Fréttablaðið - 22.01.2009, Page 27
FIMMTUDAGUR 22. janúar 2009 3
M
argir vonuðust eftir
því að útsölur björg-
uðu rekstrinum á
annars afleitri árs-
tíð sem er nú að enda í tísku-
heiminum. En þrátt fyrir góða
sölu í upphafi er þó alls ekki
víst að niðurstöðurnar verði
jákvæðar. Útsölurnar standa
nefnilega yfir í fimm vikur og
þótt byrjunin hafi verið góð
þýðir það alls ekki að fram-
haldið verði það sömuleiðis.
Reyndar virðist sem allt loft sé
farið úr útsölunum og búðirn-
ar eru farnar að auglýsa aðra
verðlækkun í gluggum. Sumar
þá þriðju eins og Zara en þar
eru vetrarvörurnar niðursett-
ar í hverri viku. Spyrjum því að
leikslokum.
Sjaldan hefur eins mikið
borið á vangaveltum í upp-
hafi árs um hvernig árið verði
fyrir fataiðnaðinn og ekki síður
tískuheiminn. Tískuiðnaður-
inn er vissulega mikilvægur
hér í landi fyrir atvinnulífið
þrátt fyrir aukna framleiðslu
í Asíulöndum þar sem kostn-
aður er miklu lægri. Nær allir
spá fræðingarnir samdrætti en
hönnuðir bregðast einnig við
með því að bjóða upp á ódýrari
varning eða nýjar tískulínur
sem auka fjölbreytni í verði.
Þrátt fyrir kreppu bjóða
fataframleiðendur og tísku-
hús auðvitað upp á nýja vor- og
sumartísku. Hún er í nokkurri
mótsögn við kreppuna, með
gylltum og silfruðum litum og
stórum áberandi fylgihlutum
til dæmis úr málmi. Því stærri
því betri. Lykilatriðið er að þeir
séu í yfirstærð. Efnin eru létt
og mikið um mússulín úr silki
eða þá gerviefnum hjá ódýr-
ari merkjum. Og stutt skal það
vera, kannski til að spara efni
og lækka verð. Hippablússan
fræga í styttri eða lengri sídd
verður ómissandi eins og síð-
ustu misseri.
Það er fleira hippalegt í sum-
artískunni eins og víðu buxurn-
ar með rassinum nærri því á
milli hnjánna líkt og í ævintýri
úr Þúsund og einni nótt. Míní-
stuttbuxur eru áfram í tísku
en aldrei styttri en nú. Viss-
ara að hugsa fyrir sokkabux-
um fyrir íslenskar aðstæður.
Þær eru hins vegar ekki fyrir
hvern sem er, vissara fyrir þær
sem eru þéttari á velli að velja
víðu buxurnar sem líkjast helst
buxum sem hefur verið stolið
frá kærastanum. Þrátt fyrir
hina týpísku pastelliti sumars-
ins er þó meira um sterka liti
þetta árið í bleiku eða gulrauðu
og ýmis munstur gleðja augað
til dæmis indversk eða austur-
lensk.
Lykilatriði á komandi árs-
tíð er að endurvinna og hlýtur
að teljast til tíðinda. Nú þykir
ekki hallærislegt að taka fram
gömul föt, meira að segja Eng-
landsdrotting gerir slíkt hið
sama. Auðvitað reynir þar á
góðan smekk hvers og eins og
listina að blanda saman nýju og
gömlu svo vel sé. Og víst kemur
aftur vor þrátt fyrir böl og
alheimskreppu.
bergb75@free.fr
Vorið kemur samt
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Frú Obama var glæsilega klædd
við embættistöku eiginmanns
síns á þriðjudag.
Þess var beðið með eftirvæntingu
að sjá hvaða föt yrðu fyrir valinu
hjá hinni tískumeðvituðu Michelle
Obama við embættistöku eigin-
manns hennar, Baracks Obama, á
þriðjudag.
Hún valdi gullsleginn kjól og
kápu í stíl eftir kúbverskættaða
hönnuðinn Isabel Toledo þegar
hann sór embættiseiðinn um dag-
inn en fullkomnaði dressið með
ólívugrænum hönskum frá versl-
unarkeðjunni J. Crew og skóm frá
Jimmy Choo.
Um kvöldið klæddist hún hvítum
síðkjól eftir Jason Wu frá Taívan.
„Er konan mín ekki glæsileg?“
spurði Obama viðstadda.
Forsetafrúin þykir hafa nokkuð
unglegan stíl og virðist óhrædd við
að blanda saman fjöldaframleidd-
um fatnaði og hönnun-
arflíkum. - ve
Glæsileg í
gylltu dressi
Frúin í gullslegnum kjól og kápu í stíl.
NORDICPHOTOS/GETTY
• Jakkar
• Úlpur
• Ullarkápur
• Dúnkápur
• Vattkápur
• Hattar
• Húfur
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opnunartímar:
mán.-föstud. 10-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 12-16
ÚTSALA 10-50% afsláttur
Yfi rhafnir kvenna í frábæru úrvali
Gæða skór fyrir góða menn.
Úrval af herramokkasíum úr leðri,
skinnfóðraðir og á vönduðum sóla.
Verð: 10.850.- 11.500.- 12.450.-
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178 • Sími: 551 2070
Opið: mán - fös: 10 -18, lau 10 -14
www.misty.is
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646
20% afsláttur
f öllum fatnað
Opið virka daga frá 10-18
Leitið upplýsinga
hjá sölufulltrúum;
Jóna María
512 5473
Hugi
512 5447