Réttur


Réttur - 01.08.1952, Side 9

Réttur - 01.08.1952, Side 9
RÉTTUR 201 „Við hér kærum okkur ekki um að íslenzkir dragi meiri fisk en við höfum gagn af. Þegar við getum aftur haft stríð við þá svensku skulu þeir f á meira snæri; og meira að segja aungla“ — sagði etasráðið 1 „Islandsklukkunni“. Á þeim tímum varð þjóð vor að láta sér nægja að „þreyja þorrann og góuna“, að „lifa á lífsvonunum“, eins og Step- han G. lætur móður sína orða það. ★ „Etasráðin“ á íslandi nú tala að vísu íslenzku ennþá, en þau hugsa á ameríska vísu. En þjóðin á nú þau samtök, sem hún átti ekki fyrr. Hún á verkalýðssamtök 25 þúsund vinnandi karla og kvenna, sem í vetur sýndu valdhöfum landsins með vetrarverkfallinu mikla, hvar það afl er, sem ræður á íslandi, ef það beitir sér jafn einarðlega á stjórnmálasviðinu, eins og það beitti sér, er 20 þúsund manns stóðu í 3 vikna verkfalli til að knýja afturhaldið til undanláts. Og hún á Sósíalistaflokkinn, sem leitt hefur hana áður út úr ógöngum afturhaldsins, til sjálfstæðisbaráttu og nýsköpunar og mun gera það enn.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.