Réttur


Réttur - 01.08.1952, Page 48

Réttur - 01.08.1952, Page 48
240 RETT UR á nítjánda þinginu, er að Sovétríkin hafa öðlazt einstæðan mátt og alþjóða virðingu. Við áunnum okkur þetta með iðnvæðingarstefn- unni, sem breytti landi okkar úr landbúnaðarlandi í háþróað iðn- aðarland; með samyrkjustefnunni, sem breytti landbúnaði okkar í vélvæddan stórrekstur, hinn háþróaðasta í heimi; með því að framfylgja sleitulaust stefnu Leníns og Stalíns í málum þjóð- ernanna, sem skóp óbifandi einingu og vináttu þjóða Sovétríkj- anna; með stöðugri framkvæmd utanríkisstefnu Stalíns, sem hefur það markmið að tryggja frið þjóða í milli. Hagur og menning þjóða okkar hafa blómgazt. Sagan sýnir að þau 35 ár, sem sovétstjórnin hefur verið við lýði, hefur landi okkar farið eins mikið fram á iðnaðarsviðinu og auðvaldslöndunum á mörgum öldum. Síðan sovétstjórnin komst á hefur iðnframleiðsla Sovétríkjanna aukizt um 3800%. Það tók Bretland 162 ár (1790 til 1951) að ná slíkri aukningu og í Frakk- landi jókst framleiðslan síðastliðin 90 ár um einungis 450%. Hvað Bandaríkin snertir jókst iðnframleiðsla þeirra síðastliðin 35 ár um einungis 160%. Ríki sósíalismans tókst að ná þessum árangri á svo tiltölulega skömmum tíma vegna þess að sovétskipulagið skapaði einstæð skilyrði til hraðrar efnahags- og menningarþróunar í Sovétríkj- unum, vegna þess að barátta þjóðar okkar fyrir sósíalisma var háð undir forystu kommúnistaflokksins, sem veit hvert förinni er heitið og óttast enga erfiðleika. (Langvinnt lófatak). Leiðin til sigurs sósíalismans í landi okkar var ekki greiðfær. Á þeirri leið mættum við mörgum hindrunum og erfiðleikum bæði utanaðkomandi og innanfrá. En flokkur okkar var alltaf við öllu búinn og tókst að vinna bug á þessum farartálmum. Nú þegar okkar bíða þau miklu og flóknu verkefni, sem tengd eru uppbyggingu kommúnismans, verður flokkur okkar, flokkurinn sem veitir sovétríkinu leiðsögn, að búast við erfiðleikum og vera þess fullbúinn að stjórna starfi þjóðar okkar að því að vinna bug á þeim. Við erum sannfærð um að flokkur okkar, sem Lenín og Stalín sköpuðu og þjálfuðu, mun eins og endranær reynast vaxinn þeim miklu verkefnum sem bíða hans. (Lófatak). Ásamt hinum mikla Lenín byggði og efldi félagi Stalín flokk okkar, hafði forystu fyrir áhlaupi verkalýðs Rússlands á auðvalds- skipulagið í október 1917 og byggði upp fyrsta sósíalistiska ríkið í veröldinni. Meira en aldarfjórðungi eftir lát hins mikla Leníns er félagi Stalín í fararbroddi flokks okkar og þjóðar eftir ókann- aðri leið til nýs, kommúnistisks mannlífs. Við hvern nýjan áfanga á þessari leið hervæðir félagi Stalín flokk okkar fræðikenningu,

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.