Fréttablaðið - 22.01.2009, Page 26
UPPHÁIR SOKKAR eru góðir við pils þegar kalt er í
veðri. Lítið mál er að búa sér til háa og hlýja sokka með því
að klippa neðan af þykkum sokkabuxum. Þá er líka hægt
að ráða hversu hátt þeir ná.
„Áður en ég vissi af var ég sest
fyrir framan saumavélina og byrj-
uð að sauma eftir pöntunum,“ segir
Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri
Samskipa, en hún og dóttir hennar,
Sigríður Rún Siggeirsdóttir, sem
stundar nám við Istituto Europeo
di Design í Rómaborg, stofnuðu
sprotafyrirtækið Skala fyrir jól.
Þær mæðgur hanna og sauma
utanyfirflík úr 80-100% ull sem
þær kalla múffu. „Þetta er ósköp
þægileg flík og hentar vel fyrir
alla aldurshópa sem og óléttar
konur. Sigríður vildi sauma sér
eitthvað sérstakt til að vera í utan
um sig og ég ákvað að sauma mér
eitt stykki líka. Um leið veitti
fólk þessari flík athygli og marg-
ir spurðu okkur hvar við hefðum
keypt þetta svo við ákváðum að
það gæti verið sniðugt að hefja
sölu á múffunum þar sem áhuginn
var augljós.“
Þær mæðgur hafa ekki aug-
lýst mikið, en eru með heimasíð-
una www.flickr.com/skali þar sem
hægt er að skoða myndir. „Það er
búið að vera mikið að gera hjá mér
í saumaskapnum en Sigga sér um
alla hönnun,“ segir Auður og aug-
ljóst er að sjaldan fellur eplið langt
frá eikinni. agnesosk@frettabladid.is
Flíkin sem hentar öllum
Fyrirtækið Skali var stofnað af Sigríði Rún Siggeirsdóttur og Auði Þórhallsdóttur en þær mæðgur hafa
verið í óða önn að sauma yfirhafnir á kvenþjóðina eftir hönnun Sigríðar síðan síðastliðið haust.
Sigríður spókar sig í sinni flík í Róm. Auður notar sína yfirhöfn mikið í kuldanum á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Opið virka daga kl: 11-18, laugard. 11-15
30 - 50% afsláttur af völdum vörum.
Útsala
Síðumúli 3, S. 553-7355
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
teg. 82001 - haldgóður í C,D,E skál
á kr. 3.850,- buxur í stíl í M,L,XL,XXL
á kr. 1.950,-”
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki