Réttur


Réttur - 01.08.1952, Blaðsíða 44

Réttur - 01.08.1952, Blaðsíða 44
236 RÉTTUR sem sovétlýðveldin hafa náð, hefur opnað þeim dyr möguleika til enn virkari þáttur í lausn meiriháttar viðfangsefna, sem varða allt ríkjasambandið. Það afl, sem er bindiefnið í vináttu þjóða lands okkar, er rúss- neska þjóðin, hin frábærasta af þjóðum Sovétríkjanna. (Hávært lófatak). í október 1917 vann rússneska verkalýðsstéttin sögulegt afreks- verk undir forystu flokks Leníns og Stalíns, hún rauf heimsvíg- línu heimsvaldastefnunnar og sleit festi þjóða- og nýlendukúgunar- innar á sjötta hluta jarðarinnar. Enginn vafi leikur á því, að hefði ekki notið við rússnesku verkalýðsstéttarinnar hefðu þjóðir lands okkar ekki megnað að verjast hvítliðum og erlendum ihlut- unarseggjum og byggja upp sósíalisma. Hvað þær þjóðir snertir, sem ekki höfðu lagt að baki skeið auðvaldsþróunar, er það víst að þeim hefði ekki tekizt án langvinnrar og kerfisbundinnar að- stoðar rússnesku verkalýðsstéttarinnar að taka stökkið frá for- auðvaldslegum stigum hagkerfis til sósíalisma. Eins og félagi Stalin hefur sagt birtust þjóðareinkenni rússnesku þjóðarinnar — skarpskyggni, skapfesta og þolgæði — sérstcklega skýrt meðan styrjöldin mikla fyrir föðurlandið var háð. í þeirri styrjöld ávann rússneska þjóðin sér með hetjuskap sínum, staðfestu og hugrekki almenna viðurkenningu meðal þjóða lands okkar sem forystuafl Sovétríkjanna. (Langvinnt lófatak). Allar þjóðir lands okkar fylgdu fordæmi rússnesku þjóðarinnar, börðust hetjulega við hlið hennar gegn óvinunum og unnu ásamt rússnesku þjóðinni sigur okkar yfir Hitlers-Þýzkalandi og Japan heimsvaldasinnanna. Þjóðir lands okkar sýndu öllum heimi hve voldugt og ósigrandi er hið sovézka, sósíalistiska fjölþjoðaríki, sem byggt er á stalínskri vináttu þjóðanna. Vinátta þjóðanna í landi okkar grundvallast á sameiginlegum lífshagsmunum þeirra. Þjóðir Sovétríkjanna sameinar barátta þeirra og bjargföst ákvörðun um að verja gegn öllum óvinum frelsið, sjálfstæðið og hamingjuna, sem þær hafa öðlazt undir sovétstjórn, sameiginlegt átak til að byggja upp kommúnistiskt þjóðfélag sameinar þær. Þjóðir lands okkar vita fullvel að sam- einaðar með óbilandi, stalínskri vináttu í eitt sovétríki — banda- lag lýðveldanna — eru þær ósigrandi, að þær geta með góðum árangri byggt upp kommúnisma og verndað ávinninga sína fyrir öllum óvinum. Flokkur okkar og félagi Stalín sjálfur fylgjast stöðugt með því að sovétstefnunni í þjóðernamálum sé rétt beitt. í baráttunni gegn féndum leninismans bar flokkurinn fram til sigurs Lenín-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.