Fréttablaðið - 22.01.2009, Page 55
FIMMTUDAGUR 22. janúar 2009 39
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 22. janúar
➜ Kvikmyndir
Frönsk kvikmyndahátíð stendur yfir
í Háskólabíói 16.-29. jan. Nánari upp-
lýsingar
á www.graenaljosid.is og www.midi.is.
➜ Tónleikar
18.00 Fimmtudagstónleikar hjá
nemendum Tónlistarskólans á Akureyri,
Hvannavöllum 14. Nemendur úr öllum
deildum og flytja fjölbreytta tónlist. Allir
velkomir og aðgangur ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
15.00 Dr. Hilmar
J. Malmquist flytur
erindi í Listaháskóla
Íslands í hönnunar- og
arkitektúrdeild í stofu
113, Skipholti 1-5.
Fyrirlesturinn verður á
ensku. Allir velkomnir.
17.15 Jón Yngvi
Jóhannsson fjallar um jólabókaflóðið í
Bókasafni Kópavogs við Hamraborg 6a.
Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
➜ Sýningar
17.00 Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu. Annars vegar er það sýning
á verkum Ásmundar Ásmundssonar
í A-sal en einnig verður opnuð sýning
á verkum Péturs Más Gunnarssonar
í D-sal.
Sýningin Ást við fyrstu sýn í Listasafni
Íslands við Fríkirkjuveg, hefur verið
framlengt til 30. janúar. Þar stendur
einnig yfir sýningin Kvikar myndir í sal 2
þar sem sýnd eru myndbandsverk eftir
Ástu Ólafsdóttur, Sigrúnu Harðardóttur
og Steinu. Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 11-17.
➜ Hugleiðsla
20.00 Hóphugleiðsla alla fimmtudaga
í Rajadhiraja Jógamiðstöðinni við Efsta-
sund 26. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég á Rex
verður haldin á þremur stöðum um
helgina. Um er að ræða órafmagn-
aða hátíð þar sem tæplega fjöru-
tíu tónlistaratriði verða kynnt til
sögunnar. Verða þau mestmegnis í
höndum trúbadora.
„Yfirskriftin er Aldrei fór ég á
Rex en við bjóðum samt fólk alveg
velkomið sem hefur farið á Rex,“
segir skipuleggjandinn og trúba-
dorinn Svavar Knútur. „Ég fagna
því að ruglið er svolítið að víkja.
Ég vona að þetta sé í síðasta skipti
sem við Íslendingar erum í stórum
kappakstri og að tími lúxusbíla og
fyrirtækja-„sponsora“ sé að víkja,“
segir hann og vonar að samhjálp og
nægjusemi taki nú völdin í þjóðfé-
laginu.
Sams konar hátíð var haldin í
fyrsta sinn hérlendis síðasta haust
við góðar undirtektir. Þá var hún
minni í sniðum, enda aðeins hald-
in á Kaffi Rósenberg en núna hafa
Hljómalind og Nýlenduverslun
Hemma og Valda bæst í hópinn. Á
meðal þeirra sem koma fram eru
Helgi Valur, Myrra Rós, Árstíðir,
Elíza Geirs, Ragnar Sólberg, Elín
Ey, Svavar Knútur og Pikknikk.
Einnig koma fram bresku trúbador-
arnir Sisha PM og Kid Decker.
Svavar segir að hátíðin sé hald-
in til að efla grasrótina og skapa
tengsl við erlenda listamenn, enda
hefur sams konar hátíð verið hald-
in í Ástralíu og Þýskalandi. Eftir
hátíðina hyggur Svavar til að mynda
í tónleikaferðalag um Þýskaland og
Ítalíu í von um að skapa enn frek-
ari tengsl.
Ókeypis er inn á Aldrei fór ég á
Rex og verða fyrstu tónarnir slegn-
ir á Kaffi Rósenberg á föstudag
klukkan 19. - fb
Aldrei fór ég á Rex um helgina
SVAVAR KNÚTUR Trúbadorinn knái
skipuleggur tónlistarhátíðina Aldrei fór
ég á Rex um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Mikill stjörnufans er á nýjustu
sólóplötu Marianne Faithfull sem
heitir Easy Come, Easy Go. Keith
Richards leggur sinni gömlu vin-
konu lið ásamt yngri mönnum
eins og Antony Hagarty, Rufus
Wainwright, Jarvis Cocker og
Nick Cave. Þetta er fyrsta plata
Marianne frá 2004 og á henni eru
eingöngu tökulög, meðal annars
eftir Dolly Parton, Randy New-
man og Brian Eno.
Stjörnufans
hjá Faithfull
TÖKULÖG Marianne Faithfull er 62 ára.
Uma Thurman kom farþegum
á óvart þegar hún hóf að stunda
jógaæfingar í flugi milli New York
og Salt Lake City í Utah nýverið.
Samkvæmt heimildum dagblaðs-
ins New York Post stóð leikkonan
upp og fór að gera jógaæfingar í
gangveginum milli sætanna, og
notaði vagn einnar flugfreyjunn-
ar sem slá á meðan hún teygði á
og gerði hnébeygjur í tuttugu mín-
útur.
Flestir farþeganna reyndu kurt-
eislega að horfa í aðra átt á meðan
hin 38 ára Thurman gerði æfing-
arnar, sem þeir töldu eflaust hluta
af heilsusamlegu líferni leikkon-
unnar. Mörgum var því brugðið
þegar vélin lenti og Thurman rauk
út til að kveikja sér í sígarettu.
Stundar jóga í flugvél
ÆFIR STANSLAUST Uma Thurman segir
æfingar og verslunarferðir hjálpa sér að
slaka á en mörgum var brugðið þegar
hún hóf að gera jógaæfingar í flugi
nýverið.