Réttur - 01.08.1952, Síða 35
RETTUR
227
framkvæma hana. Með því óbilandi viljaþreki og atorku, sem ein-
kennandi er fyrir hann, stjórnaði félagi Stalín sjálfur öllu starfi
flokksins og ríkisins við að skipuleggja verkalýðinn, samyrkju-
bændurna og menntamennina í því að uppfylla eftirstríðs fimm
ára áætlunina. Eins og alkunnugt er var eftirstríðs fimm ára áætl-
unin framkvæmd með ágætum. (Lófatak).
Sem stendur þróast iðnaður, landbúnaður og flutningakerfi lands
okkar á hinu hæsta tæknistigi og tryggja einstæða aukningu í
heildarframleiðslunni til þjóðarþarfa.
Eg mun nefna nokkur dæmi til að draga upp mynd af magni
iðnaðarframleiðslu okkar,
Ef við berum iðnframleiðslumagnið síðustu tvö árin saman við
tímabilið, sem 1. og 2. fimm ára áætlunin náðu yfir, kemur það í
ljós að iðnaðarframleiðslan árin 1951 og 1952 er 22% meiri en á
tímabili beggja fimm ára áætlananna samanlögðu. (Lófatak).
Á árinu 1952 einu saman mun framleiðsla í hinum þýðingarmestu
greinum svo sem raforku, járni og stáli, kolum, olíu, sementi og
neyzluvörum verða stórum mun meiri en á öllu tímabili fyrstu
fimm ára ætlunarinnar.
Vélsmíðar, sem eru hornsteinn undir tæknilegum framförum í
atvinnulífinu í heild, þróast enn hraðar. Á yfirstandandi ári einu
saman framleiðum við langtum meira af vélum og tækjum en við
framleiddum á öllu því tímabili, sem fyrsta og önnur fimm ára
áætlunin náðu yfir til samans.
Samfara vexti sósíalistiskrar framleiðslu batna kjör allrar sov-
étþjóðarinnar stöðugt ár frá ári.
Efnahagslega og stjórnarfarslega og einnig hernaðarlega eru
Sovétríkin nú öflugri en nokkru sinni fyrr og færari um að
standast hverskonar þrekraunir. (Langvinnt lófatak).
Ef óvinurinn dirfist að fara með ófriði á hendur okkur munu
Sovétríkin, sem eru í fylkingarbrjósti í herbúðum friðar og lýð-
ræðis, vera fær um að veita hvaða samsteypu árásarsinnaðra heims-
valdaríkja sem vera skal gjöreyðandi viðnám. Þau munu verða
fær um að hrekja á flótta og refsa hinum hrokafullu árásarseggj-
um og stríðsæsingamönnum. (Lófatak).
Félagar, eitt af því, sem úrslitum hefur ráðið um sigrana, sem
sovétþjóðin hefur unnið í stríði og í friðsamlegri atvinnu- og
menningarþróun, er hin viturlega og framsýna stefna flokks okkar
í þjóðernismálunum. í hinu sovézka fjölþjóðaríki búa og starfa
yfir 60 þjóðir, þjóðabrot og þjóðflokkar. Þegar þannig er í þott-
inn búið hefur það alveg sérstaka þýðingu fyrir framgang sam-
eiginlegs málstaðar okkar — eflingu valds Sovétríkjanna og bygg-