Réttur


Réttur - 01.08.1952, Side 23

Réttur - 01.08.1952, Side 23
215 RÉTTUR manni, sem fellur í vatn. Mennimir á bekkjunum skiptu ekki máli lengur, hann sá aðeins Svein, rautt andlitið, tann- beran munninn og ljóst yfirskeggið, og heyrði orð hans, sem honum sveið undan eins og kinnhesti. — Sveinn tók sér málhvíld. Jói leit af honum andartak út yfir salinn, þar sem fólkið sat og starði á Svein. — Trúði það því? hugsaði hann. — Trúði það þessu um hana Skjöldu mína ? spurði hann sjálfan sig. ■— Það má ekki trúa því! — Jói stóð upp og talaði: „Ég er hissa á þér, Sveinn, að tala svona um hana Skjöldu mina. Ég hefði aldrei trúað því að þú færir að níða svona saklausa skepnuna, og það frammi fyrir þessum f jölmenna fundi. Þú veizt það sjálfur að Skjalda var afbragðs kýr, þó hún hafi aldrei komizt í mjög háa nyt, en hún stóð held- ur aldrei geld lengur en mánuð og varla það. Það er ósatt hjá þér að hún hafi fengið doða eftir hvem burð, það kom aðeins einu sinni fyrir, og hún var í alla staði bezti gripur. Hún var borin fyrir mánuði þegar ég lét hana, svo það er engin goðgá þótt hún væri kálflaus. Verðið held ég að hafi verið sanngjarnt, enda veit ég til þess, að þú seldir sjálfur Skúla í Nesi um sama leit kú, sem var sízt betri gripur og tveim vetrum eldri, fyrir þó nokkuð hærra verð. Skúli getur vottað það, því hann er hér staddur, að hann kom til mín nokkru síðar og sagðist hafa dauðséð eftir kaupunum þegar hann frétti að ég hefði selt Skjöldu, og kvaðst mundi hafa keypt hana af mér fyrir 100 kr. hærra verð en ég seldi hana, hefði hann vitað í tíma að ég vildi selja hana. Og Skúli þekkir kýr eins og hver annar. — Ég ætla ekki að fara að halda neina ræðu, en ég má til að segja það, Sveinn, að ef þú getur ekki haldið á málum okk- ar bænda án þess að níðast á saklausum skepnunum, þá ættir þú heldur að halda þig heima á Gauksmýri og sinna búi þínu, svo þú þurfir ekki að draga horfallnar beljur í mógrafirnar og dysja þar, eins og hérna um árið, snjóa- veturinn, þegar þú settir á í vitleysu og týmdir ekki að

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.