Réttur - 01.03.1941, Blaðsíða 23
Ógnir styrjaldariimar færast nær.
Vopnaðar þýzkar könnunarflugvélar eru nú farnar
að venja komur sínar hingað til lands og þykir flest-
um þaö vera fyrirboði stærri tíöinda. Bretar hafa tek-
ið á móti gestum þessum með allt öðru sniöi en flest-
ir munu hafa búist við að óreyndu. Flugvélar þessar
hafa getað rekið erindi sitt af hinni mestu prýði,
skoðað mikilvægar herstöövar í krók og kring í ró og
næði og tekið ljósmyndir. Engin alvarleg tilraun hef-
ur verið gerð af hendi Breta til að fara á móti þeim
og neyða þær til að lenda. Nú eru aðalherstöðvar
Breta í Reykjavík, þar sem mestur hluti íslendinga og
öll helstu verðmæti þeirra eru saman komin.
íbúar Reykiavíkur eru því í miklum háska staddir,
og ef marka má reynsluna, er þeim engin stoð í vörn-
um Breta. Nokkrar þýzkar sprengjuflugvélar geta
lagt Reykjavík í rústir fyrir þeim. Borgarbúar era svo
illa staddir sem mest má vera, þar sem engin
sprengjuheld loftvarnabyrgi eru til og húsin mjög
veigalítil. Nú fyrst eru augu manna aö opnast fyrir
því að meö komu sinni hingaö hafa Bretar stofnað
okkur í hina mestu hættu og dregiö okkur inn í hring-
iðu styrjaldarinnar, en viö erum jafn varnarlausir og
berskjaldaöir eftir sem áður.
Af hálfu íslenzkra stjórnarvalda hefur bókstaflegi
ekkert verið gert aö gagni til öryggis landsbúum. Rík-
isstjórnin hefur aldrei gert annaö en kyssa. á vönd
Bretans, aldrei hefur hún mælst til þess aö hann legöi
eyri fram til vemdar lífi og limum íslendinga, ef
háska ber að höndum. Svo lágt lúta þessir leppar
hins erlenda herveldis, aö þegar bæjarfulltrúar sósíal-
ista í Reykjavík fluttu fyrir skemmstu tillögu um, aö
bæjarstjómin færi þess á leit viö Breta, aö þeir létu
byggja sprengjuheld skýli fyrir bæjarbúa á sinn kostn-
aö, þá felldu fulltrúar þjóöstjórnarinnar þá tillögu.
23