Réttur


Réttur - 01.08.1952, Page 24

Réttur - 01.08.1952, Page 24
216 RÉTTUR skera hrútana af. Þér ferst annað betur en að tala um kýr. Og ég segi fyrir mig, að ég skammast mín fyrir mál- flutning þinn, og það veit ég að allir bændur sem hér eru staddir munu gera. Það hefði verið skárra ef þú hefðir sent hann bola þinn hingað á fundinn, heldur vildi ég hann fyrir talsmann en þig“. Það kom skyndilega kökkur í hálsinn á Jóa, svo hann þagnaði. Hann sárlangaði til að segja meira, en honum varð allt í einu ljóst að hann var að brjóta fundarreglur með framhleypni sinni, og settist, móður af æsingi og óstyrkur í hnjánum. Þá dundi lófatakið irm salinn. Jói leit í kringum sig forviða, og sá að sessunautar hans og margir víðsvegar um salinn klöppuðu allt hvað af tók, ýmsir hrópuðu ,,Heyr“ og einhverjir stöppuðu í gólfið. Það var slegið þéttingsfast á öxl hans svo hann leit við. Ungur rauðbirkinn sjómaður kinkaði til hans kolli og brosti. „Þarna tókstu hann fallega, þann gamla. Sá átti fyrir þvi,“ sagði hann uppörfandi. Klappið og stappið dvínaði og Jói fann móðinn renna af sér. Honum fannst heitt inni og þröngt um sig, svo hann stóð upp og gekk út til að kæla sig. Hann heyrði að Sveinn var byrjaður að tala á ný, en það heyrðist illa til hans fyrir ókyrrð, og svo virtist, sem hann talaði ekki fullum rómi. Úti var svalt sumarkvöld, snarpur vindur af hafi og skýj- að. — Jói renndi augunum út á sjóinn og síðan um kamb- inn, þar sem hús sjómannanna stóðu, gömul hús, skekkt og veðruð, sum aðeins litlir skúrar og klæddir rifnum tjöru- pappa. I mölinni milli húsanna stóðu tómar fisktrönur og í fjörunni nokkrar gamlar skektur og skipsjullur, sumar á hvolfi, og í gömlum uppskipunarbát voru börn í skipaleik. Jóa létti í skapi við svalann og skyndilega rann upp fyrir honum óvæntur skilningur á því, sem gerzt hafði. Hann, Jói í Dalskoti, hafði gert uppreisn gegn Sveini á Gauks- mýri, „Gauksmýrar-afturhaldinu". — Auðvitað! Sveinn var ekki fulltrúi smábænda, leiguliða. Hann var fulltrúi

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.