Fréttablaðið - 22.01.2009, Side 49
FIMMTUDAGUR 22. janúar 2009 33
Indísveitin Who Knew er stödd í Berlín þar sem hún
heldur tónleika á Roter Salon, sem er með vinsælli
tónleikastöðum í borginni. Á meðal hljómsveita sem
hafa spilað þar er hin breska Franz Ferdinand.
Tónleikarnir verða haldnir á morgun undir yfir-
skriftinni Icelandic Music Laboratory og stendur
þýska kvikmyndagerðarkonan Wera Uschakowa
fyrir þeim. Á síðasta ári spilaði trúbadorinn Siggi
Ármann einmitt í Berlín fyrir tilstuðlan Weru, sem
er mikill Íslandsvinur. Tengjast tónleikarnir verk-
efninu 101 Berlín sem hefur verið starfrækt um
nokkurt skeið í borginni.
Who Knew, sem hefur verið starfandi í nokkur ár,
er skipuð strákum í kringum tvítugt. Stefna þeir á
útgáfu sinnar fyrstu plötu eftir einn til tvo mánuði
en fyrst ætla þeir að spila í Berlín, sem verða fyrstu
tónleikar þeirra erlendis. „Það er mikill spenningur
og þetta er búið að vera rosagaman,“ segir hljóm-
borðsleikarinn Matthías Sindri Jónsson, en sveit-
in kom til Berlínar á sunnudag. Bætir hann við að
Who Knew hafi fengið jákvæða umfjöllun í þýskum
fjölmiðlum og nýlega fór sveitin í viðtal hjá einni
af stærstu indí-útvarpsstöðvum Þýskalands, Motor
FM. - fb
Í fótspor Franz Ferdinand
WHO KNEW Hljómsveitin Who Knew heldur tónleika í Roter
Salon í Berlín á föstudag.
Eddie Vedder, söngvari Pearl Jam, Dave
Grohl úr Foo Fighters og Norah Jones
eru á meðal þeirra sem syngja á nýrri
plötu til heiðurs enska tónlistarmann-
inum Nick Drake.
Platan kemur út hjá útgáfufyrir-
tækinu Brushfire Records sem er í
eigu Jack Johnson, sem mun einnig
syngja á plötunni. Heimildarmynd
um upptökurnar verður gefin
út með plötunni á DVD-diski. Á
honum verður einnig myndefni
með hinum sáluga Heath Ledger
þar sem hann syngur lag Drake,
Black Eyed Dog. Drake var lítt
þekktur þegar hann lést árið 1974
úr ofneyslu eiturlyfja aðeins 26 ára.
Síðan þá hefur vegur hans vaxið
jafnt og þétt.
Heiðra Nick Drake
Duffy og Coldplay fengu flestar
tilnefningar til Brit-verðlaunanna
sem verða afhent 18. febrúar í
London. Fengu þær hvor um sig
fjórar tilnefningar, þar á meðal
fyrir bestu bresku plötuna árið
2008.
Coldplay, sem gaf út plötuna
Viva La Vida or Death and All
His Friends, hafði áður hlot-
ið sjö tilnefningar til Grammy-
verðlaunanna sem verða einnig
afhent í næsta mánuði. Duffy gaf
á síðasta ári út sína fyrstu plötu,
Rockferry, sem var sú söluhæsta
í Bretlandi.
Adele, Elbow og Scouting for
Girls fengu þrjár tilnefningar
hver á meðan Ting Tings, Radio-
head, Girls Aloud og Estelle hlutu
tvær.
Sömu fimm hljómsveitirnar
utan Bretlandseyja voru tilnefnd-
ar sem besta alþjóðlega hljóm-
sveitin og fyrir bestu plötuna, eða
AC/DC, Fleet Foxes, The Killers,
Kings of Leon og MGMT. Hljóm-
sveitin Pet Shop
Boys verður á
athöfninni verð-
launuð fyrir
framlag sitt
til tónlistar-
heimsins.
Coldplay og
Duffy líkleg
til sigurs
Kira Kira, eða Kristín Björk
Kristjánsdóttir, hóf í síðustu viku
tónleikaferð um Evrópu. Ferðin
stendur yfir til 7. febrúar og alls
spilar Kira Kira á tuttugu tón-
leikum, þar á meðal í Þýskalandi,
Ítalíu, Frakklandi, Hollandi og
Danmörku. Einnig er í bígerð tón-
leikaferð um Bretland í apríl og
um Austur-Evrópu í sumar.
Kira Kira gaf út plötuna Our
Map to the Monster Olympics
síðasta sumar hjá Smekkleysu
á Íslandi og í Japan og seldist
fyrsta upplagið upp á skömmum
tíma í Japan.
Tónleikaferð
um Evrópu
KIRA KIRA Kira Kira er á tónleikaferð um
Evrópu ásamt hljómsveit sinni.
DUFFY Söng-
konan Duffy
hefur verið
tilnefnd
til fernra
Brit-
verð-
launa,
rétt
eins og
hljóm-
sveitin
Cold-
play.
Ú t s a l a
Menn koma á Laugaveg 7 og
Konur á Laugaveg 86-94.
www.andersenlauth.com
Herraverzlun, Laugavegi 7, Kvenverzlun, Laugavegi 86-94
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
Vorum að bæta við mikið
af haustvörum á útsöluna !