Tíminn - 05.12.1982, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.12.1982, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982. LÍlllliL V V, 5 ■ Teitur tók skilaboð af fæti Fjaðrar. landflugi. Svo er vitað um dúfurnar að þær sjá alveg einstaklega vel. Til dæmis hafa björgunarsveitir víða um lönd notað þær til að leita að ýmsu sem er í sjó, því þær hafa reynst hafa mikið betri sjón heldur en maðurinn. Einnig er talið að þær noti bæði lyktarskyn og heyrn. Þannig að skýringin á ratvísinni er mjög fjölþætt,“ sagði Þorkell. - Þið sögðuð áðan að það væru nokkrir tugir manna í Bréfdúfufélagi Reykjavíkur. Vitið þið hvað margar bréfdúfur eru til á íslandi? Um 500 bréfdúfur á íslandi „Ætli þær séu ekki eitthvað nálægt fimm hundruð,“ sagði Þorkell „og þeim fjölgar ört,“ bætti hann við. „Áhuginn á þessari skemmtilegu íþrótt er alltaf að aukast og við búumst við að margir verði með í keppnum næsta sumar.“ - Hvaðan koma þessar dúfur? „Hér á landi höfum við dúfur sem komu frá Danmörku hér í eina tíð. Talsvert hefur borist hingað með skipum og í þriðja lagi hafa komið hingað dúfur sem einfaldlega hafa villst til landsins eða hrakist hingað með veðrum í stórkeppnum annarra þjóða. Til dæmis frá Leirvík á Hjaltlandseyjum, Fær- eyjum, írlandi og Bretlandi. Ég man til dæmis eftir því að fyrir nokkrum árum hröktust hingað nokkrir tugir dúfna,“ sagði Þorkell. - Sjó ■ Starfsmenn Pósts og síma hefðu orðið stoltir af þjónustunni; að liðnum sex mínútum voru Tímamenn komnir á Grímshagann, en því miður of seint til að mynda aðflugið, þvi Fjöður var þcgar sest meðal annarra dúfna á þakskeggið. ■ Inni í byrginu á hver dúfa sinn bás. Mjög snyrtilegt er í kring um þær enda hafa nágrannar feðganna við Grímshag- ann verið mjög jákvæðir í garð dúfna- búsins. flugu frá Vík til Reykjavíkur á rúmlega tveimur og hálfum tíma. Næsta sumar verður flogið frá Nes- kaupsstað og síðar frá Grímsey og ísafirði. Verður keppt um veglegan bikar, sennilega með þeim glæsilegri sem maður sér í svona félagsskap, og munu menn safna stigum á hverri leið.“ Þarf að temja góðan hest - Er ekki mikið þolinmæðisverk að temja bréfdúfur? „Ef maður ætlar sér að eignast góðan hest þarf að temja hann. Og það er eins með fuglana, þeir sem eru ekki fæddir í toppafköstum. Þeir þurfa að þroskast og ná vissri æfingu áður en þeir fara að fljúga verulega langt." - Hvernig stendur á þessari miklu ratvísi dúfnanna? „Ratvísin er fyrirbæri sem hefur verið geysilega mikið rannsakað hjá mörgum þjóðum. Farfuglarnir búa yfir þessum eiginleika t.d. flýgur krían milli Suður- og Norðurskauts, en þó er tiltölulega lítið um þetta vitað. Þó er talið að fuglarnir noti sólina, þeir hafi innbyggða nokkurs konar klukku, þannig að miðað við sólarhæð og tíma geti þeir vitað hvar þeir eru. Sömuleiðis er víst að fuglar skynja segulsvið jarðar og það mun skipta mestu um ratvísi þeirra á ■ Sonurinn og faðirinn við dúfnabyrgið sem þeir hafa byggt sér í sameiningu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.