Réttur - 01.08.1952, Blaðsíða 47
RETTUR
239
með því yfirvarpi að veita þeim svonefnda bandaríska ,;aðstoð“.
Það land, sem þiggur þessa bandarísku „aðstoð“, missir brátt
fullveldi sitt og sjálfstæði og er gert að undirlægju. Það mesta,
sem slíkt land getur gert sér vonir um, er að verða lægra settur
meðeigandi.
Slíkur lægra settur meðeigandi Bandaríkjanna er nú Stóra-
Bretland, sem forðum var frægt fyrir að vera „drottning hafanna"
og „verkstæði heimsins". Dag frá degi stíar bandaríska heimsvalda-
stefnan Stóra-Bretlandi meira og meira frá hráefnalindum og
mörkuðum, beitir öllum ráðum til að þröngva því út úr EvrópU
og Asíu og hrifsar frá því hvert beinið af öðru. Svo langt er nú
gengið, að Bandaríkjamenn höfnuðu formájalaust auðmjúkri
beiðni brezku ríkisstjórnarinnar um að fá að hafa áheyrnarfull-
trúa við samninga Bandaríkjanna og brezku samveldislandanna —
Nýja Sjálands og Ástralíu — um hið svonefnda Kyrrahafsbanda-
lag. Af þessu tilefni kvörtuðu jafnvel brezku íhaldsblöðin nýlega
sáran yfir því að farið væri með Stóra-Bretland eins og fátækan
ættingja (hlátur), sem væri áminntur, látinn sæta hörðu eða ekki
virtur viðlits. Og eitt íhaldsblað — Daily Mail — sagði umbúðalaust:
„Ef við missum aðstöðu þar og réttindi hér mun brátt reka að
því að við höfum ekki lengur neitt að missa“. (Hlátur). Það er
ekki trúlegt að brezkir valdamenn skilji þetta ekki. Engu að
síður halda þeir áfram að hlýða einveldi Bandaríkjamanna og
reyna að gera það með bros á vör. (Hlátur).
Heimsvaldasinnarnir, sem ráða Bandaríkjunum, eru að reyna
að gera löndin, sem þeir hafa undirokað, að árásarstöðvum í
stríði og þeir fela æskulýð þessara landa það hlutverk að vera
fallbyssufóður. Því feta þau lönd, sem gerzt hafa háð Bandaríkj-
unum, glötunarleiðina til styrjaldar fet fyrir fet.
Bandaríska heimsvaldastefnan er orðin brjóstvörn og virki aft-
urhaldsins i heiminum. Hún leitast við að bjarga auðvaldinu hvar
sem því er hætta búin, að varðveita nýlenduskipulagið og hinar
verstu afturhaldsstjórnir hvar sem þeim er hætta búin af þjóð-
frelsishreyfingum og lýðræðisbyltingunni. Hún fetar af fullkomnu
blygðunarleysi í fótspor þýzka fasismans og niðurlægir hermenn
sína til að gerast fangaverðir og böðlar frelsisunnandi þjóða.
Eins og eðlilegt er bindast þjóðir þeirra landa, sem orðið hafa
háð Bandaríkjunum, samtökum til að spyrna gegn bandarískri
ihlutun um líf sitt, að reka úr landi þessa óboðnu herra, og þær
fyllast logandi hatri á þeim, sem troða undir fótum þjóðarheiður
þeirra og virðingu.
Félagar, meginatriðið, sem flokkur okkar gerir heyrinkunnugt