Réttur - 01.08.1952, Blaðsíða 11
Ræða J. V. Stalíns
á 19. þingi Kommúnistaflokks
Ráðst j órnarríkj anna
(Stalín er ákaflega fagnað, er bann gengur að ræðustólnum).
Félagar, leyfið mér að láta í ljós þakklæti þings vors til
allra þeirra bræðraflokka og félagshópa, sem hafa heiðrað
þing vort með því að senda hingað fulltrúa eða hafa sent
þingi voru kveðjur — þakklæti fyrir vinarkveðjur þeirra,
fyrir óskir þeirra um árangursríkt starf, fyrir traust þeirra.
(Kröftugt, langvarandi lófatak og fagnaðaróp).
Sérstaklega þykir oss vænt um traust þeirra, því að það
ber vott um, að þeir eru reiðubúnir að veita flokki vorum
fulltingi í baráttu hans fyrir bjartari framtíð þjóðanna,
í baráttu hans gegn stríði, í baráttu hans fyrir varðveizlu
friðarins. (Kröftugt, langvarandi lófatak).
Það væri rangt að álíta, að flokkur vor þurfi ekki lengur
á stuðningi að halda, eftir að hann er orðinn voldugt afl.
Það væri ekki rétt. Flokkur vor og land vort hefur alltaf
þarfnazt og mun framvegis þarfnast trausts, samúðar og
stuðnings bróðurlegra þjóða í öðrum löndum.
Hið sérkennilega við þennan stuðning er það, að hve-
nær sem einhver bræðraflokkur styður friðarviðleitni f lokks
vors, er hann um leið að styrkja sína eigin þjóð í baráttu
hennar fyrir varðveizlu friðarins. Þegar brezka auðmanna-
stéttin fór með ófrið á hendur Ráðstjórnarríkjunum og