Réttur


Réttur - 01.08.1952, Síða 29

Réttur - 01.08.1952, Síða 29
RÉTTUR 221 verkamanna. Stjórn hins nýstofnaða gerfifélags í Þingeyj- arsýslu leit þó öðruvísi á málið, því hún horfði með vel- þóknun á það, að meðlimiun þess félags væri smalað til vinnu í stað Akureyringanna. Formaður Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar fór þáuaustur, en tókst ekki að koma vitinu fyrir formann gerfifélagsins. Daginn eftir fór hann aftur austur og með honum 20 menn og voru þeir stað- ráðnir í að hindra verkfallsbrotin. Þegar gerfifélagsmenn sáu alvöruna og þeim barst einnig skeyti frá stjórn Al- þýðusambandsins með þeim fyrirmælum um að hætta vinnu, tóku þeir þann kostinn að láta imdan. Áður höfðu þeir þó ekki sinnt fyrirmælum Alþýðusambandsins í þessa átt. Þetta atvik við Laxá sýnir hve mikil hætta getur stafað af þessum svokölluðu ,,verkalýðsfélögum“ í sveit- unum, sem mynduð eru af mönnrnn, er ekki hafa sömu stéttaaðstöðu og raunverulegir verkamenn og hafa allt aðrar hugmyndir en þeir um stéttarsamtök. Félög þessi eru yfirleitt ekki mynduð til að berjast við atvinnurekendur mn kaup og kjör, heldur við verkamenn bæja og þorpa um atvinnu við ýmsar framkvæmdir. Allmikill eltingaleikur varð í sambandi við tilraunir til að flytja suður á bílum mjólk og iðnaðarvarning. Tókst þetta með 1 eða 2 bíla í fyrstu en síðan varð það fyrir- byggt með öllu. Einn morguninn stöðvuðu verkfallsmenn áætlunarbílinn til Reykjavíkur, sem var að leggja af stað með shkan varning meðferðis. Þótt ekki verði fleira talið, mátti segja að verkfallsstjórnin hefði nóg að gera. Og leysti hún þau störf af höndum með ágætum. Eins og áður er sagt hafði Iðja ekki sagt upp samningum og var því ekki aðili í deilunni. En henni bárust eins og öðrum félögum hér tilmæli frá Alþýðusambandinu um sam- úðaraðgerðir. Fundur í félaginu, sem haldinn var 3. des. felldi að gera samúðarverkfall. Urðu það verkamönnum mikil vonbrigði. Verður það að teljast miður farið, að Iðja skyldi ekki bera gæfu til að verða öðrum félögum sam-

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.