byrjun október. Í
millitíðinni störfuðu þau Phillip og
Maja á sveitabýli nálægt Selfossi,
en nú vinna þau öll á veitingastöð-
um í höfuðborginni.
Að sögn Phillips hafði parið und-
irbúið flutninginn hingað til lands
í rúmt ár, en þau ólust bæði upp í
litlu þorpi nálægt borginni Hild-
burghausen í miðhluta Þýskalands.
Mark á hins vegar rætur sínar að
rekja til Sønderborg í Danmörku.
„Það hafði lengi verið draumur
okkar að búa á Íslandi. Þetta er frá-
bært land og náttúrufegurðin ein-
stök. Svo kunnum við vel að meta
íslenska popptónlist og það minnk-
aði ekki löngunina,“ segir Phillip
og hlær.
Hann viðurkennir að hafa orðið
lafhræddur þegar hann var vak-
inn og sagt að eldur væri laus í
húsinu. „Við höfðum rétt svo tíma
til að grípa vegabréfin okkar og
svo þurftum við að hlaupa út úr
húsinu. Allt sem við áttum brann,
líka reiðufé sem við höfðum feng-
ið í laun frá veitingastaðnum, því
við höfðum ekki stofnað banka-
reikning á þeim tíma. Nú er bara
að vona að hagur okkar vænkist á
næstunni.“
Kettinum Ingólfi kynntist Phill-
ip og Maja á sveitabýlinu þar sem
þau unnu og tóku hann með sér til
Reykjavíkur. „Okkur fannst svalt
að nefna þennan frábæra kött
eftir manninum sem fyrst settist
að á Íslandi. Hann fannst ekki eftir
brunann og við erum viss um að
hann er enn á lífi. Við söknum hans
mjög mikið og vonum að hann finn-
ist sem allra fyrst,“ segir Phillip,
og biður lesendur sem gætu hafa
orðið varir við Ingólf að hafa sam-
band í síma 862-9498.
kjartan@frettabladid.is
Sakna Ingólfs mest
Ungt par frá Þýskalandi og danskur vinur þeirra leigðu íbúð í húsinu við
Klapparstíg sem varð eldi að bráð á dögunum. Þau búa nú á gistiheimili Hjálp-
ræðishersins. Þau segjast helst sakna Ingólfs, kattar sem týndist í brunanum.
BANDARÍKIN, AP Fyrsti dagur Baracks Obama í emb-
ætti Bandaríkjaforseta var annasamur. Hann kall-
aði saman helstu ráðgjafa sína í bæði efnahagsmál-
um og hermálum til að fjalla um þau erfiðu verkefni,
sem blasa við strax í byrjun embættistíðar hans.
Fyrsta ákvörðun Obama í embætti var reyndar
tekin strax á þriðjudaginn, þegar hann bað dómara í
sérdómstólum Bandaríkjahers á Kúbu um að fresta
öllum réttarhöldum yfir föngunum í herstöð Banda-
ríkjanna við Guantánamo-flóa í 120 daga. Sá tími
verður væntanlega notaður til að koma málefnum
þessara fanga í aðra farvegi.
Frestunin „hefur í raun þau áhrif að stöðva rétt-
arhöldin, líklega fyrir fullt og allt“, sagði William
Kuebler, lögmaður eins fanganna.
Aðstandendur sumra fórnarlamba hryðjuverkanna
11. september sögðust andvígir allri frestun á réttar-
höldunum, en mannréttindasamtök fögnuðu þessu.
Í gær bárust síðan fréttir af því að Obama hefði í
hyggju að loka þessum umdeildu fangabúðum innan
árs.
Strax í gærmorgun hringdi Obama í Mahmoud
Abbas, forseta Palestínustjórnar, til að lýsa yfir ein-
dregnum vilja sínum til að vinna að friði fyrir botni
Miðjarðarhafs. Síðar um daginn hringdi hann í Ehud
Olmert, forsætisráðherra Ísraels, í sömu erinda-
gjörðum. - gb
Barack Obama lét hendur standa fram úr ermum fyrsta daginn í embætti:
Guantánamo lokað innan árs
BÆNASTUND Í DÓMKIRKJU Samkvæmt venju var eitt fyrsta
verk Obama í embætti að mæta í bænastund ásamt Joe
Biden varaforseta, eiginkonum þeirra beggja og Bill og Hillary
Clinton. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
flugfelag.is
Burt úr bænum
Hópaferðir fyrir öll tilefni
Upplýsingar:
Sími 570 3075
hopadeild@flugfelag.is
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
ERFITT ÁSTAND Þau Phillip, Maja og Mark misstu allt sem þau höfðu með sér til
Íslands í brunanum á Klapparstíg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SÁRT SAKNAÐ Kötturinn Ingólfur er sex
mánaða gamall, með hvítar loppur og
hvítan blett á hálsinum.
NEYTENDUR Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra hefur undirritað
reglugerð um hámarksfjárhæð inn-
heimtukostnaðar. Hingað til hefur
ekki verið þak á þeirri upphæð
sem innheimtufyrirtæki, til dæmis
Intrum eða Momentum, hafa getað
sett á innheimtu sína.
„Þetta er langþráður áfangi og
þetta baráttuatriði ýmissa forvera
minna næst loks í gegn. Það er sér-
staklega mikilvægt í því árferði
sem nú er. Það þekkja það margir
að lágar skuldir detta í innheimtu
og við það hafa tugir þúsunda bæst
ofan á upphæðina. Nú er komið
hámark á þessa upphæð,“ segir
Björgvin. „Þetta er réttarbót fyrir
neytendur og skjól gagnvart fólki.“
Samkvæmt reglugerðinni má
aðeins taka 900 krónur fyrir skyldu-
bundna innheimtuviðvörun frá inn-
heimtuaðila, eftir gjalddaga kröfu.
Mismunandi upphæðir má leggja á
önnur milliinnheimtubréf; allt frá
1.250 krónum til 5.500 fyrir hærri
kröfur.
Samkvæmt lögunum á skuldari
rétt á að fá innheimtuviðvörun gegn
vægu gjaldi eftir gjalddaga. Því má
ekki lengur hefja löginnheimtu, til
dæmis með greiðsluviðvörun með
háum kostnaði, strax eftir að krafa
er komin í vanskil.
Reglugerðin tekur gildi 1. febrú-
ar. - kóp
Viðskiptaráðherra setur reglugerð varðandi milliinnheimtu:
Þak sett á innheimtukostnað
BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON Hefur undir-
ritað reglugerð um hámark á innheimtu-
kostnað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í eins árs fangelsi í Hér-
aðsdómi Suðurlands fyrir að
svipta unnustu sína frelsi, ráðast
á hana og nauðga henni. Níu mán-
uðir voru skilorðsbundnir.
Hann var ákærður fyrir að
fara inn í íbúð þar sem hún var
gestkomandi, toga hana út úr
íbúðinni og inn í bíl sem hann ók
síðan á brott. Síðan misþyrmdi
hann konunni með ýmsum hætti,
dró hana meðal annars á hárinu
eftir möl og gangstétt, upp stiga
og inn í íbúð hennar. Þar veittist
hann enn að henni með líkamlegu
og kynferðislegu ofbeldi.
Hann á að greiða konunni rúm-
lega 600 þúsund í skaðabætur.
- jss
Eins árs fangelsi:
Misþyrmingar
og nauðgun
EVRÓPUMÁL Framkvæmdastjórn
ESB hefur boðið sjávarútvegs-
ráðuneytinu að skipa íslenskan
fulltrúa til að taka þátt í endur-
skoðun sameig-
inlegrar sjáv-
arútvegsstefnu
sambandsins.
Þetta kom fram
í máli Michaels
Köhler, hátt-
setts fulltrúa á
skrifstofu Joe
Borg sem fer
með sjávarút-
vegsmál í fram-
kvæmdastjórninni, á málfundi
um sjávarútvegsstefnu ESB og
Ísland sem haldinn var á vegum
Háskólans á Bifröst á Grand
Hótel í gær.
Svonefnd „grænbók“ um næstu
endurskoðun stefnunnar á að
koma út í apríl. Köhler sagði að
framkvæmdastjórnin vildi að
fulltrúi frá Íslandi tæki þátt í
þessu endurskoðunarstarfi. - aa
Sjávarútvegsstefna ESB:
Ísland leggi end-
urskoðun lið
MICHAEL KÖHLER
Kristín, eru þetta góð teikn?
„Já, það eru ýmis teikn á lofti.“
Kristín Ragna Gunnarsdóttir teiknari hlaut
Dimmalimm, íslensku myndskreytiverð-
launin, fyrir myndskreytingu bókarinnar
Örlög guðanna.
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, er væntanleg til
landsins nú í vikulokin.
Ingibjörg hefur undanfarna
viku dvalist á Karólínska sjúkra-
húsinu í Stokkhólmi. Þar gekkst
hún undir aðgerð þar sem sýni
voru tekin vegna heilaæxlis og
hluti þess jafnframt fjarlægð-
ur. Í tilkynningu frá Samfylk-
ingunni er aðgerðin sögð hafa
heppnast vel.
Ingibjörg verður lögð inn á
Landspítalann þar sem læknar
munu taka ákvörðun um fram-
hald á meðferð hennar.
- hhs
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Kemur heim í
lok vikunnar
Vopnað rán í Lyfju
Karlmaður vopnaður eggvopni framdi
rán í Lyfju í Lágmúla laust fyrir klukk-
an 20 í gærkvöldi. Maðurinn ógnaði
starfsfólki og hafði á brott með sér
lyf. Lögreglan leitar mannsins.
LÖGREGLUFRÉTTIR
AFGANISTAN, AP Stjórnvöld í Afgan-
istan vilja fá að ráða meiru um
starfsemi herliðs Atlantshafs-
bandalagsins í landinu.
Afganistanstjórn hefur sent
NATO drög að samkomulagi, sem
felur í sér að hún þurfi að sam-
þykkja starfsreglur, fjölda og
staðsetningu NATO-hermanna í
landinu.
Hamid Karzai, forseti Afgan-
istans, ítrekaði í gær gagnrýni
sína á Bandaríkin og önnur her-
veldi, sem hafa herlið í Afgan-
istan, fyrir að hafa ekki hætt
loftárásum á almenning í land-
inu, eins og hann hefur krafist.
Hann ítrekaði jafnframt að sigur
gæti aldrei unnist án stuðnings
almennings. - gb
Stjórnvöld í Afganistan:
Vilja hafa meiri
áhrif á herliðin
HAMID KARZAI Gagnrýndi herlið Vestur-
landa við þingsetningu í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Konur flykkjast í lögregluna
Nokkur tímamót verða í Svíþjóð í
mars þegar konur verða í fyrsta sinn
fleiri en karlar í lögregluskóla lands-
ins. Alls hefur 81 kona og 77 karlar
skráð sig til náms.
SVÍÞJÓÐ
SPURNING DAGSINS