Fréttablaðið - 22.01.2009, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 22. janúar 2009 15
vinnu
tæki í nokkrum löndum. Í desem-
ber á síðasta ári stofnaði Thorkil
sjóð sem nú rekur fyrirtækið og
hann ætlar að einbeita sér að því
að kynna verkefnið. Hann hitti
einmitt fulltrúa viðskiptalífsins
í stuttri heimsókn hér á landi en
hingað er hann kominn líka til þess
að sjá myndina Sólskinsdrengur-
inn sem hann kemur fram í.
Sonur Thorkils er í dag tólf ára,
afburðanámsmaður með mjög
gott minni, hann er í sérskóla
en sækir stærðfræði- og ensku-
kennslu í almennum skóla, hann
þolir illa áreiti á skilningarvitin,
ljós til dæmis og er viðkvæmur
fyrir fötum og eins og margir ein-
hverfir á hann á í erfiðleikum með
félagsfærni. Hvernig skyldi faðir
hans sjá framtíð Lars núna?
„Lars er að minnsta kosti strax
farinn að tala um spenntur þegar
hann fer að vinna hjá Specialister-
ne,“ segir Thorkil og hlær en bætir
við að markmiðið sé auðvitað ekki
að allir einhverfir vinni hjá fyr-
irtæki á borð við Specialisterne
heldur að fyrirtæki geri sér grein
fyrir að það sé hægt að nýta starfs-
krafta og hæfileika einhverfra við
sérstök verkefni.
sigridur@frettabladid.is
Gunnar Einar Steingrímsson var
vígður til djákna 4. janúar síðast-
liðinn og var þar með kominn í hóp
fjögurra karlmanna sem gegna
slíku starfi hér á landi. Alls eru
djáknarnir 38 talsins.
Hann vígðist til Grafarvogs-
kirkju í Reykjavík og annast
barna- og unglingastarf þar. „Það
má segja að þetta sé ný stétt,“
segir Gunnar Einar. „En djákna-
starfið skiptist í það sem við köll-
um kærleiksþjónustu og síðan
fræðslustarf.“ Þegar minnst er
á djákna dettur eflaust mörg-
um í hug sá á Myrká en hvernig
má þá vera að djáknar skipi nýja
stétt? „Hann var eiginlega eins
og hringjari þannig að þótt titill-
inn sé sá sami er starfssviðið gjör-
ólíkt.“ Djáknafélagið var stofnað
árið 1995 og djáknanám hófst við
guðfræðideild Háskóla Íslands
árið 1993.
Orðið djákni er dregið af gríska
orðinu „diakonos“ sem þýðir þjónn
og segir Gunnar Einar fara vel á
því. Aðspurður hvort börnin og
unglingarnir sem hann „þjónar“
spyrji mikið um kollega hans á
Myrká segir hann: „Það eru sumir
sem kannast við söguna en fáir
sem hafa orð á þessu. Eflaust af
ótta við að styggja nývígða djákn-
ann,“ segir hann og hlær við.
- jse
Aðeins fjórir af 38 starfandi djáknum landsins eru karlmenn:
Minnast lítt á þann frá Myrká
■ Áhugamenn um Excel vita
kannski ekki allir að ef reitur er
skilgreindur þannig í forritinu
að hann geymi dagsetningu,
og tölustafurinn núll því næst
sleginn inn í reitinn, þá fæst dag-
setningin 0.1.1900 (núllti janúar
1900). Auk þess heldur Excel
að árið 1900 hafi verið hlaupár,
sem það var ekki. Þetta rugl
má nota til að finna út hversu
margir dagar voru á 20. öldinni.
Þá lætur notandinn eins og 20.
öldin hafi byrjað í upphafi ársins
1900 og endað í lok
ársins 1999, slær inn
31. desember 1999
og breytir því í tölu.
Sú tala sýnir fjölda
daga á 20.
öld.
FJÖLDI DAGA
DJÁKNINN Í GRAFAR-
VOGSKIRKJU Gunnar
Einar Steingrímsson
djákni segir starf djákn-
ans snúast um þjónustu
enda er orðið dregið af
gríska orðinu „diakonos“
sem þýðir þjónn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
VIÐ SKIPTUM MÁLI
*Vissir þú að allt að eitt prósent af
fólki er á einhverfurófinu?
*Vissir þú að margir sem eru á
einhverfurófinu og þurfa að kljást
við vandamál sem því fylgja fá
ekki stuðninginn sem þeir þurfa
vegna þekkingarskorts í samfé-
laginu?
Vissir þú að atvinnulífið þarf í
auknum mæli lausnir á verkefnum
sem krefjast sérfræðikunnáttu?
Vissir þú að manneskja með
einhverfu er sérfræðingur frá nátt-
úrunnar hendi og þannig fyrirtaks
viðbót við atvinnulífið?
Tekið af vef Specialisterne,
www.specialisterne.dk
Kynntu þér úrræðin
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum
aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig ef þarf.
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000
eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
45
39
0
1/
09
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
• Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing
• Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál