Tíminn - 05.12.1982, Síða 2

Tíminn - 05.12.1982, Síða 2
SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982. fólk r listum Húsavfk: Málverkasýning í Safnahúsinu ■ Nú stendur yfir málverkasýning Sigurðar Hallmarssonar í Safnahúsinu á Húsavík. Sýningin hófs s.l. fimmtudag og lýkur henni nú á sunnudaginn. Tímamynd: Þröstur. Sýning í MÍR-salnum ■ Þann 4. desember nk. kl. 16 verður opnuð sýning í MÍR-sainum að Lindargötii 48, þar sem sýndar verða sovéskar bækur, hljómplötur og frímerki. Er sýning þessi helguð 60 ára afmæli stofnunar Sovétríkjanna. Þessi sýning er haldin af Viðskiptafulltrúa Sovétríkjanna á íslandi í samvinnu við vináttufélagið MÍR. Á sýningunni verða sýndar 350 bækur um ýmis efni. Þar á meðal verða skáldverk, vísindarit og kennslubækur, bækur um sovésku lýðveldin, barnabækur, bækur um myndlist og málverkabækur, hljómplötur með sígildri tónlist og nútíma tónlist og gott frímerkjasafn. Sýningin verður opin til desemberloka og geta sýningargestir skoðað verk sígildra rússneskra höfunda, s.s. I. Túrgenjevs, F. Dostojevskis, M. Gorkis, A. Kúpríns, A. Púshkins, A. Tolstojs, L. Tolstjos, og fleiri. Einnig geta þeir skoðað bækur eftir sovéska rithöfunda, sem sýna menningu hinna fjölmörgu sovésku þjóða og' þjóðabrota. ■ Hinir góðu gestir frá Finnlandi. Það er Arja Saijonmaa, sem hallar sér fram á píanóið fyrir miðju, en til hægrí er leikstjórinn, Vivica Bandler. Við píanóið situr tónskáldið Berndt Egerbladh. Listafólk í fremstu röð hefur viðkomu á heimleið frá Bandaríkjunum Finnska söng- og leikkonan Arja Sajonmaa flytur blandaða dagskrá f tali og tónum á ensku ■ Sunnudaginn 12. desember nk. 20.00 verður gestaleikur í Þjóðleikhúsinu. Það er finnska leik- og söngkonan Arja Saijonmaa sem flytur blandaða dagskrá í tali og tónum, leikin atriði og sungin. Eru þar m.a. verk eftir Mikis Theodor- akis, Bertoit Brecht, Kurt Weill, Marta Tikkanen, Erland Josephson, Jean Sibe- lius, Lars Hulén, Violeta Parra, Cole Porter og Berndt Egerbladh. Með Arja Saijonmaa í för er fimm manna hljóm- sveit undir stjórn Egerbladh, en leik- stjóri er Vivica Bandler og leikmynd, búninga og lýsingu gerir Ralf Forsström, einn fremsti ' leikmyndateiknari á Norðurlöndum. Blaðamönnum var sagt frá þessu góða listafólki á blaðamanna- fundi sl. fimmtudag. Dagskrá þessi var saman sett gagngert vegna Scandinavia Today í Bandaríkj- unum og er þess vegna flutt á ensku. Hópurinn kemur hingað á heimleið frá New York og sýnir aðeins í þetta eina skipti. Arja Saijonmaa Arja Saijonmaa leik-og söngkona er frá Mikkeli í austur Finnlandi. Hún lærði leiklist, bókmenntir og tónlist við háskólann í Helsinki og stundaði einnig nám í Bandaríkjunum. Hún lauk ein- leikaraprófi á píanó frá Sibeliusar tón- listarskólanum í Helsinki. Hún hefur starfað við ýmis finnsk leikhús, bæði sem leikari og söngvari og var um skeið leikhússtjóri nemendaleikhúss háskól- ans í Helsinki. Hún hefur haldið tónleika um alla Skandinavíu og flutt ein dagskrár á sviði og í sjónvarpi. Hún söng aðalhlutverkið í óperu Brecht og Weill Dauðasyndirnar sjö, í finnsku Þjóðar- óperunni. Þá lék hún dóttur Púntila í kvikmyndinni Púntila og Matti, sem Ralf Láangbakka gerði eftir samnefndu leikriti Brechts, en sú kvikmynd var sýnd hér á síðustu kvikmyndahátíð. Hún lék hlutverk Önnu Swárd f framhaldsþættinum Charlotta Löven- skjöld, sem byggður er á sögu Selmu Lagerlöf og sýndur var í íslenska sjónvarpinu í fyrravetur. Hún hefur sungið inn á nokkrar hljómplötur í Finnlandi, Svíþjóð og Vestur Þýska- landi. Þá fór hún í hljómleikaför um heiminn með Mikis Theodorakis og starfaði einnig með Parísar óperunni og ferðaðist með henni um 14 Asíulönd og kom fram á tónleikum í Olympia-höll- inni í París. Vivica Bandler og Ralf Forsström Vivica Bandler er leikstjóri sýningar- innar og er hún meðal allra fremstu ieiksýnenda í Svíþjóð. Hún hefur verið leikhússtjóri Borgarleikhússins í Stokk- ríBr ■ ArjaSaijonmaa.Margirmunukann- ast við hana í hlutverki Önnu Svárad úr myndaflokki sjónvarpsins, Charlotta Lövenskjöld. hólmi og á nú sæti í framkvæmdanefnd Alþjóðaleiklistarsambandsins. Ekki er höfundur leikmynda, búninga og lýsingar Rafl Forsström síður framúr- skarandi listamaður en Vivica Bandler, en hann er í fremstu röð leikmynda- hönnuða á Norðurlöndum. Hann hefur gert leikmyndir og búninga fyrir hátt á annað hundrað sýningar í óperum, leikritum og ballettum og fyrir kvik- myndir og sjónvarp. Þá hefur hann verið leikhússtjóri fyrir Pistol Teater og Sænska leikhúsið í Ábo og yfirleikmyndateiknari við Sænska leikhúsið í Helsinki og Borgarleikhúsið í Stokkhólmi. Er óhætt að hvetja fólk til þess að koma og sjá þessa framúrskarandi listamenn, en óhætt mun að fullyrða að Arja Saijonmaa á eftir að verða enn stærri stjarna meðal hinna skærustu en hún þegar er orðin. Miðasala hefst í dag, sunnudag kl 13.15. AM „Fæ innblástur frá læknisfræóinni” - SEGIR GUÐMUNDUR PÁLSSON LÆKNANEMI SEM OPNAR MÁLVERKASÝNINGU UM HELGINA ■ „Já, ég fæ innblástur frá læknis- fræðinni, sérstaklega úr sýnaskoðun, skoðun á vefjasniðum", sagði Guð- mundur Pálsson læknanemi í stuttu spjalli við Helgar-Tímann. f dag, laugardag 4. desember kl. 14 opnar hann sýningu á myndverkum í Ás- mundarsal við Freyjugötu.Hann sýnir 20 abstraktmyndir, unna. í acrýl á striga; allar gerðar á þessu ári. Guðmundur er á 4. námsári við læknadeild Háskólans og hefur aðeíns sinnt máiaralist í frístundum. „Þegar ég er t.d. búinn að lesa kafla um nýrun geri ég hlé á lestrinum og áður en ég byrja á blóðþrýstingnum dýfi ég niður pensli. Það er auðvitað afar freistandi að fara í myndlistarskóla, en ég hcf áhuga á því að blanda saman máiaralist og læknisfræði. í fræðin sæki ég oft hugkvcikjur sem ég vinn síðan á striganum.“ Sýningin í Ásmundarsa! cr önnur einkasýning Guðmundar. Hann hélt einnig sýningu þar í fyrra, og í fyrrahaust tók hánn þáft í samsýningu FÍM. Sýningin stendur til sunnudags 12. dcsember og er opin daglega frá Guðmundur Pálsson læknanemi og frístundamálari. - Ttmamynd: GE.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.