Fréttablaðið - 22.01.2009, Qupperneq 62
46 22. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. skraf, 6. úr hófi, 8. hyggja, 9. umrót,
11. ekki, 12. svölun, 14. gáleysi, 16. í
röð, 17. mjög, 18. spreia, 20. frá, 21.
stórra herbergja.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. ólæti, 4. rugla, 5.
nágranni, 7. agndofa, 10. eyða, 13.
líða vel, 15. fugl, 16. híbýli, 19. bor.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rabb, 6. of, 8. trú, 9. los,
11. ei, 12. fróun, 14. vangá, 16. hi, 17.
all, 18. úða, 20. af, 21. sala.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. at, 4. brengla, 5.
búi, 7. forviða, 10. sóa, 13. una, 15.
álft, 16. hús, 19. al.
„Flytja til útlanda? Ertu galinn?
Ég er Íslendingur fram í fingur-
góma,“ segir Guðni Ágústsson,
fyrrverandi formaður Framsókn-
arflokksins.
Glæsilegt einbýlishús hans á Sel-
fossi, 209 fermetrar auk bílskúrs
á besta stað við Ölfusá, hefur nú
verið sett á sölu. Fasteignamark-
aðurinn lýsir húsinu sem einstöku,
hiti í gólfum, glæsistofur þar sem
hátt er til lofts og vítt til veggja
með fallegum arni. „Skáli er út
af stofum. Afar fallegs útsýnis
nýtur úr stofum og úr skála yfir
Ölfusá og víðar“, og þannig má
áfram telja: „Baðherbergi er stórt
og með glugga, flísalagt í gólf og
veggi og bæði með hornbaðkari
með nuddi og gólf sturtu með gler-
veggjum.“ Ekki er gefið upp verð á
húsi Guðna en samkvæmt auglýs-
ingu er fasteignamat þess rúmar
35 milljónir króna og brunabóta-
mat rúmar 45 milljónir. Gera má
ráð fyrir að væntanlegir kaupend-
ur verði að reiða fram mun hærri
upphæð fyrir þetta óðalssetur.
Ljóst má vera að
Guðni frá Brúnastöð-
um hefur enginn kot-
bóndi verið á Selfossi.
Sjálfur vill hann lítt tjá
sig um hvað valdi því að
hann er nú að selja. „Allir
í þessu samfélagi eru að
hugsa um sín mál. En ég
ætla ekkert að ræða það
frekar við þig hvernig
ég hagræði mínum eign-
um,“ segir Guðni. Hann
vill ekki heldur segja um
hvað standi til með
búsetu og hvar hún
er nema menn
geta treyst því að
Guðni Ágústsson
er ekki að flýja
land. - jbg
Guðni Ágústsson setur hús sitt á sölu
GUÐNI ÁGÚSTS-
SON Hugsar sér
til hreyfings en er
ekki að flýja land.
„Það er ein matskeið lýsi, ein
matskeið Omega 3, svo fæ ég
mér stóra skál fulla af létt AB-
mjólk og Kelloggs Bran Flakes.
Þetta gefur mér orku og náttúru-
lega trefjar. Svo hjálpar Omega
3 við að halda ónæmiskerfinu
góðu og liðum og taugakerfinu
í lagi.“
Sölvi Fannar Viðarsson einkaþjálfari.
„Dagatölin eru inni á hverri ein-
ustu skrifstofu hjá stelpunum hér
og ríflega það – heima hjá þeim
líka,“ segir Ólafur Jónsson sölu-
og þjónustufulltrúa hjá Íslenska
Gámafélaginu.
Starfsmenn Gámafélagsins tóku
sig til fyrir jólin og létu taka af
sér erótískar myndir til að setja
á dagatal sem gefið var út í tilefni
nýs árs. Þar getur að líta karl-
kyns starfsmenn fyrirtækisins
bera að ofan og hina kynþokka-
fyllstu. Að sögn Ólafs var daga-
talið unnið af starfsmönnum og
tók Sigurður Ástgeirsson áhuga-
ljósmyndari myndirnar í desem-
ber. Þá var frost en karlmennin
í Gámafélaginu létu það ekki slá
sig út af laginu nema síður væri.
Reyndar kaus Ólafur, herra Júní,
hlýju skrifstofu sinnar en er und-
antekningin sem sannar regluna.
„Þetta gekk svona prýðilega og
enginn færðist undan því að sitja
fyrir. Við hefðum getað gefið út
margar útgáfur með mismunandi
fyrirsætum og erum þegar farnir
að skipuleggja næsta dagatal. Við
erum búnir að skora á stelpurnar
hér að toppa þetta en þær eru mjög
ánægðar með þetta framtak.“
Starfsmenn Gámafélagsins eru
um 230 og þar af um 15 konur,
miklir kvenskörungar en dagatalið
er tileinkað þeim. Ólafur segir ein-
tóma gleði og hamingju í ruslinu.
Ekkert vanti upp á það. „Hér er
góður mórall. Toppurinn að vera
í ruslinu. Við vorum einmitt að
furða okkur á því hér nokkrir
þegar nánast var haft í hótunum
við mann af barnaskólakennur-
um sem sögðu að ef menn lærðu
ekki heima þá myndu þeir enda í
ruslinu. Ég lærði ekki heima og
sé ekki eftir því. Hvað eru margir
atvinnulausir viðskiptafræðingar
sem mæla göturnar,“ spyr Ólafur.
jakob@frettabladid.is
ÓLAFUR JÓNSSON: DJARFAR MYNDIR FYRIR STELPUR GÁMAFÉLAGSINS
Karlkyns kyntákn í rusli
KYNÞOKKAFULLUR ÓLAFUR Á SKRIFSTOFUNNI Starfsmenn Gámafélagsins létu framleiða dagatal fyrir 2009 og sátu sjálfir fyrir.
GLÆSIHÚS Á BÖKKUM ÖLFUSÁR
Einbýlishús Guðna er glæsilegt
að allri gerð.
STARFSMENN GÁMAFÉLAGSINS NAKTIR AÐ OFAN Ólafur Jónsson, sölu- og þjónustu-
fulltrúi hjá Íslenska gámafélaginu, fór fyrir hópi karlkyns starfsmanna fyrirtækisins
sem sátu fáklæddir fyrir á dagatali. Ólafur segir dagatalið tileinkað kvenkyns starfs-
mönnum fyrirtækisins. Karlarnir hafi skorað á konurnar að toppa þetta framtak.
„Ég stóð þarna og var að láta skoðun mína í ljós,
án ofbeldis af nokkru tagi, og uppskar lögreglubíl í
fangið og kylfu í bakið,“ segir Árni Rúnar Hlöðvers-
son, tónlistarmaður og meðlimur í hljómsveitinni
FM Belfast. Árni segir lögreglubíl með fanga inn-
anborðs hafa keyrt á sig á leið frá Alþingishúsinu í
mótmælunum á þriðjudag.
„Ég stóð þarna við húsið sem er við hliðina á
Alþingishúsinu og stillti mótmælum mínum algjör-
lega í hóf, ég kastaði engu og lyfti ekki hendi. Þá
keyrði lögreglubíll í ofboði á mig og þegar hann var
horfinn komu á vettvang aðrir lögregluþjónar sem
börðu mig í bakið með kylfum,“ segir Árni og bætir
við að hann hafi fengið áverkavottorð á slysadeild
og ætli sér að kæra atvikið. „Ég er ekki lífshættu-
lega slasaður, en ég er bólginn á öxlum. Ég hvet alla
sem lent hafa í svipuðu til að kæra, þótt vonin um
árangur af slíku sé ekki mikil. Kærufjöldinn skiptir
líka miklu máli.“
Árni segir lögregluna hafa misst gjörsamlega
stjórn á sér fyrir framan Alþingishúsið. „Þeim
fannst eins og allir væru að ógna sér, en sú var ekki
raunin. Það er ansi sárt að ætla sér að mótmæla á
friðsaman hátt og verða fyrir svona árás í staðinn,“
segir Árni Rúnar Hlöðversson. - kg
Lögregla keyrði á tónlistarmann
ÓSÁTTUR Árni segir sárt að uppskera bíl í fangið og kylfu í
bakið fyrir friðsamleg mótmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þeir urðu undrandi fréttamenn
sem í upphafi viku ætluðu að taka
viðtal við Guðlaug Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra. Hann var þá
alveg frá vegna þursabits en Guð-
laugur er, sem kunnugt er, kvæntur
Ágústu Johnson líkamsræktarf-
römuði en virðist samkvæmt þessu
ekki í mjög góðu formi. Reyndar
liggja orsakir þursabits ekki fyrir en
talið er að um lífsstílstengt fyrirbæri
sé að
ræða.
Halldór Blöndal, formaður banka-
ráðs Seðlabankans, kom askvað-
andi inn í útvarsphús við Efstaleiti
síðdegis í gær og var ekki skemmt.
Hafði Halldór verið að hlusta á Víð-
sjá Eiríks Guðmundssonar sem lýsti
atburðum í miðbænum eins og
þeir horfðu við honum: að hugsan-
lega væri hinn íslenski kapítalismi
að hrynja fyrir framan nef okkar.
Halldór hafði sínar meiningar um
útvarpsmennsku RÚVara, hlutverk
RÚV og hitti fyrir Pál Magnússon
útvarpsstjóra. Páll
lét Halldór ekkert
eiga inni hjá sér
og urðu hress-
ileg orðaskipti
þeirra á milli.
Bræðurnir
Hjörleif-
ur og Loftur Guttormssynir bíða
spenntir þriðjudags en þá verða
veitt hin Íslensku bókmenntaverð-
laun að Bessastöðum og báðir eru
tilnefndir í flokki fræðibóka. Ingunn
Ásdísardóttir og Kristín Ragna
Gunnarsdóttir eru fulltrúar kven-
kyns í þeim flokki tilnefndra fyrir
bókina Örlög guðanna. Aðrir eru
Vilhjálmur Árnason og
Þorvaldur Kristins-
son. Þær gætu þó
átt við margnum
því margir spá að
nú sé loks komið
að Einari Kárasyni
í flokki fagurbók-
mennta og þá gæti
kynjakvótinn farið að
telja. -jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI